Íþrótta- og æskulýðsráð
125. fundur
1. desember 2020
kl.
08:15
-
09:20
í fjarfundi
Nefndarmenn
Þórunn Andrésdóttir
formaður
Jóhann Már Kristinsson
varaformaður
Gunnar Eiríksson
aðalmaður
Magni Þór Óskarsson
aðalmaður
Eydís Arna Hilmarsdóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Gísli Rúnar Gylfason
Starfsmaður
Gísli Bjarnason
sviðsstjóri
Fundargerð ritaði:
Gísli Rúnar Gylfason
Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi
Dagskrá
1.
Til umsagnar tillaga til þingsályktunar um mótun heildstæðrar stefnu um afreksfólk í íþróttum, 81. mál.
Lögð fram tillaga til þingsályktunar um mótun heildstæðrar stefnu um afreksfólk í íþróttum. Alþingi ályktar að fela mennta- og menningarmálaráðherra að móta heildstæða stefnu um afreksfólk í íþróttum í samvinnu við Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands og sveitarfélögin. Stefnan verði tímasett samhliða því að tryggður verði fjárhagslegur stuðningur við afreksfólk. Ráðherra leggi fram á Alþingi tímasetta stefnu um afreksfólk í íþróttum fyrir 1. júní 2021
Íþrótta- og æskulýðsráð gerir ekki athugsemdir við þingsályktunina og fagnar því að stefnt skuli að því að gera heildstæða stefnu um afreksfólk í íþróttum.
2.
Umsóknir um styrk úr afreks- og styrktarsjóði 2020
Teknar voru fyrir umsóknir í afreks- og styrktarsjóð íþrótta- og æskulýðsráðs Dalvíkurbyggðar vegna ársins 2020.
Alls bárust fjórar umsóknir fyrir tilsettan frest.
a) Ingvi Örn Friðriksson vegna ástundunar og árangurs í kraftlyftingum
Íþrótta- og æskulýðsráð samþykkir samhljóða með 5 atkvæðum að styrkja Ingva Örn um kr. 250.000.- og vísar því á lið 06-80.
b) Þormar Ernir vegna ástundunar og árangurs á sviði æskulýðs- og félagsmála
Íþrótta- og æskulýðsráð samþykkir samhljóða með 5 atkvæðum að styrkja Þormar um kr. 50.000.- og vísar því á lið 06-80.
c) Barna- og unglingaráð knattspyrnudeildar vegna helgarnámskeiðs hjá knattspyrnuakademíu Norðurlands
Íþrótta- og æskulýðsráð samþykkir samhljóða með 4 atkvæðum að styrkja Barna- og unglingaráð um kr. 300.000.- og vísar því á lið 06-80.
d) Skíðafélag Dalvíkur vegna uppbyggingar skíðagönguíþróttarinnar í Dalvíkurbyggð
Íþrótta- og æskulýðsráð samþykkir samhljóða með 5 atkvæðum að styrkja Skíðafélagið um kr. 300.000.- og vísar því á lið 06-80.
Gunnar Eiríksson vék af fundi undir lið c)
þrjár umsóknir bárust eftir umsóknarfrestinn og er þeim umsóknum hafnað og þær ekki teknar til efnislegrar meðferðar.

3.
Stöðumat íþrótta- og æskulýðsmál: janúar - september 2020
Gísli Rúnar Gylfason, íþrótta- og æskulýðsfulltrúi fór yfir fjárhagslegt stöðumat fyrir málaflokk 06.
4.
íþrótta- og tómstundastyrkir til barna á lágtekjuheimilum
Opnað hefur verið fyrir umsóknir á sérstökum íþrótta- og tómstundastyrk vegna áhrifa af Covid-19. Upplýsingar er að finna á heimasíðu Dalvíkurbyggðar.
Lagt fram til kynningar.