Fara í efni

Íþrótta- og æskulýðsráð

34. fundur
6. mars 2012 kl. 08:15 - 10:15
fundarherbergi á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Jón Halldórsson Formaður
Dagbjört Sigurpálsdóttir - gamalt Varaformaður
Friðjón Árni Sigurvinsson Aðalmaður
Kristinn Ingi Valsson Aðalmaður
Jón Ingi Sveinsson Aðalmaður
Hildur Ösp Gylfadóttir Embættismaður
Árni Jónsson Embættismaður
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Árni Jónsson Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi og Hildur Ösp Gylfadóttir sviðsstjóri Fræðslu- og menningarsviðs
Dagskrá
1.
Klifurveggur
Málsnúmer 201110039
Með fundarboði fylgdi samstarfssamningur við Grjótglímufélagið um uppbyggingu á klifuraðstöðu í Víkurröst. Grjótglímufélagið sér um alla uppbyggingu og hönnun á klifurvegg, fjáröflun og styrkumsóknir. Klifuraðstaðan verður í eigu Dalvíkurbyggðar sem gefur skóla, félagsmiðstöð, frístundaheimili og golfklúbb og íbúum möguleika á að nýta sér aðstöðuna. Grjótglímufélagið skuldbindur sig til að vera með opnun fyrir almenning a.m.k. 2 sinnum í mánuði yfir vetrartímann. <EM>Íþrótta- og æskulýðsráð samþykkir samninginn og vísar honum til bæjarstjórnar til afgreiðslu</EM> 
2.
Styrkveitingar; almennar reglur Dalvíkurbyggðar
Málsnúmer 201112049
Lögð voru fram til umfjöllunar drög um almennar reglur um styrkveitingar í Dalvíkurbyggð. <EM>Íþrótta- og æskulýðsráð telur reglurnar of ítarlegar og  flóknar  en gerir ekki athugasemdir að öðru leiti.</EM>
4.
Samningur um gamla íþróttahúsið við Golfklúbbinn Hamar
Málsnúmer 201203013
Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi kynnti drög að afnotasamningi við Golfklúbbinn Hamar vegna inniaðstöðu í Víkurröst. Helstu atriði samnings eru þau að lagt er til að samningstími verði til 31. desember 2020. Golfklúbburinn mun taka að sér allt viðhald innanhús og Dalvíkurbyggð allt viðhald utanhús. <EM>Íþrótta og æskulýðsráð samþykkir afnotasamningin með breytingum sem gerðar voru á fundinum og vísar honum til afgreiðslu í bæjarstjórn.</EM>
5.
Reglur um notkun Íþróttamiðstöðvar aðra en íþróttastarfsemi
Málsnúmer 1106038
Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi kynnti áframhaldandi vinnu vegna reglna um notkun Íþróttamiðstöðvar aðra en íþróttastarfsemi. Helsta breytingin frá fyrri umræðu er gjaldskrá sem komin er inn í reglurnar. <EM>Íþrótta- og æskulýðsráð samþykkir reglurnar og vísar þeim til afgreiðslu í bæjarstjórn.</EM>
6.
Styrkumsókn vegna Jónsmóts
Málsnúmer 201203015
Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi kynnti erindi frá mótanefnd Skíðafélags Dalvíkur vegna Jónsmóts. Mótanefndin óskar eftir stuðningi við mótshald í sundlaug. <EM>Íþrótta- og æskulýðsráð samþykkir, í ljósi sögunnar að verða við beiðninni að þessu sinni, en beinir því til mótsnefndar að gera ráð fyrir þessum kostnaði að ári.</EM>
7.
Gjaldskrá vegna móta í íþróttahúsi
Málsnúmer 201110057
Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi kynnti breytingar á gjaldskrá vegna móta íþróttafélaga sveitarfélagsins í Íþróttamiðstöðinni á Dalvík. Helstu breytingar eru þær að skýra betur upp hvernig sé staðið að málum þegar íþróttafélag sveitarfélagsins halda mót utan Íþróttamiðstöðvar en vilja nýta sundlaugina. <EM>Íþrótta og æskulýðsráð samþykkir reglurnar og vísar þeim til umfjöllunar í bæjarstjórn.</EM>
8.
Reglur um niðurfellingu á leigu vegna fjáraflana
Málsnúmer 201203030
Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi kynnti breytingar á reglum vegna niðurfellingu á leigu vegna fjáraflana. Helstu takmarkanir á niðurfellingu á leigu eru ef um dansleiki er að ræða, gistingu eða að atburðir standi yfir í meira en 3 klst. <EM>Íþrótta- og æskulýðsráð samþykkti breytingar á reglum og vísar þeim til bæjarstjórnar.</EM>
9.
Önnur mál ÍÆ 2012
Málsnúmer 201201053
a) Upplýst var um fjárhagslega bráðabirgðaniðurstöðu málaflokksins  fyrir árið 2011. b) Ferð ráðsins í Skagafjörð verður 29. mars og verður fundað jafnhliða því. c) Rætt um úthlutun úr afreks- og styrktarsjóði en úthlutað verður einu sinni á ári frá og með þessu ári. d) Tekið var fyrir erindi frá framkvæmdastjóra Dalvík/Reyni vegna meistaraflokks þar sem óskað er eftir að leikmenn fái að nýta ræktina í íþróttamiðstöð án endurgjalds. <EM>Íþrótta- og æskulýðsráð hafnar beiðninni en minnir á að Dalvíkurbyggð veitir 40% afslátt til iðkenda íþróttafélaga sem stunda æfingar undir leiðsögn þjálfara.</EM><EM></EM> e) Upplýst var um stöðu á vinnu við deiliskipulagið á íþróttasvæðinu.