Íþrótta- og æskulýðsráð
151. fundur
5. september 2023
kl.
08:15
-
09:45
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Jóhann Már Kristinsson
formaður
Elsa Hlín Einarsdóttir
varaformaður
Elísa Rún Gunnlaugsdóttir
aðalmaður
Snævar Örn Ólafsson
aðalmaður
Kristinn Bogi Antonsson
aðalmaður
Starfsmenn
Gísli Rúnar Gylfason
Starfsmaður
Gísli Bjarnason
sviðsstjóri
Fundargerð ritaði:
Gísli Rúnar Gylfason
Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi
Dagskrá
1.
Fjárhagsáætlun 2024; Ungbarnarólur á Dalvík
Byggðráð hefur heimilað kaup á tveimur nýjum ungbarnarólum sé svigrúm innan heimildar á fjárfestingaáætlun, lið 32200-leiktæki.
Þetta mál er komið á borð Eigna- og framkvæmdardeildar og verður klárað þaðan. Lagt fram til kynningar
2.
Fjárhagsáætlun 2024; Klefi í íþróttamiðstöð og vinda fyrir sundföt
Íþrótta- og æskulýðsráð þakkar erindið. Klefamál hafa verið í skoðun og er starfsfólk alltaf að leita leiða til að finna lausnir á klefamálum og þeim kröfum sem eru í nútímasamfélagi. Aðstæður eru hins vegar þannig að ekki er hægt að finna lausn á sér aðstöðu nema með framkvæmdum. Þetta þarf að skoða þegar og ef það verður farið í framkvæmdir við húsið í framtíðinni. Gert er ráð fyrir að kaupa sundfatavindur árið 2024.
3.
Gjaldskrár 2024
Rætt um gjaldskrár. Áframhaldandi vinna á næsta fundi.
4.
Fjárhagsátlun 2024; Færiband á skíðasvæðið í Böggvisfjalli
Byggðaráð hefur samþykkt að Dalvíkurbyggð er tilbúið að koma með krónu á móti hverri þeirri krónu sem Skíðafélagið safnar í styrki fyrir Töfrateppi en þó að hámarki kr. 10.000.000.
Lagt fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
5.
Sundlaugin á Dalvík - viðhald 2024
Fara þarf í töluvert viðhald á sundlaugarker, vaðlaugum og pottum næsta sumar.
Sviðsstjóri og íþrótta- og æskulýðsfulltrúi fóru yfir þær framkvæmdir sem framundan eru í sundlauginni á Dalvík.
6.
Ósk um aukið fjármagn - Skíðafélag Dalvíkur
Byggðaráð hefur samþykkt auka 8 milljón króna styrk til skíðafélagsins vegna rekstrarársins 2023.
Lagt fram til kynningar
7.
Samningar við íþróttafélög 2024-2027
Farið yfir samninga við íþróttafélögin sem renna út um áramót. Áframhaldandi vinna á næsta fundi.
8.
Heilsueflandi Dalvíkurbyggð - staða verkefnisins
Íþrótta- og æskulýðsráð mun hér eftir taka fyrir málefni tengd heilsueflandi samfélagi þar sem enginn stýrihópur er starfandi. Ráðið telur þá mikilvægt að lagt verði fjármagn í verkefnið í fjárhagsáætlun 2024 til að halda úti verkefnum sem hafa verið í gangi.
9.
Starfs- og fjárhagsáætlun 2024 og þriggja ára áætlun 2025-2027
Farið yfir starfsáætlun og næstu skref rædd varðandi skil á starfs- og fjárhagsáætlun næsta árs.