Fara í efni

Íþrótta- og æskulýðsráð

108. fundur
5. febrúar 2019 kl. 08:15 - 10:00
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Þórunn Andrésdóttir formaður
Jóhann Már Kristinsson varaformaður
Gunnar Eiríksson aðalmaður
Magni Þór Óskarsson aðalmaður
Jónína Guðrún Jónsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
Gísli Rúnar Gylfason Starfsmaður
Fundargerð ritaði:
Gísli Rúnar Gylfason Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi
Dagskrá
1.
Reglur um afreks- og styrktarsjóð íþrótta- og æskulýðsráðs
Málsnúmer 201702032
Í framhaldi af úthlutun íþrótta- og æskulýðsráð úr afreks- og styrktarsjóði var ákveðið að yfirfara reglur um styrktarsjóð íþrótta- og æskulýðsráðs og vinnureglur tengdar þeim.
Ráðið samþykkir með 5 atkvæðum að þau drög sem unnin voru á fundinum verði send íþróttafélögum í Dalvíkurbyggð til umsagnar og reglurnar svo teknar upp til umræðu á vorfundi íþrótta- og æskulýðsráðs. Frekari afgreiðslu frestað.
2.
Heilsueflandi samfélag
Málsnúmer 1809078
Farið yfir stöðuna á verkefninu Heilsueflandi samfélag. Verið er að skipa nýjan vinnuhóp og verður vinnuhópurinn kallaður saman við fyrsta tækifæri.
Lagt fram til kynningar.
3.
Starfsemi Víkurrastar / félagsmiðstöðvar vor 2019
Málsnúmer 201902016
Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi gerði grein fyrir starfsemi félagsmiðstöðvarinnar og breytingum sem gerðar hafa verið á starfi íþrótta- og æskulýðsfulltrúa. Nú sinnir íþrótta- og æskulýðsfulltrúi a.m.k. tveimur opnunum í viku og stýrir klúbbastarfi félagsmiðstöðvarinnar.
Íþrótta- og æskulýðsráð fagnar aukinni áherslu á starfsemi félagsmiðstöðvar.
4.
Ungmennaráð Dalvíkurbyggðar 2019-2021
Málsnúmer 201902017
íþrótta- og æskulýðsfulltrúi gerði grein fyrir ungmennaþingi sem haldið var í janúar. Á því þingi var kosið nýtt ungmennaráð til næstu tveggja ára.Eftirtaldir aðilar voru kosnir inn í ungmennaráð Dalvíkurbyggðar 2019-2021Daníel RosazzaMagnús RosazzaRebekka Ýr DavíðsdóttirÞormar Ernir GuðmundssonÞröstur Ingvarsson
Lagt fram til kynningar.
5.
Verk- og tímaáætlun íþrótta- og æskulýðsráðs
Málsnúmer 201902018
Rætt um mikilvægi þess að gera verk- og tímaáætlun íþrótta- og æskulýðsráðs. Einnig rætt hvað eigi heima í slíkri áætlun, s.s. á hvaða tíma skuli auglýsa eftir styrkjum í afreks- og styrktarsjóð, vorfundur íþrótta- og æskulýðsráðs sem og aðrir fastir árlegir liðir.
íþrótta- og æskulýðsfulltrúa er falið að vinna að tíma- og verkáætlun fyrir íþrótta- og æskulýðsráð. Gert er ráð fyrir því að áætlunin verði tilbúin fyrir næsta fund ráðsins.