Fara í efni

Íþrótta- og æskulýðsráð

172. fundur
1. apríl 2025 kl. 08:15 - 10:15
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Elsa Hlín Einarsdóttir formaður
Sigríður Jódís Gunnarsdóttir varaformaður
Snævar Örn Ólafsson aðalmaður
Kristinn Bogi Antonsson aðalmaður
Jóhann Már Kristinsson varamaður
Starfsmenn
Gísli Bjarnason sviðsstjóri
Jón Stefán Jónsson starfsmaður
Fundargerð ritaði:
Jón Íþróttafulltrúi
Dagskrá
1.
Sumarnámskeið 2025
Málsnúmer 202501152
Jóna Guðbjörg Ágústsdóttir, frístundafulltrúi kynnir stöðu verkefnisins og fer yfir gjaldskrá sumarnámskeiðanna 2025.
Íþrótta- og æskulýðsráð samþykkir gjaldskrá sumarfrístundar 2025 með fimm atkvæðum. Frístundafulltrúa er þakkað fyrir góða framsetningu málsins. Málinu er vísað til umræðu inni í Byggðaráði.
2.
Opnunartími Íþróttamiðstöðvar - sumar og vetraropnun
Málsnúmer 202412040
Iþróttafulltrúi kynnir hugmyndir um breyttan opnunartíma og vaktafyrirkomulag íþróttamiðstöðvar og starfsfólks hennar.
Íþrótta- og æskulýðsráð samþykkir með fimm atkvæðum breytingu á opnunartíma Íþróttamiðstöðvar frá og með 1.júlí 2025. Opnunartími verður endurskoðaður þegar marktækar aðgangstölur liggja fyrir.
3.
Samstarf við CDalvík
Málsnúmer 202411142
Íþróttafulltrúi kynnir stöðu málsins nú og þær hugmyndir sem fram hafa komið.
Lagt fram til kynningar
4.
Endurskoðun rekstrarsamnings UMFS vegna ÍB-korta
Málsnúmer 202502114
Íþróttafulltrúi fer yfir greinagerð sína um stöðu knattspyrnudeildar UMFS vegna ÍB-korta.
Íþrótta- og æskulýðsráðs leggur til að breytingar verði gerðar á gjaldskrá. Boðið verði upp á ÍB-kort til þriggja mánaða, sex mánaða og tólf mánaða.
5.
Vorfundur íþróttafélaga 2025
Málsnúmer 202503018
Undirbúningur og umræður vegna vorfundar íþróttafélaga í sem fram fer í byrjun maí.
Lagt fram til kynningar.
6.
Ársreikningur og ársskýrsla sundfélagsins Ránar 2024
Málsnúmer 202502079
Lagt fram til kynningar
7.
Sinfó í sundi ! - samfélagsgleði um allt land í lok ágúst
Málsnúmer 202503005
Tekið fyrir erindi frá Sinfóníuhljómsveit Íslands.
Íþrótta- og æskulýðsráð tekur jákvætt í erindið og felur Íþróttafulltrúa að vinna að málinu.
8.
Mánaðarlegar skýrslur 2025
Málsnúmer 202502075
Lagt fram til kynningar.