Fara í efni

Íþrótta- og æskulýðsráð

150. fundur
13. júní 2023 kl. 08:15 - 09:40
í Múla á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Jóhann Már Kristinsson formaður
Elsa Hlín Einarsdóttir varaformaður
Elísa Rún Gunnlaugsdóttir aðalmaður
Snæþór Arnþórsson varamaður
Starfsmenn
Gísli Rúnar Gylfason Starfsmaður
Gísli Bjarnason sviðsstjóri
Fundargerð ritaði:
Gísli Rúnar Gylfason íþrótta- og æskulýðsfulltrúi
Dagskrá
1.
Uppbygging íþróttafélaga í Dalvíkurbyggð
Málsnúmer 202212136
Samantekt á uppbyggingu troðaraaðstöðu í lok maí 2023:Skíðafélagið hefur spurt hvort það sé inn í myndinni að fara frekar í að gera hús sem er steypt og byggt inn í landið þannig byggingin falli betur að landslaginu. Þetta byggist á gömlum hygmyndum sem hafa verið ræddar með forsvarsmönnum skíðafélagsins.Skíðafélagið áætlar að það kosti 60 milljónir meira en að reisa stálgrindarhús. Það eru ekki til kostnaðaráætlanir eða teikningar af slíku húsi og er því ekki hægt að staðfesta þessar tölur. Það er í raun ekki til nægilegar upplýsingar til að meta þetta þannig að hægt sé að segja já á þessari stundu.Það sem þarf að gera er að taka afstöðu til þess hvort við samþykkjum að hluti af því uppbyggingarfjármagni sem hefur verið samþykkt til skíðafélagsins verði notað til að láta teikna og kostnaðargreina þessa byggingu.Byggðaráð samþykkti samhljóða með 3 atkvæðum á fundi sínum þann 8. júní sl. að hluti af því fjármagni sem hefur verið samþykkt til skíðafélagsins verði notað til þess að teikna og kostnaðargreina ofangreinda hugmynd.
Ofangreint til umræðu og upplýsinga.
2.
Starfs- og fjárhagsáætlun 2024 og þriggja ára áætlun 2025-2027
Málsnúmer 202304162
Farið var yfir starfsáætlun þessa árs fyrir íþrótta- og æskulýðsmál. Íþrótta- og æskulýðsráð fór yfir helstu áherslur við gerð starfs- og fjárhagsáætlunar. Rætt var um forgangsröðun verkefna.
3.
Íþróttavika Evrópu 2023 - UMSÓKN
Málsnúmer 202305108
Íþróttavika Evrópu 2023 verður 23.-30. september nk. Sveitarfélög geta sótt um fjárstyrk til ÍSÍ vegna úrfærslu á þátttöku sinni í íþróttavikunni. Rætt um hugmyndir að verkefnum og íþrótta- og æskulýðsfulltrúa falið að sækja um styrk vegna þessa.
4.
Frístund
Málsnúmer 202211126
Byggðaráð hefur samþykkt að óska eftir sameiginlegum fundi með fræðsluráði, íþrótta- og æskulýðsráði og sveitarstjórn til að ræða tillögur vinnuhópsins. Íþrótta- og æskulýðsráð tekur jákvætt í hugmyndir vinnuhópsins og telur brýnt að fundað verði sem fyrst.