Íþrótta- og æskulýðsráð
164. fundur
24. september 2024
kl.
08:15
-
10:55
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Elsa Hlín Einarsdóttir
varaformaður
Elísa Rún Gunnlaugsdóttir
aðalmaður
Snævar Örn Ólafsson
aðalmaður
Kristinn Bogi Antonsson
aðalmaður
Sigríður Jódís Gunnarsdóttir
formaður
Starfsmenn
Gísli Bjarnason
sviðsstjóri
Jón Stefán Jónsson
starfsmaður
Fundargerð ritaði:
Jón Stefán Jónsson
Íþróttafulltrúi
Dagskrá
1.
Fjárhagsáætlun 2025; Rafíþróttadeild - styrkur
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa ofangreindu erindi til íþrótta- og æskulýðsráðs í tengslum við vinnu við fjárhagsáætlun 2025 og þriggja ára áætlun 2026-2028.Byggðaráð óskar eftir að fá fullmótaða tillögu að afgreiðslu frá ráðinu.Minnt er á almennar reglur Dalvíkurbyggðar um styrkveitingar,https://www.dalvikurbyggd.is/static/files/Adalvefur/Reglugerdir/120320-styrkveitingar-almennar-reglur-dalvikurbyggdar.p
Íþrótta- og æskulýðsráð fagnar erindinu. Þörf er á skýrari framtíðarsýn og rekstraráætlun áður en ráðið getur tekið endanlega afstöðu til verkefnisins.
Íþróttafulltrúa er falið að upplýsa forsvarsmenn erindisins.
Íþróttafulltrúa er falið að upplýsa forsvarsmenn erindisins.
2.
Fjárhagsáætlun 2025; Frisbee golf - styrkur
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa ofangreindu erindi til íþrótta- og æskulýðsráðs í tengslum við vinnu við fjárhagsáætlun 2025 og þriggja ára áætlun 2026-2028.Byggðaráð óskar eftir að fá fullmótaða tillögu að afgreiðslu frá ráðinu.Minnt er á almennar reglur Dalvíkurbyggðar um styrkveitingar,https://www.dalvikurbyggd.is/static/files/Adalvefur/Reglugerdir/120320-styrkveitingar-almennar-reglur-dalvikurbyggdar.pdf
Íþrótta- og æskulýðsráð leggur til að byggður verður upp 9 holu frisbígolfvöllur með teigum í hentugu umhverfi fyrir slíka velli. Nú þegar eru þrjár holur við Árskógarskóla og þykir ráðinu því eðlilegt að byggja völlinn upp í nánasta umhverfi núverandi vallar. Mætti þá horfa sér í lagi til Brúarhvammsreits á Árskógsströnd.
3.
Aðalskipulag Dalvíkurbyggðar 2025-2045
Viðfangsefni við endurskoðun aðalskipulags lagt fram til kynningar og umræðu. Óskað er eftir tillögum ef ráð og nefndir vilja koma sérstökum málum að skipulagsvinnunni. Fylgiskjöl eru í möppunni "Fundagögn" undir málinu.
Lagt fram til kynningar.
4.
Fjárhagsáætlun 2025; Golfklúbburinn Hamar - styrkbeiðni v. framkvæmda
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa ofangreindu erindi til íþrótta- og æskulýðsráðs í tengslum við vinnu við fjárhagsáætlun 2025 og þriggja ára áætlun 2026-2028.Byggðaráð óskar eftir að fá fullmótaða tillögu að afgreiðslu frá ráðinu.Minnt er á almennar reglur Dalvíkurbyggðar um styrkveitingar,https://www.dalvikurbyggd.is/static/files/Adalvefur/Reglugerdir/120320-styrkveitingar-almennar-reglur-dalvikurbyggdar.p
Íþrótta- og æskulýðsráð samþykkir með fjórum atkvæðum að veita Golfklúbbnum Hamri framkvæmdastyrk að upphæð kr. 5.000.000 og vísar erindinu til fjárhagsáætlunar fyrir árið 2025.
5.
Starfs - og fjárhagsáætlun 2025 og þriggja ára áætlun 2026 - 2028
Tekin til umræðu
Lagt fram til kynningar.
6.
Gjaldskrár 2025
Lagt fram til kynningar og gjaldskrá verður lögð fyrir á næsta fundi ráðsins.
7.
Afnot íþróttafélaga að líkamsrækt
Tekið til umræðu
Íþrótta- og æskulýðsráð leggur til að afnot íþróttafélaga að líkamsrækt verði tekin upp við samningagerð við íþróttafélögin.
8.
Fjárhagsáætlun 2025; Infrarauður klefi
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa ofangreindu erindi til íþrótta- og æskulýðsráðs í tengslum við vinnu við fjárhagsáætlun 2025 og þriggja ára áætlun 2026-2028.Byggðaráð óskar eftir að fá fullmótaða tillögu að afgreiðslu frá ráðinu.
Íþrótta- og æskulýðsráð óskar eftir að íþróttafulltrúi setji fram nánari kostnaðaráætlun við verkið og leggji fram á næsta fundi.
9.
Jákvæð samskipti í Dalvíkurbyggð
Tekið til umræðu
Íþrótta- og æskulýðsráð vekur athygli á geðrækt og góðum samkiptum og tekur undir bókun félagsmálaráðs um jákvæðnisviku í Dalvíkurbyggð.
10.
Hjólabrettarampur í Dalvíkurbyggð
Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa ofangreindu erindi til íþrótta- og æskulýðsráðs til umfjöllunar í tengslum við vinnu við fjárhagsáætlun 2025 og þriggja ára áætlun 2026-2028.Byggðaráð óskar eftir að fá fullmótaða tillögu að afgreiðslu frá ráðinu.
Íþrótta- og æskulýðsráð óskar eftir að íþróttafulltrúi setji fram nánari kostnaðaráætlun við verkið og leggi fram á næsta fundi.
11.
Rekstur og viðhald hitakerfis á gervigrasvelli
Tekið fyrir erindi frá knattspyrnudeild UMFS dags. 19.09.2024
Íþrótta- og æskulýðsráð felur íþróttafulltrúa að skoða rekstrarsamning við UMFS varðandi gervigrasvöll. Mikilvægt er að skipta um dælu við gervigrasvöll sem fyrst og íþróttafulltrúa er falið að koma því verkefni í ferli.