Íþrótta- og æskulýðsráð
163. fundur
3. september 2024
kl.
08:15
-
10:40
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Elsa Hlín Einarsdóttir
varaformaður
Elísa Rún Gunnlaugsdóttir
aðalmaður
Kristinn Bogi Antonsson
aðalmaður
Sigríður Jódís Gunnarsdóttir
formaður
Starfsmenn
Gísli Bjarnason
sviðsstjóri
Fundargerð ritaði:
Gísli Bjarnason
Sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs
Dagskrá
1.
Starfsmannamál á íþrótta - og æskulýðssviði
Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs, upplýsir íþrótta - og æskulýðsráð um breytingar á starfsmannahaldi á íþrótta - og æskulýðssviði.
Íþrótta - og æskulýðsráð býður íþróttafulltrúa og frístundafulltrúa velkomna til starfa.
2.
Fjárhagsáætlun 2025; Frisbee golf - styrkur
Tekið fyrir erindi frá Snæþóri Arnþórssyni og Eyjólfi Unnarssyni, móttekið 19. ágúst sl., fyrir hönd óformlegs stofnaðs Frisbeegolfsambandi Dalvíkurbyggðar. Fram kemur sú ósk að á Dalvík verði Frisbeegolfvöllur í fullri kepnnisstærð. Samkvæmt uppýsingum frá FSÍ er kostnaður við 18 holu völl áætlaður um 14 m.kr. með virðisaukaskatti. Möguleiki væri í fyrstu atrennu að gera 9 brauta völl með möguleika á stækkun. Áætlaður kostnaður vegna uppsetningar á slíkum velli væri um 7 m.kr. með virðisaukaskatti en þá er ótalið hönnun, uppsetning á körfum, vönduðum heilsársteigum, skiltum og öðrum merkinguAfgreiðsla byggðaráðs Dalvíkurbyggðar: Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa ofangreindu erindi til íþrótta- og æskulýðsráðs í tengslum við vinnu við fjárhagsáætlun 2025 og þriggja ára áætlun 2026-2028.Byggðaráð óskar eftir að fá fullmótaða tillögu að afgreiðslu frá ráðinu.Minnt er á almennar reglur Dalvíkurbyggðar um styrkveitingar.
Íþrótta - og æskulýðsráð leggur til að íþróttafulltrúi skoði núverandi aðstæður í sveitarfélaginu á Árskógsströnd og komi með upplýsingar inn á næsta fund hjá ráðinu.
3.
Hjólabrettarampur í Dalvíkurbyggð
Tekið fyrir erindi frá Rúnari Áka Friðjónssyni, hjólabrettastrák dags.06.08.2024.Afgreiðsla byggðaráðs Dalvíkurbyggðar: Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa ofangreindu erindi til íþrótta- og æskulýðsráðs til umfjöllunar í tengslum við vinnu við fjárhagsáætlun 2025 og þriggja ára áætlun 2026-2028.Byggðaráð óskar eftir að fá fullmótaða tillögu að afgreiðslu frá ráðinu.
Íþróttafulltrúa er falið að skoða málið með sviðsstjóra og koma með tillögu inn á næsta fund hjá ráðinu.
4.
Fjárhagsáætlun 2025; Golfklúbburinn Hamar - styrkbeiðni v. framkvæmda
Tekið fyrir erindi frá Bjarna Jóhanni Valdimarssyni, formanni Golfklúbbsins Hamars, dagsett þann 5. ágúst sl, þar sem óskað er eftir styrk frá Dalvíkurbyggð vegna framkvæmda á Arnarholtsvelli, 25 m.kr. á árunum 2025-2028.Afgreiðsla byggðaráðs Dalvíkurbyggðar: Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa ofangreindu erindi til íþrótta- og æskulýðsráðs í tengslum við vinnu við fjárhagsáætlun 2025 og þriggja ára áætlun 2026-2028.Byggðaráð óskar eftir að fá fullmótaða tillögu að afgreiðslu frá ráðinu.Minnt er á almennar reglur Dalvíkurbyggðar um styrkveitingar.
Íþrótta - og æskulýðsráð óskar eftir að fá fulltrúa frá Golfklúbbnum Hamri inn á fund ráðsins með ítarlegri kostnaðaráætlun vegna fyrirhugaðra framkvæmda.
5.
Fjárhagsáætlun 2025; Infrarauður klefi
Tekið fyrir erindi frá Unni Valgeirsdóttur, dagsett þann 27. maí sl., þar sem Dalvíkurbyggð er hvött til að kaupa infrarauðan klefa í Íþróttamiðstöðina.Afgreiðsla Byggðaráðs Dalvíkurbyggðar: Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa ofangreindu erindi til íþrótta- og æskulýðsráðs í tengslum við vinnu við fjárhagsáætlun 2025 og þriggja ára áætlun 2026-2028. Byggðaráð óskar eftir að fá fullmótaða tillögu að afgreiðslu frá ráðinu.
Íþróttafulltrúa falið að skoða málið í tengslum við framkvæmdir og uppbyggingu á sundlaugarsvæði og koma með tillögu á næsta fund.
6.
Fjárhagsáætlun 2025; Ungbarnarólur - leikvellir
Tekið fyrir erindi frá Dagný Björk Sigurðardóttur, dagsett þann 6. ágúst sl, þar sem lagt er til að sett verði upp a.m.k. ein ungbarnaróla á einn af leikvöllum í bænum.Afgreiðsla byggðaráðs Dalvíkurbyggðar:Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa ofangreindu erindi til íþrótta- og æskulýðsráðs og umhverfis- og dreifbýlisráðs í tengslum við vinnu við fjárhagsáætlun 2025 og þriggja ára áætlun 2026-2028.Byggðaráð óskar eftir að fá fullmótaða og samræmda tillögu að afgreiðslu frá ráðunum. Byggðaráð minnir einnig á að móta þarf framtíðarsýn og tillögur að leikvöllum í sveitarfélaginu, bæði hvað varðar við stofnanir sveitarfélagisns og á opnum svæðum sem m.a. innihaldi fjölda, gerð, viðhalds- og endurnýjunaráætlun.
