Fara í efni

Íþrótta- og æskulýðsráð

148. fundur
4. apríl 2023 kl. 08:15 - 09:35
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Jóhann Már Kristinsson formaður
Elsa Hlín Einarsdóttir varaformaður
Elísa Rún Gunnlaugsdóttir aðalmaður
Snævar Örn Ólafsson aðalmaður
Kristín Kjartansdóttir aðalmaður
Starfsmenn
Gísli Rúnar Gylfason Starfsmaður
Gísli Bjarnason sviðsstjóri
Fundargerð ritaði:
Gísli Rúnar Gylfason Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi Dalvíkurbyggðar
Dagskrá
1.
Samningar við íþróttafélög 2024-2027
Málsnúmer 202302023
Farið var yfir samninga við íþróttafélögin í Dalvíkurbyggð. Samningar renna út um næstu áramót og stefnt er að því að vera búinn með vinnu við samnningana í haust svo hægt verði að koma kostnaði við þá tímanlega inn í vinnu við fjárhagsáætlun næsta árs.
Félögin hafa flest skilað inn athugsemdum og unnið var með þær athugasemdir á fundinum.
Grunnur að samningi með almennum ákvæðum verður lagður fram á vorfundi ráðsins með fulltrúum íþróttafélaga í Dalvíkurbyggð.
2.
Vorfundur íþrótta- og æskulýðsráðs 2023
Málsnúmer 202302022
Fundurinn verður haldinn 2. maí 2023 kl. 16:30.
Kristín Kjartansdóttir fór af fundinum kl. 9:25
3.
Erindi frá ADHD samtökunum - ósk um samstarf
Málsnúmer 202211108
Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi kynnti tillögur frá ADHD samtökunum um samtarfs.
kostnaður við hvert námskeið er kr. 80.000 og eru tillögur um þrjá hópa. Foreldra, ungmenni og starfsfólk. Að auki þarf að greiða fyrir ferðakostnað á staðinn.
Íþrótta- og æskulýðsráð leggur til að samið verði við ADHD samtökin um þessar þrjár fræðslur.