Fara í efni

Íþrótta- og æskulýðsráð

166. fundur
5. nóvember 2024 kl. 08:15 - 11:00
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Elsa Hlín Einarsdóttir varaformaður
Elísa Rún Gunnlaugsdóttir aðalmaður
Snævar Örn Ólafsson aðalmaður
Sigríður Jódís Gunnarsdóttir formaður
Jón Ingi Sveinsson varamaður
Starfsmenn
Gísli Bjarnason sviðsstjóri
Jón Stefán Jónsson starfsmaður
Jóna Guðbjörg Ágústsdóttir starfsmaður
Fundargerð ritaði:
Gísli Bjarnason Sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs
Dagskrá
1.
Heimsókn frá Ungmennaráði
Málsnúmer 202410136
Heimsókn frá Ungmennaráði og Jónu Guðbjörgu Ágústsdóttur, frístundafulltrúa Dalvíkurbyggðar.
Lárus Anton Freysson og Hákon Daði Magnússon mættu fyrir Ungmennaráð. Íþrótta - og æskulýðsráð þakkar þeim fyrir komuna.
2.
Félagsmiðstöð fyrir börn á miðstigi
Málsnúmer 202409101
Frístundafulltrúi kynnir hugmyndir um félagsmiðstöðvastarf fyrir börn á miðstigi.
Lagt fram til kynningar
3.
Samningar við íþróttafélögin frá 2025
Málsnúmer 202405219
Íþróttafulltrúi kynnti hugmyndir um samninga við Íþróttafélög sveitarfélagsins til fjögurra ára 2025-2028.
Íþrótta - og æskulýðsráð, vísar hugmyndum um samninga til umfjöllunar í Byggðaráði Dalvíkurbyggðar.
4.
Fríðindi og afslættir í Íþróttamiðstöð
Málsnúmer 202410134
Umræða um fríðindi og afslætti ýmissa hópa, samtaka og íþróttafélaga í Íþróttamiðstöðinni.
Íþrótta - og æskulýðsráð felur íþróttafulltrúa að koma með uppfærða gjaldskrá á næsta fund hjá ráðinu og koma með rökstuðning á fríðindum.
5.
Auglýsing fyrir umsóknir í afreks- og styrktarsjóð Dalvíkurbyggðar
Málsnúmer 202410141
Auglýsing fyrir umsóknir í afreks- og styrktarsjóð kynnt ráðinu.
Íþrótta - og æskulýðsráð leggur til að auglýsing í afreks - og styrktarsjóð fari í loftið 6. nóv. Umsóknarfrestur verði til 1. desember og miðað verði við þá dagsetningu framvegis. Ráðið ítrekar við formenn íþróttafélaga að koma upplýsingum til sinna félagsmanna.
6.
Efling almenningsíþrótta
Málsnúmer 202410095
Lagt fram til kynningar
7.
Nægjusamur nóvember
Málsnúmer 202409092
Lagt fram til kynningar
8.
Lýðheilsustefna Dalvíkurbyggðar
Málsnúmer 202410132
Hugmyndir um nýja lýðheilsustefnu Dalvíkurbyggðar kynntar
Lagt fram til kynningar
9.
Innleiðing laga um samþættingu þjónustu vegna farsældar barna
Málsnúmer 202206109
Lagt fram til kynningar. Íþrótta - og æskulýðsráð þakkar Gísla Bjarnasyni sviðstjóra fyrir kynningu.
10.
Heimsóknir til íþróttafélaga í Dalvíkurbyggð
Málsnúmer 202410135
Íþrótta- og æskulýðsráð heimsækir Hestamannafélagið Hring í aðstöðu félagsins í Hringholti.
Lagt fram til kynningar