Íþrótta- og æskulýðsráð
30. fundur
1. nóvember 2011
kl.
08:15
-
10:15
í fundarherbergi á þriðju hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Fundargerð ritaði:
Hildur Ösp Gylfadóttir
sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs.
Dagskrá
1.
Gamla íþróttahúsið á Dalvík
Undir þessum lið komu á fundinn forsvarsmenn Golfklúbbsins Hamars þeir Sigurður Jörgen Óskarsson og Rögnvaldur Friðbjörnsson. Til umræðu var sá möguleiki að félagið kaupi eða geri langtímaleigusamning við Dalvíkurbyggð um gamla íþróttahúsið.
&<EM&gt;</EM&gt;&nbsp;</DIV&gt;<EM&gt;Íþrótta- og æskulýðsráð felur sviðsstjóra að skoða nánari útfærslur í samráði við bæjarstjóra.</EM&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;
2.
Frá Hestamannafélaginu Hringi; Beiðni um niðurfellingu á húsaleigu
Erindi frá Hestamannafélaginu Hringi barst til íþrótta- og æskulýðsfulltrúa fyrir síðasta fund ráðsins en ekki náðist ekki að taka það fyrir þá. Í erindinu óskar Hestamannafélagið Hringur eftir styrk í formi niðurfellingar á húsaleigu á Rimum vegna dansleikjahalds í fjáröflunarskyni.
<EM&gt;</EM&gt;&nbsp;</DIV&gt;<EM&gt;Íþrótta- og æskulýðsráð frestar afgreiðslu&nbsp;og&nbsp;stefnir á að búa til reglur ráðsins fyrir erindi sem þessi.</EM&gt;</DIV&gt;
4.
Frá Ungmennafélagi Svarfdæla; Skýrsla um tjaldsvæðagæslu á Fiskidaginn mikla
Tekin var fyrir skýrsla frá Ungmennafélagi Svarfdæla vegna gæslu á tjaldstæði Fiskidagsvikuna. Þar koma fram ýmsar hugmyndir að úrbótum og ósk um að Dalvíkurbyggð og Ungmennafélagið gangi tímanlega frá samningi sín á milli vegna gæslu á árinu 2012.
&nbsp;</DIV&gt;<EM&gt;Íþrótta- og æskulýðsráð mun fara enn frekar yfir skýrsluna og hugmyndir að úrbótum þegar nýr íþrótta- og æskulýðsfulltrúi hefur hafið störf.</EM&gt;</DIV&gt;
5.
Undirskriftarlisti frá börnum í Árskógarskóla. Ósk um sparkvöll
Tekinn var fyrir undirskriftarlisti frá börnum þar sem óskað er eftir sparkvelli við Árskógaskóla.
&nbsp;</DIV&gt;<EM&gt;Íþrótta- og æskulýðsráð þakkar börnunum fyrir listann og óskar eftir því við nýjan íþrótta- og æskulýðsfulltrúa aðhann &nbsp;skoði kostnað við sparkvöll. Jafnframt óskar íþrótta- og æskulýðsráð eftir því við bæjarstjórn að sparkvöllur verði settur inn í&nbsp; mögulegar breytingar á skólahaldi í Árskógi.</EM&gt;</DIV&gt;
6.
Önnur mál
a) Rætt var um hátíðarfund ráðsins en stefnt er á að hafa fundinn 29. desember nk. Formaður ráðsins ætlar að taka utan um undirbúning.</DIV&gt;