Íþrótta - og æskulýðsráð óskar eftir að vinnuhópur um leiksvæði með embættismönnum verði endurvakinn og komi með mótaða tillögu varðandi leiksvæði í Dalvíkurbyggð. Búið er að kaupa þrjár ungbarnarólur en eftir er að ákveða staðsetningu. Ráðið óskar eftir að þær verði settar upp sem fyrst.
7.
Fjárhagsáætlun 2025; ungbarnaróla - Hjarðarslóð eða Skógarhólar
Tekið fyrir erindi frá Kolbrúnu Svansdóttur, dagsett þann 17. ágúst sl, þar sem óskað er eftir að sett verði ungbarnaróla á leikvöllinn í Hjarðarslóð eða Skógarhólum.Afgreiðsla byggðaráðs Dalvíkurbyggðar: Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa ofangreindu erindi til íþrótta- og æskulýðsráðs og umhverfis- og dreifbýlisráðs í tengslum við vinnu við fjárhagsáætlun 2025 og þriggja ára áætlun 2026-2028. Byggðaráð óskar eftir að fá fullmótaða og samræmda tillögu að afgreiðslu frá ráðunum. Byggðaráð minnir einnig á að móta þarf framtíðarsýn og tillögur að leikvöllum í sveitarfélaginu, bæði hvað varðar við stofnanir sveitarfélagisns og á opnum svæðum sem m.a. innihaldi fjölda, gerð, viðhalds- og endurnýjunaráætlun.
Íþrótta - og æskulýðsráð óskar eftir að vinnuhópur um leiksvæði með embættismönnum verði endurvakinn og komi með mótaða tillögu varðandi leiksvæði í Dalvíkurbyggð. Búið er að kaupa þrjár ungbarnarólur en eftir er að ákveða staðsetningu. Ráðið óskar eftir að þær verði settar upp sem fyrst.
8.
Fjárhagsáætlun 2025; Skógarhólar, göngustígur og leikvöllur
Tekið fyrir erindi frá Margréti Ásgeirsdóttur, dagsett þann 6. ágúst sl, þar sem óskað er eftir að sett sé á áætlun frágangur á göngustíg við Skógarhóla 17 og umhverfi leikvallar við Skógarhóla.Afgreiðsla byggðaráðs Dalvíkurbyggðar: Byggðaráð samþykkir samhljóða að vísa ofangreindu erindi til umhverfis- og dreifbýlisráðs sem og til íþrótta- og æskulýðsráðs er varðar umhverfi leikvallar við Skógarhóla í tengslum við vinnu við fjárhagsáætlun 2025 og þriggja ára áætlun 2026-2028.Byggðaráð óskar eftir að fá fullmótaða og samræmda tillögu að afgreiðslu frá ráðunum er varðar leikvöllinn. Byggðaráð minnir einnig á að móta þarf framtíðarsýn og tillögur að leikvöllum í sveitarfélaginu, bæði hvað varðar við stofnanir sveitarfélagisns og á opnum svæðum sem m.a. innihaldi fjölda, gerð, viðhalds- og endurnýjunaráætlun.
Íþrótta - og æskulýðsráð óskar eftir að farið verði í skipulag og frágang á svæðinu í heild sem fyrst og sett inn í fjárhagsáætlun 2025.
9.
Gjaldskrár 2025
Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs, fer yfir gjaldskrá fyrir fjárhagsárið 2025.
Máli frestað til næsta fundar.
10.
Fjárhagsáætlun 2025; Rafíþróttadeild - styrkur
Tekið fyrir erindi frá Snæþóri Arnþórssyni og Gísla Þór Brynjólfssyni, móttekið þann 19. ágúst sl, þar fram kemur að þeira hafa mikinn áhuga á að stofna rafíþróttadeild í Dalvíkurbyggðar og eru þegar byrjaðir að skoða mögulegar lausnir í þeim efnum. Fram kemur að erfitt sé að segja til um nákvæman kostnað við upphaf svona starfsemi en bréfritarar telja að kaup á 10 tölvum og tilheyrandi búnaði muni nema á bilinu 5-6 m.kr. Óskað er eftir að fá að mæta á fund íþrótta- og æskulýðsráðs til að kynna hugmyndina.Afgreiðsla byggðaráðs Dalvíkurbyggðar: Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa ofangreindu erindi til íþrótta- og æskulýðsráðs í tengslum við vinnu við fjárhagsáætlun 2025 og þriggja ára áætlun 2026-2028.Byggðaráð óskar eftir að fá fullmótaða tillögu að afgreiðslu frá ráðinu.Minnt er á almennar reglur Dalvíkurbyggðar um styrkveitingar.
Íþrótta - og æskulýðsráð óskar eftir að fá nánari kynningu frá Snæþóri og Gísla inn á næsta fund hjá ráðinu.
11.
Svæðisstöðvar íþróttahéraða - Norðurland Eystra
Tekið fyrir bréf frá Ungmennafélagi Íslands dags. 27.08.2024
Lagt fram til kynningar
12.
Heimsóknir til íþróttafélaga og samstarf við Ungmennaráð
Tekið til umræðu heimsóknir íþrótta - og æskýðsráð til íþróttafélaga í Dalvíkurbyggð og samráð við ungmennaráð.
Íþróttafulltrúa falið að setja upp skipulag varðandi heimsóknir í samráði við íþróttafélög í Dalvíkurbyggð.