Fara í efni

Íþrótta- og æskulýðsráð

182. fundur
15. janúar 2026 kl. 08:15 - 10:00
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Elsa Hlín Einarsdóttir formaður
Sigríður Jódís Gunnarsdóttir varaformaður
Snævar Örn Ólafsson aðalmaður
Elísa Rún Gunnlaugsdóttir aðalmaður
Kristinn Bogi Antonsson aðalmaður
Starfsmenn
Jón Stefán Jónsson starfsmaður
Fundargerð ritaði:
Elsa Hlín Einarsdóttir Formaður íþrótta- og æskulýðsráðs
Dagskrá
1.
Samningur um byggingu reiðhallar
Málsnúmer 202509144
Íþrótta- og æskulýðsráð þakkar forsvarsmönnum Hrings fyrir góða kynningu og felur íþróttafulltrúa að vinna málið áfram í samráði við forsvarsmenn félagsins.
2.
Skólahreysti í 20 ár - ósk um styrk
Málsnúmer 202512029
Iþróttafulltrúa er falið að afla frekari upplýsingar um styrkbeiðnina hjá forsvarsmönnum Hreystismiðjunnar.
3.
Tilnefningar til íþróttamanns Dalvíkurbyggðar 2025
Málsnúmer 202511146
Samkvæmt reglum um kjör á íþróttamanni ársins eru það aðal- og varamenn í íþrótta- og æskulýðsráði sem kjósa til móts við kosningu íbúa.
Byrjað var á því að fara yfir og ræða allar tilnefningar. Kosning ráðsins fór fram á fundinum. Íbúakosningu er lokið