Fara í efni

Íþrótta- og æskulýðsráð

178. fundur
30. september 2025 kl. 08:15 - 10:15
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Elsa Hlín Einarsdóttir formaður
Snævar Örn Ólafsson aðalmaður
Jóhann Már Kristinsson varamaður
Starfsmenn
Gísli Bjarnason sviðsstjóri
Jón Stefán Jónsson starfsmaður
Fundargerð ritaði:
Gísli bjarnason Sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs
Dagskrá
1.
Gjaldskrárbreytingar íþróttamiðstöðvar 2025
Málsnúmer 202503110
Íþróttafulltrúi leggur til umræður og breytingar um gildissvið gjaldskrár íþróttamiðstöðvar 2025 og framvegis. 1. Litli salurinn og málefni honum tengdum. Gildissvið korta í líkamsrækt.2. Umræða um umönnunarkort og fylgdarmenn. 3. Umræða um gildissvið korta er varða börn sem eiga lögheimili utan Dalvíkurbyggðar en eiga foreldri búsett í sveitafélaginu.4. Uppfærsla á leigu á litla sal fyrir árið 2025 til samrýmis við áætlaða breytingu á gjaldskrá 2026.5. Gildissvið ÍB-korta.
Iþrótta - og æskulýðsráð samþykkir með þremur atkvæðum uppfærða gjaldskrá fyrir fjárhagsárið 2025.

1. Líkamsræktarkort gilda ekki í litla sal í íþróttahúsi.

2. Fylgdarmenn öryrkja, sem vegna líkamlegrar eða andlegrar getu eru ekki færir um að sækja sundlaugina einir, fá frían aðgang að sundlaug.

3. Tekið til umræðu.

4. Íþrótta - og æskulýðsráð samþykkir með þremur atkvæðum uppfærða gjaldskrá fyrir fjárhagsárið 2025.

5. Tekið til umræðu.
2.
Gjaldskrár 2026
Málsnúmer 202508069
Íþróttafulltrúi leggur fram uppfærða gjaldskrá Íþróttamiðstöðvar fyrir árið 2026 til samræmingar við umræður um gjaldskrá fyrir árið 2025.
Íþrótta - og æskulýðsráð samþykkir með þremur atkvæðum gjaldskrá Íþróttamannvirkja og félagsmiðstöðvar fyrir fjárhagsárið 2026.
3.
Starfs- og fjárhagsáætlun 2026-2029
Málsnúmer 202505063
Íþróttafulltrúi leggur fram starfsáætlun íþróttamiðstöðvar árið 2026. Einnig kynnir íþróttafulltrúi helstu áherslur í tengslum við áætlað viðhald, búnaðarkaup og þess háttar tengt íþróttamiðstöðinni.Jóna Guðbjörg Ágústsdóttir, frístundafulltrúi, fer yfir starfs - og fjárhagsáætlun Félagsmiðstöðina Dallas og Víkurröst.
Íþrótta - og æskulýðsráð samþykkir starfsáætlun íþróttamiðstöðvar með þremur atkvæðum. Íþrótta - og æskulýðsráð gera ekki athugasemdir við þá þætti sem tengjast fjárhagsáætlun fyrir fjárhagsárið 2026.

Íþrótta - og æskulýðsráð samþykkir starfsáætlun Félagsmiðstöðvar og Víkurröst með þremur atkvæðum fyrir fjárhagsáætlun fyrir fjárhagsárið 2026.
4.
Fjárhagsáætlun 2026; fjármögnun starfsmanns
Málsnúmer 202508068
Umræður um ósk UMFS um styrk til ráðningar starfsmanns fyrir félagið. Ljóst er að ekkert verður af því að UMSE og UMFS verði með sameiginlegan starfsmann og því þarf að endurmeta möguleikana.
Íþrótta - og æskulýðsráð er fylgjandi því að starfsmaður verði ráðinn og vísar málinu til Byggðaráðs Dalvíkurbyggðar í vinnu við fjárhagsáætlun fyrir fjárhagsárið 2026. Íþrótta - og æskulýðsráð óskar eftir að íþróttafulltrúi fylgir málinu eftir inn í Byggðaráð.
5.
Framkvæmdir íþróttamannvirkja Heildaráætlun 2024-2031
Málsnúmer 202509069
Íþróttafulltrúi leggur fyrir hugmyndir um breytingar á heildaráætlun framkvæmda íþróttamannvirkja fyrir árin 2025-2031.
Íþrótta - og æskulýðsráð samþykkir með þremur atkvæðum heildaráætlun um styrki til framkvæmda á íþróttamannvirkjum 2026 - 2031.
6.
Þróun á þátttöku í skipulögðu íþrótta og tómstundastarfi
Málsnúmer 202509145
Rætt um þróun iðkendafjölda í skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi í Dalvíkurbyggð.
Íþrótta - og æskulýðsráð felur íþróttafulltrúa að taka saman iðkendatölur og koma með þær upplýsingar inn á fund hjá ráðinu.