Fara í efni

Íþrótta- og æskulýðsráð

37. fundur
21. júní 2012 kl. 08:00 - 10:00
fundaherbergi á 2. hæð í Menningarhúsinu Bergi
Nefndarmenn
Jón Halldórsson Formaður
Dagbjört Sigurpálsdóttir - gamalt Varaformaður
Friðjón Árni Sigurvinsson Aðalmaður
Kristinn Ingi Valsson Aðalmaður
Magni Þór Óskarsson 1. varamaður
Hildur Ösp Gylfadóttir Embættismaður
Árni Jónsson Embættismaður
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Hildur Ösp sviðsstjóri og Árni Jónsson Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi
Dagskrá
1.
Samningur um rekstrarstyrk
Málsnúmer 201206007
Erindi lá fyrir fundinn vegna óskar UMSE um rekstrarstyrk til 3 ára. Framkvæmdastjóri UMSE Þorsteinn Marinósson mætti á fundinn og kynnti helstu ástæður þess að gerður verði samningur milli Dalvíkurbyggðar og UMSE til 3 ára. Sviðsstjóri fræðslu- og menningarmála óskaði eftir skýringum á því hverjar skyldur UMSE eru gagnvart sveitarfélaginu. Þorsteinn svaraði því til að skyldur væru engar samkvæmt lögum. Sviðsstjóri óskaði eftir meira frumkvæði UMSE þegar kemur að fræðslu fyrir íþrótthreyfinguna.<EM></EM><EM></EM> <EM>Íþrótta- og æskulýðsráð samþykkir að gera samning um rekstrarstyrk til 2 ára. Á samningstímanum er mikilvægt að stjórn UMSE fjalli um stöðu og hlutverk héraðssambandsins útfrá t.d. stærð þjónustusvæðis, starfshlutfall og hlutverk framkvæmdastjóra. Skoðaðir verði kostir á fækkun héraðssambanda til auka vægi og styrkja starfsemina.</EM><EM></EM><EM></EM><EM></EM> <EM>Íþrótta- og æskulýðsráð vísar erindinu til afgreiðslu í bæjarráði.</EM>
2.
Umsókn um Landsmót UMFÍ 50
Málsnúmer 201205089
Framkvæmdastjóri UMSE Þorsteinn Marinósson mætti á fundinn og kynnti erindi vegna umsóknar á framkvæmd Landsmóts 50+ fyrir árin 2013 eða 2014. Formaður íþrótta- og æskulýðsráðs óskaði eftir skýringum á kostnaði vegna framkvæmdar mótsins. Þorsteinn tók það fram að kostnaður væri óverulegur helst þyrfti að bæta sandi í sandgryfjur, reita arfa og gera svæðið snyrtilegt. Tjaldsvæði Dalvíkur þarf að vera landsmótsgestum til afnota að kostnaðarlausu. Þorsteinn vék af fundi og voru bæði málefni UMSE tekin til efnislegrar umfjöllunar.<EM></EM> <EM>Íþrótta og æskulýðsráð samþykkir að sækja um Landsmót 50+ fyrir 2013 eða 2014.</EM>
3.
Bráðabirgðaendurbætur á æfingasvæði á Dalvíkurvelli
Málsnúmer 201206003
Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi kynnti erindisbréf til bæjarráðs vegna endurbóta á æfingarsvæði Dalvíkurvallar.<EM></EM> <EM>Íþrótta - og æskulýðsráð tók erindið til umfjöllunar.</EM>
4.
Ársskýrsla og ársreikningar Skíðafélags Dalvíkur 2011
Málsnúmer 201205101
Á fundinum voru lögð fram ársskýrsla, ársreikningur og erindisbréf vegna fjárhagsstöðu Skíðafélags Dalvíkur.Íþrótta- og æskulýðsráð tók upp umræðu um ársskýrslu og ársreikning og fjárhagslega stöðu Skíðafélags Dalvíkur. Sviðsstjóri fræðslu- og menningarmála og íþrótta- og æskulýðsfulltrúi fóru yfir erindi félagsins til bæjarráðs vegna fjárhagsstöðu.<EM></EM> <EM>Íþrótta- og æskulýðsráð finnst miður að heyra af slæmri fjárhagslegri stöðu Skíðafélags Dalvíkur en lýsir yfir ánægju með feril málsins í bæjarráði.</EM>
5.
Samningar við íþróttafélög 2013-2017
Málsnúmer 201206009
Framundan eru samningaviðræður við íþróttafélög sveitarfélags Dalvíkurbyggðar.<EM></EM> <EM>Íþrótta- og æskulýðsráð tók til umfjöllunar helstu áherslur í samningaviðræðum. Eftirfarandi 3 fulltrúar munu leiða samningaviðræður fyrir sveitarfélagið íþrótta- og æskulýðsfulltrúi, formaður og varaformaður íþrótta- og æskulýðsráð.</EM>
6.
Íþróttanefnd ríkisins í heimsókn
Málsnúmer 1206041
Kynning íþrótta- og æskulýðsfulltrúa á heimsókn Íþróttanefndar ríkisins frestað.
7.
17. júní 2012
Málsnúmer 1206042
Kynning íþrótta- og æskulýðsfulltrúa og umræður um framkvæmd 17. júní frestað.