Íþrótta- og æskulýðsráð
124. fundur
10. nóvember 2020
kl.
08:15
-
09:00
í fjarfundi
Nefndarmenn
Þórunn Andrésdóttir
formaður
Jóhann Már Kristinsson
varaformaður
Magni Þór Óskarsson
aðalmaður
Eydís Arna Hilmarsdóttir
aðalmaður
Sigríður Jódís Gunnarsdóttir
varamaður
Starfsmenn
Gísli Rúnar Gylfason
Starfsmaður
Gísli Bjarnason
sviðsstjóri
Fundargerð ritaði:
Gísli Rúnar Gylfason
Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi
Dagskrá
1.
Staða íþróttafélaga vegna COVID19
Byggðaráð samþykkti á fundi sínum eftirfarandi tillögur íþrótta- og æskulýðsfulltrúa og Sviðsstjóra fræðslu- og menningarsviðss:a) Skíðafélag Dalvíkur: Í ljósi þess að óvissan er mjög mikil, þá er lagt til að félagið fái fjármagn af áætlun 2021 (5.000.000) greitt fyrir áramót til að félagið geti staðið við skuldbindingar vegna launa og annars reksturs fram að áramótum. Þessa greiðslu þyrfti að greiða á næstu dögum. Félagið leiti leiða til að halda rekstrarkostnaði í lágmarki í vetur og í lok vetrar verði staðan tekin til að meta hvort og þá hversu mikið vanti upp á reksturinn til að klára árið 2021 (þ.e. hefja vertíðina að hausti 2021).b) Barna- og unglingaráð UMFS (knattspyrna): Dalvíkurbyggð mun ekki styrkja Barna- og unglingaráð þar sem félagið mun fá styrk/greiðslu frá aðalstjórn UMFS. c) Sundfélagið Rán: Félagið fái niðurfellt 50% af leigu á sundlauginni í ljósi þess að aðstaðan hefur ekki verið til staðar hluta af ári og félagið finni aðrar leiðir til að brúa bilið, s.s. með minni útgjöldum eða auknum fjáröflunum. d) Blakfélagið Rimar: Ekki þarf að leggja neitt til, þar sem umsóknin er dregin til baka. e) Dalvík/ Reynir - rekstur knattspyrnuvallar: Lagt til að árið 2021 verði styrkupphæð í samningi óbreytt (þrátt fyrir lægri útgjöld árið 2020 en gert var ráð fyrir, en þar er vissulega fyrirvari á því). Við teljum ekki vera tímann núna til að auka stöðugildi og leggjum því til að þessari umræðu um starfsmann verði frestað um eitt ár og staðan tekin við gerð fjárhagsáætlunar 2022.
Lagt fram til kynningar.
2.
Umsóknir um styrk úr afreks- og styrktarsjóði 2020
Auglýsa þarf eftir umsóknum í afreks- og styrktarsjóð. Með fundarboði fylgdu drög að auglýsingu.
Íþrótta- og æskulýðsráð samþykkir samhljóða með 4 atkvæðum að fela íþrótta- og æskulýðsfulltrúa að auglýsa eftir umsóknum þar sem umsóknarfrestur verður til og með 26. nóvember. Umsóknirnar verða teknar fyrir á fundi ráðsins 1. desember nk.
3.
Íþróttamaður Dalvíkurbyggðar 2020
Undirbúa þarf kjör og lýsingu á íþróttamanni ársins í ljósi þess að við búum alla jafna við takmarkanir á samkomum vegna kórónuveirufaraldurs.
Umræða fór fram á fundinum um útfærslu og mögulegar leiðir til að lýsa kjörinu með rafrænum hætti. Talið best að vinna út frá því að takmarkanir verði umtalsverðar og taka svo ákvörðun um endanlega útfærslu miðað við aðstæður og þær takmarkanir sem við búum við í janúar. Einnig þarf að huga að því með hvaða hætti aðal- og varamenn í íþrótta- og æskulýðsráði kjósi ef það þarf að gerast í fjarfundi.
Íþrótta- og æskulýðsfulltrúa falið að vinna að undirbúning í samræmi við umræðu.
Íþrótta- og æskulýðsfulltrúa falið að vinna að undirbúning í samræmi við umræðu.
4.
Lýðheilsustefna Dalvíkurbyggðar
Dalvíkurbyggð hefur ekki sett sér heildstæða stefnu í lýðheilsumálum. Ræða þarf hvort og þá með hvaða hætti slík stefna verði gerð.
Íþrótta- og æskulýðsráð leggur til að lagt verði af stað í gerð lýðheilsustefnu. Þar verði sérstaklega hugað að hlutverki og tilgangi heilsueflandi samfélagi í Dalvíkurbyggð.
Samþykkir samhljóða með 5 atkvæðum.
Samþykkir samhljóða með 5 atkvæðum.
5.
Tillögur menningarfulltrúa landshlutanna að aðgerðum á sviði menningar og lista innan stefnumótandi byggðaáætlunar 2018-2024
Lagðar fram til kynningar tillögur menningarfulltrúa landshlutanna að aðgerðum á sviði menningar og lista innan stefnumótandi byggðaáætlunar 2018-2024 - 202011045