Fara í efni

Íþrótta- og æskulýðsráð

156. fundur
9. janúar 2024 kl. 08:15 - 00:00
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Jóhann Már Kristinsson formaður
Elsa Hlín Einarsdóttir varaformaður
Snævar Örn Ólafsson aðalmaður
Kristinn Bogi Antonsson aðalmaður
Sigríður Jódís Gunnarsdóttir varamaður
Starfsmenn
Gísli Rúnar Gylfason Starfsmaður
Gísli Bjarnason sviðsstjóri
Fundargerð ritaði:
Gísli Rúnar Gylfason Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi
Dagskrá
1.
Íþróttamaður Dalvíkurbyggðar 2023
Málsnúmer 202311014
Samkvæmt reglum um kjör á íþróttamanni ársins eru það aðal- og varamenn í íþrótta- og æskulýðsráði sem kjósa til móts við kosningu íbúa.
Byrjað var á því að fara yfir og ræða allar tilnefningar. Kosning ráðsins fór fram á fundinum. Íbúakosningu er lokið.
2.
Ósk um styrk vegna þátttöku á ólympíuleikum
Málsnúmer 202401032
Foreldrar Dags Ýmis Sveinssonar óska eftir styrk vegna þátttöku Dags vegna undirbúnings og þátttöku í Vetrarólympíuleikum ungmenna í Gangwon í S-Kóreu sem hann var valinn til að keppa á fyrir Íslands hönd í alpagreinum ásamt stúlku úr Víkingi nú í janúar.
Íþrótta- og æskulýðsráð getur ekki orðið við styrkbeiðninni að svo stöddu, ráðið bendir á að umsóknir vegna afreka árið 2024 verður hægt að sækja í afreks- og styrktarsjóð í lok árs. Alla jafna er sjóðurinn að styrkja fyrir afrek liðins árs og er það gert í desember ár hvert samkvæmt reglum afreks- og styrktarsjóðs íþrótta- og æskulýðsráðs.
3.
Uppbygging íþróttafélaga í Dalvíkurbyggð
Málsnúmer 202212136
Sveitarstjórn hefur samþykkt 70 milljónir í uppbyggingu íþróttasvæða íþróttafélaga í Dalvíkurbyggð árið 2024.
Íþrótta- og æskulýðsráð samþykkir samhljóða með 5 atkvæðum að leggja til við sveitarstjórn að þessu fjármagni verði skipt á milli félaga með eftirfarandi hætti árið 2024:
Skíðafélagið vegna troðarahúsnæðis: kr. 60.500.000.-
Hestamannafélagið Hringur vegna undirbúnings við reiðskemmu: kr. 3.000.000.-
Golfklúbburinn Hamar vegna viðhalds og framkvæmda á Arnarholtsvelli: kr. 6.500.000.-

Íþrótta- og æskulýðsfulltrúa falið að vinna drög að uppbyggingaráætlun til næstu 6 ára í takt við umræðu á fundinum og leggja fyrir ráðið á næsta fundi.
4.
Sundlaugamenning á skrá UNESCO - kallað eftir þátttöku sveitarfélaga
Málsnúmer 202312009
Nú stendur yfir vinna við tilnefningu sundlaugamenningar á skrá UNESCO yfir óáþreifanlegan menningararf mannkyns. Um er að ræða fyrstu sjálfstæðu tilnefningu Íslands á skrána en áður hefur Ísland, ásamt Norðurlöndunum, staðið að tilnefningu á handverki við smíði súðbyrðinga á skrána. Skrár UNESCO á sviði menningararfs hafa reynst mjög áhrifamiklar og felst í slíkri skrásetningu ákveðinn heiður og viðurkenning á viðkomandi hefð og sérstöðu hennar fyrir land og þjóð. Því er um að ræða stórt og mikilvægt skref að Ísland standi nú að tilnefningu á sundlaugamenningu.
Lagt fram til kynningar.
5.
Íslenskur ungmennafulltrúi á Sveitarstjórnarþingi Evrópuráðsins 2024
Málsnúmer 202312046
Sveitarstjórnarþing Evrópuráðsins stendur vörð um lýðræði og mannréttindi í sveitarfélögum og svæðum í aðilarríkjum ráðsins. Þingið kemur saman tvisvar á ári í Evrópuráðshöllinni í Strasbourg, Frakklandi. Þingfulltrúar eru kjörnir fulltrúar á sveitarstjórnarstigi.Ungmennafulltrúar, einn frá hverju aðildarríki, hafa síðustu 10 árin tekið þátt í þingum og eru nú orðnir ómissandi hluti af starfsemi þingsins.
Lagt fram til kynningar.
6.
Starfs- og fjárhagsáætlun 2024 og þriggja ára áætlun 2025-2027
Málsnúmer 202304162
Lögð fram drög að samningu við íþróttafélögin í Dalvíkurbyggð og UMSE yfir árið 2024.
Íþrótta- og æsklulýðsráð samþykkir samhljóða með 5 atkvæðum samningana eins og þeir liggja fyrir og vísar þeim til Byggðaráðs og sveitarstjórnar til samþykktar. Allar tölur í samningunum er búið að gera ráð fyrir í fjárhagsáætlun ársins.