Fara í efni

Íþrótta- og æskulýðsráð

110. fundur
2. apríl 2019 kl. 08:15 - 09:45
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Þórunn Andrésdóttir formaður
Gunnar Eiríksson aðalmaður
Magni Þór Óskarsson aðalmaður
Jónína Guðrún Jónsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
Gísli Rúnar Gylfason Starfsmaður
Fundargerð ritaði:
Gísli Rúnar Gylfason Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi
Dagskrá
1.
Starfsemi og rekstur Dalvíkurbyggðar - vinnuhópar
Málsnúmer 201901038
Á 899. fundi byggðaráðs þann 7. mars 2019 var meðal annars eftirfarandi bókað. "Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa ofangreindum tillögum til fagráðanna eftir því sem við á til umfjöllunar, sem trúnaðarmál á vinnslustigi." Lagðar fram tilögur vinnuhóps sem fór yfir íþrótta- og æskulýðsmál.
Íþrótta- og æskulýðsráð leggur til að fundir ungmennaráðs verði ekki fækkað meira en niður í 8 fundi á ári.
Íþrótta- og æskulýðsráð er mótfallið því að tóna niður viðburðinn um kjör á íþróttamanni ársins. Þetta er uppskeruhátíð íþrótta-og afreksfólks í sveitarfélaginu og því mikilvægt að viðburðinum verði sýndur sómi og vel gert við gesti.
2.
Reglur hjólabrautar
Málsnúmer 201902081
Á 21. fundi Ungmennaráðs var eftirfarandi bókað: "Ráðið yfirfór reglur um hjólabrautina við Dalvíkurskóla og lagði til nokkrar orðalagsbreytingar á reglunum. Aðeins var samþykkt ein efnisleg breyting, en það var að fækka hámarks fjölda í brautinni úr sex í fjóra"Reglurnar lagðar fram til umræðu og staðfestingar ráðsins.
Íþrótta- og æskulýðsráðs samþykkir reglurnar eins og þær koma fyrir fundinn og leggur til að bætt verði við að á skólatíma séu reiðhjól ekki leyfð, þar sem það samræmist reglum skólans.
3.
Reglur um afreks- og styrktarsjóð íþrótta- og æskulýðsráðs
Málsnúmer 201702032
Farið yfir þær athugasemdir sem bárust. Aðeins skíðafélag Dalvíkur sendi inn athugsemdir.
Íþrótta- og æskulýðsráð samþykkir að taka umræðu um reglurnar með fulltrúum íþróttafélaga í Dalvíkurbyggð á vorfundi ráðsins í maí.
4.
Fundargerðir stýrihóps um heilsueflandi samfélag 2019
Málsnúmer 201903010
Fundargerð stýrihóps um heilsueflandi samfélag lögð fram til kynningar.
5.
Samningar við íþróttafélög 2020-2023
Málsnúmer 201901024
Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi hefur verið í sambandi við íþróttafélögin í Dalvíkurbyggð frá síðasta fundi ráðsins. Hann gerði grein fyrir þeim athugasemdum sem komið hafa.
Íþrótta- og æskulýðsráð samþykkir að taka umræðu um samningana með fulltrúum íþróttafélaga í Dalvíkurbyggð á vorfundi ráðsins í maí.
6.
Uppbyggingaráform íþróttafélaga í Dalvíkurbyggð
Málsnúmer 201903135
Lagðar fram áætlanir Hestamannafélagins Hrings og Skíðafélags Dalvíkur um framtíðaruppbyggingu félaganna til næstu ára.
Umræða um framtíðaruppbyggingu mannvirkja íþróttafélaga í Dalvíkurbyggð. Vísað til vinnu við gerð fjárhagsáætlunar í haust.
7.
Yfirferð starfsáætlunar 2019 - íþrótta- og æskulýðsmál
Málsnúmer 201903136
Samkvæmt verk- og tímaáætlun er tímabært að fara yfir starfsáætlun fyrir árið 2019.
Yfirferð frestað til næsta fundar.