Íþrótta- og æskulýðsráð
173. fundur
6. maí 2025
kl.
16:00
-
18:40
í félagsheimilinu Árskógi
Nefndarmenn
Elsa Hlín Einarsdóttir
formaður
Snævar Örn Ólafsson
aðalmaður
Kristinn Bogi Antonsson
aðalmaður
Freyr Antonsson
varamaður
Jóhann Már Kristinsson
varamaður
Starfsmenn
Gísli Bjarnason
sviðsstjóri
Jón Stefán Jónsson
starfsmaður
Fundargerð ritaði:
Gísli Bjarnason
Sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs.
Dagskrá
1.
Styrkumsókn vegna markakaupa
Aðalstjórn UMFS óskar eftir styrk að upphæð 2.264.840 kr til kaupa á sex mörkum á Dalvíkurvöll. Nokkur eldri mörk eru úr sér genginn og búnaðurinn mikilvægur til knattspyrnuiðkunar eins og gefur að skilja. Íþróttafulltrúi hefur gengið úr skugga um að gæði markanna og fjöldi er samkvæmt þörfum.
Iþrótta- og æskulýðsráð samþykkir með fimm atkvæðum að vísa málinu áfram til Byggðaráðs.
2.
Samstarf við CDalvík
Íþróttafulltrúi kynnir stöðu málsins og næstu skref ákveðin með tilliti til álits fjármála og stjórnsýslusviðs.
Lagt fram til kynningar
3.
Endurskoðun rekstrarsamnings UMFS vegna ÍB-korta
Íþróttafulltrúi fer yfir greinagerð vegna óska Knattspyrnudeildar UMFS um að hægt sé að kaupa klippikort í nafni félags.
Tillaga Íþróttafulltrúa um að bjóða upp á ÍB-klippikort á kr. 4.650 sem félög geti keypt í sínu nafni, lögð fram. Freyr Antonsson (D) lagði til að breyting yrði gerð á tillögunni í þá veru að kortin kosti 9.000 kr en ekki 4.650 kr. Íþrótta- og æskulýðsráð samþykkir tillöguna með breytingartillögu Freys Antonssonar með fimm atkvæðum. Málinu er vísað áfram til sveitastjórnar til umfjöllunar.
4.
Sumarvinna ungmenna
Staða 17 ára ungmenna er varðar sumarvinnu á vegum sveitarfélagsins rædd. En sem stendur virðist ekki vera sem að sveitarfélagið bjóði upp á vinnu fyrir 17 ára ungmenni.
Íþrótta- og æskulýðsráð samþykkir með fimm atkvæðum að boðið verði upp á sumarvinnu fyrir 17 ára börn í sveitarfélaginu. Ráðið felur Gísla Bjarnasyni, sviðsstjóra fræðslu- og menningarsviðs að skila tillögu um málið til sveitastjórnar. Vísað áfram.
5.
Ársreikningar íþróttafélaga 2024
Ársreikningar íþróttafélaga fyrir árið 2024 lagðir fram til kynningar fyrir ráðið.
Lagt fram til kynningar.
6.
Vorfundur íþróttafélaga 2025
Vorfundur með forsvarsmönnum íþróttafélaga í Dalvíkurbyggð árið 2025.
Mættir frá íþróttafélögum: Jón Bjarki (UMF Þ.SV), Jónas Pétursson,(Körfuboltadeild UMFS), Bjarni Valdimarsson (GHD), Elín Björk Unnarsdóttir (Sundfélagi Rán), Kristján Ólafsson (UMFS), Lilja Guðnadóttir (Hestamannafélagi Hringur), Kristinn Björnsson (Knattspyrnudeild UMFS), Marinó Þorsteinsson (UMF Reynir), Sigtryggur Hilmarsson (Skíðafélagi), Elísa Rán Ingvarsdóttir (Skíðafélagi).