Fara í efni

Íþrótta- og æskulýðsráð

168. fundur
7. janúar 2025 kl. 08:15 - 09:45
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Elsa Hlín Einarsdóttir varaformaður
Elísa Rún Gunnlaugsdóttir aðalmaður
Snævar Örn Ólafsson aðalmaður
Kristinn Bogi Antonsson aðalmaður
Sigríður Jódís Gunnarsdóttir formaður
Starfsmenn
Gísli Bjarnason sviðsstjóri
Fundargerð ritaði:
Gísli Bjarnason Sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs
Dagskrá
1.
Íþróttamaður Dalvíkurbyggðar 2024
Málsnúmer 202412071
Samkvæmt reglum um kjör á íþróttamanni ársins eru það aðal- og varamenn í íþrótta- og æskulýðsráði sem kjósa til móts við kosningu íbúa.
Byrjað var á því að fara yfir og ræða allar tilnefningar. Kosning ráðsins fór fram á fundinum. Íbúakosningu er lokið.
2.
Erindi frá stjórn Ungmennasambands Eyjafjarðar
Málsnúmer 202412090
Tekið fyrir erindi frá Ungmennasambandi Eyjafjarðar
Íþrótta - og æskulýðsráð óskar eftir að fá forsvarsmenn UMSE inn á næsta fund hjá ráðinu. Afgreiðslu frestað.
3.
Opnunartími Íþróttamiðstöðvar - sumar og vetraropnun
Málsnúmer 202412040
Tekið fyrir minnisblað frá íþróttafulltrúa dags. 09.12.2024.
Íþrótta - og æskulýðsráð óskar eftir ítarlegri upplýsingum um fjöldatölur og nánari útfærslu á fyrirhuguðum opnunartímum.
4.
Rekstrarsamningur knattspyrnuvallar
Málsnúmer 202412041
Tekin fyrir tillaga íþróttafulltrúa að rekstrarsamningi varðandi gerfigrasvöll.
Lagt fram til kynningar
5.
Gjaldskrár 2025
Málsnúmer 202408083
b)lið vísað til íþrótta - og æskulýðsráð af sveitastjórn.b) Tillaga frá ungmennaráði.Á 44. fundi ungmennaráðs þann 28. nóvember sl. var eftirfarandi bókað:"Ungmennaráð leggur til að nemendum í framhaldsskóla og háskóla með lögheimili í Dalvíkurbyggð 50% afslátt af kortum í líkamsrækt."
Íþrótta - og æskulýðsráð samþykkir með fimm atkvæðum að nemar í að minnsta kosti 75% námi í framhaldsskóla og Háskóla með lögheimili í Dalvíkurbyggð fái 50% afslátt af kortum í líkamsrækt. Nemendur í grunnskóla í Dalvíkurbyggð frá 13 ára aldri fá sömu kjör. Íþrótta - og æskulýðsráð óskar eftir að íþróttafulltrúi komi með uppfærða gjaldskrá inn á næsta fund hjá ráðinu.