Fara í efni

Íþrótta- og æskulýðsráð

177. fundur
9. september 2025 kl. 08:15 - 11:15
í Múla á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Elsa Hlín Einarsdóttir formaður
Elísa Rún Gunnlaugsdóttir aðalmaður
Snævar Örn Ólafsson aðalmaður
Kristinn Bogi Antonsson aðalmaður
Freyr Antonsson varamaður
Starfsmenn
Gísli Bjarnason sviðsstjóri
Jón Stefán Jónsson starfsmaður
Fundargerð ritaði:
Gísli Bjarnason Sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs.
Dagskrá
1.
Gjaldskrárbreytingar íþróttamiðstöðvar 2025
Málsnúmer 202503110
Iþrótta - og æskulýðsráð samþykkir með fimm atkvæðum gjaldskrá í íþróttamiðstöð og félagsmiðstöð fyrir fjárhagsárið 2026.
þrótta - og æskulýðsráð samþykkir með fimm atkvæðum gjaldskrá í íþróttamiðstöð og félagsmiðstöð fyrir fjárhagsárið 2026.
2.
Fjárhagsáætlun 2026; ábendingar varðandi umhverfi og náttúru
Málsnúmer 202508048
Tekið fyrir erindi frá Ferðafélagi Svarfdæla dags. 11.08.2025.
Íþrótta - og æskulýðsráð þakkar Júlíusi Magnússyni fyrir góða kynningu. Íþrótta - og æskulýðsráð óskar eftir forgangsröðun og kostnaðarmati á þeim verkefnum sem snúa að íþrótta - og æskulýðsmálum.
3.
Fjárhagsáætlun 2026; beiðni um stuðning vegna umbótum á velli og aðstöðu
Málsnúmer 202508050
Tekið fyrir erindi frá GHD dags. 12.08.2025 - Beiðni um stuðning vegna umbóta á velli og aðstöðu.
Íþrótta - og æskulýðsráð samþykkir með fimm atkvæðum og fylgja þriggja ára áætlun og veita GHD 5.000.000 kr.styrk til framkvæmda og vísar málinu til vinnslu í fjárhagsáætlun 2026.
4.
Fjárhagsáætlun 2026; úrbætur og uppbygging á svæði við gervigrasvöllinn
Málsnúmer 202508054
Tekið fyrir erindi frá Knattspyrnudeild UMFS dags. 18.08.2025
Íþrótta - og æskulýðsráð tekur erindið inn í vinnu við uppbyggingaráætlun íþróttamannvirkja til þriggja ára.
5.
Fjárhagsáætlun 2026; fjármögnun starfsmanns
Málsnúmer 202508068
Erindi frá knattspyrnudeild um að ráða starfsmann hjá UMFS.
Málinu vísað inn í lið 7. 202507006
6.
Aðalstjórn UMFS óskar eftir styrk til ráðningar starfsmanns
Málsnúmer 202507006
Íþrótta - og æskulýðsráð óskar eftir að forsvarsmenn UMFS og UMSE kom inn á næsta fund hjá ráðinu.
7.
Knattspyrnudeild UMFS óskar eftir umbótum í Íþróttamiðstöð
Málsnúmer 202509049
Tekið fyrir erindi frá knattspyrnudeild UMFS. dags. 03.09.2025.
Íþrótta - og æskulýðsráð vísar málinu inn til Eigna - og framkvæmdadeildar í vinnu við fjárhagsáætlun 2026.
8.
Fjárhagsáætlun 2026 Kvennaráð knattspyrnudeildar UMFS óskar eftir styrk
Málsnúmer 202509050
Tekið fyrir erindi frá Meistaraflokki kvenna dags. 18.08.2025
Íþrótta - og æskulýðsráð samþykkir með fimm atkvæðum að styrkja meistaraflokk kvenna um 4.000.000 kr.
9.
Hvatagreiðslur Dalvíkurbyggðar
Málsnúmer 202109109
Hvatastyrkir teknir til umræðu.
Íþrótta - og æskulýðsráð samþykkir með fimm atkvæðum að hvatagreiðslu fyrir næsta fjárhagsár verði 45.000 kr.