Íþrótta- og æskulýðsráð
147. fundur
7. mars 2023
kl.
08:15
-
09:10
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Jóhann Már Kristinsson
formaður
Elsa Hlín Einarsdóttir
varaformaður
Elísa Rún Gunnlaugsdóttir
aðalmaður
Kristín Kjartansdóttir
aðalmaður
Magni Þór Óskarsson
varamaður
Starfsmenn
Gísli Rúnar Gylfason
Starfsmaður
Gísli Bjarnason
sviðsstjóri
Fundargerð ritaði:
Gísli Rúnar Gylfason
Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi Dalvíkurbyggðar
Dagskrá
1.
yfirferð starfsáætlunar 2023 - íþrótta- og æskulýðsmál
Farið var yfir starfsáætlun ársins og rætt um stöðu málaflokksins í heild.
2.
Erindi frá ADHD samtökunum - ósk um samstarf
Sveitarstjórn samþykkti á fundi þann 17.01.2023 að erindinu verði vísað til frekari skoðunar í íþrótta- og æskulýðsráði og ungmennaráði og til kostnaðargreiningar þar.
Tillögur og hugmyndir liggja fyrir frá ADHD samtökunum ásamt kostnaði við ýmsar útfærslur. Íþrótta- og æskulýðsráð felur íþrótta- og æskulýðsfulltrúa að vinna frekar að málinu í samræmi við umræðu á fundinum og leggja fram tillögur fyrir næsta fund.
3.
Vorfundur íþrótta- og æskulýðsráðs 2023
Búið er að óska eftir tillögum frá íþróttafélögunum um fundarefni. Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi mun verða með kynningu og umræðu um Sportabler á vorfundinum. Nánar til umræðu á næsta fundi ráðsins.
4.
Samningar við íþróttafélög 2024-2027
Búið er að senda á íþróttafélögin ósk um athugsemdir við núverandi samninga. Óskað er eftir því að þau skili inn athugasemdum eigi síðar en 30. mars nk. Málið verðu tekið upp aftur á næsta fundi ráðsins.
5.
Geymsluhúsnæðið Hreiður
Ekki liggur enn fyrir kostnaðarmat og málinu frestað til næsta fundar.