Framkvæmdaráð
8. fundur
23. september 2026
kl.
13:30
-
15:50
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Katrín Sif Ingvarsdóttir
formaður
Sigurlaug Dóra Ingimundardóttir
varaformaður
Emil Júlíus Einarsson
aðalmaður
Birta Dís Jónsdóttir
varamaður
Garðar Hrafn Sigurjónsson
aðalmaður
Starfsmenn
María Markúsdóttir
skipulagsfulltrúi
Helga Íris Ingólfsdóttir
deildarstjóri
Fundargerð ritaði:
María Markúsdóttir
Skipulagsfulltrúi
Dagskrá
1.
Hesthúsasvæði Hringsholti - nýtt deiliskipulag
Auglýsingu tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir hesthúsasvæði í Hringsholti lauk þann 6.september sl.
Umsagnir bárust frá Vegagerðinni, veitum Dalvíkurbyggðar, Hestamannafélaginu Hring, Heilbrigðiseftirliti Norðurlands eystra, Rarik og Minjastofnun Íslands. Ein athugasemd barst og er hún lögð fram ásamt tillögu að viðbrögðum.

Framkvæmdaráð leggur til við sveitarstjórn að hún samþykki tillögu að deiliskipulagi hesthúsasvæðis í Hringsholti skv. 3.mgr. 41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 með eftirfarandi breytingum eftir auglýsingu:
- Bíla- og geymslustæði verða skilgreind innan lóða.
- Afmörkuð verður lóð undir reiðvöll.
- Lengd gæðingavallar minnkuð á uppdrætti til samræmis við umsögn Hestamannafélagsins Hrings.
- Greinargerð verður uppfærð til samræmis við umsagnir veitna Dalvíkurbyggðar og Heilbrigðiseftirlits Norðurlands eystra.
- Vegtenging niður að námu verður afnumin.
- Gera skal grein fyrir útfærslu á fyrirhugaðri landnotkun innan Hrafnsstaðakots í greinargerð.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.

2.
Hafnarsvæði Árskógssandi - nýtt deiliskipulag
Lögð fram tillaga á vinnslustigi að nýju deiliskipulagi fyrir hafnarsvæði á Árskógssandi, unnin af Teiknistofunni Landslagi ehf.
Framkvæmdaráð felur skipulagsfulltrúa að vinna áfram að tillögu á vinnslustigi í samvinnu við skipulagshönnuði.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
3.
Athafnasvæði ofan Árskógssands - nýtt deiliskipulag
Skipulagsfulltrúi leggur til að unnið verði nýtt deiliskipulag fyrir athafnasvæði ofan Árskógssands til að koma til móts við eftirspurn eftir athafnalóðum í Dalvíkurbyggð. Í nýju Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2025-2045 er umrætt svæði skilgreint sem athafnasvæði AT-805, þar sem gert er ráð fyrir plássfrekri og lítt mengandi starfsemi eins og gagnaveri, vörugeymslum og matvælaiðnaði.
Framkvæmdaráð leggur til við sveitarstjórn að hafin verði vinna við gerð deiliskipulags fyrir athafnasvæði ofan Árskógssands skv. 40.-42.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
4.
Athafnasvæði við Melbrún - nýtt deiliskipulag
Skipulagsfulltrúi leggur til að unnið verði nýtt deiliskipulag fyrir athafnasvæði við Melbrún til að koma til móts við eftirspurn eftir athafnalóðum í Dalvíkurbyggð. Í nýju Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2025-2045 er umrætt svæði skilgreint sem athafnasvæði AT-812, þar sem gert er ráð fyrir atvinnustarfsemi þar sem lítil hætta er á mengun.
Framkvæmdaráð leggur til við sveitarstjórn að hafin verði vinna við gerð deiliskipulags fyrir athafnasvæði við Melbrún skv. 40.-42.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
5.
Bárugata 10 - umsókn um svalabyggingu
Erindi dagsett 15.september 2026 þar sem Ingvar Páll Jónsson sækir um stækkun svala við íbúðarhús á lóð nr. 10 við Bárugötu.
Ekki er í gildi deiliskipulag á svæðinu.
Meðfylgjandi er útlitsteikning.
Ekki er í gildi deiliskipulag á svæðinu.
Meðfylgjandi er útlitsteikning.
Katrín Sif Ingvarsdóttir bar upp vanhæfi við afgreiðslu málsins og var það samþykkt. Vék hún af fundi undir umræðum og við afgreiðslu máls.
Framkvæmdaráð samþykkir að grenndarkynna áformin skv. 44.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Grenndarkynnt skal fyrir lóðarhöfum Bárugötu 5, 6, 7, 8, 9, 11, 12 og 13.
Samþykkt samhljóða með fjórum atkvæðum.

6.
Birkihólar 1-3 - umsókn um lóð
Erindi dagsett 10.september 2026 þar sem Helgi Halldórsson f.h. Vélvirkja ehf. sækir um lóð nr. 1-3 við Birkihóla.
Framkvæmdaráð samþykkir erindið. Deiliskipulagsskilmálar ásamt almennum byggingarskilmálum gilda.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
7.
Hlíðartröð 3 (Hamarkot A2b) - umsókn um framkvæmdafrest
Erindi dagsett 9.september 2026 þar sem Jóhann Garðar Þorbjörnsson sækir um framkvæmdafrest á frístundalóð nr. 3 við Hlíðartröð í landi Hamars. Upphaflegur frestur er til 8.október 2026.
Sótt er um framlengdan frest til þriggja mánaða.
Sótt er um framlengdan frest til þriggja mánaða.
Garðar Hrafn Sigurjónsson bar upp vanhæfi við afgreiðslu málsins og var það samþykkt. Vék hann af fundi undir umræðum og við afgreiðslu máls.
Framkvæmdaráð samþykkir að veita framlengdan frest til þriggja mánaða.
Samþykkt samhljóða með fjórum atkvæðum.
Framkvæmdaráð samþykkir að veita framlengdan frest til þriggja mánaða.
Samþykkt samhljóða með fjórum atkvæðum.
8.
Fjárhagsáætlun 2027 - hundasvæði
Á fundi byggðaráðs þann 20.ágúst sl. var tekið fyrir erindi frá íbúa varðandi uppbyggingu hundasvæðis og var erindinu vísað áfram til viðeigandi fagráða.
Í erindinu er lagt til að hundasvæði verði útbúið á túni sunnan við íþróttamiðstöð eða á gamla fótboltavellinum.
Í erindinu er lagt til að hundasvæði verði útbúið á túni sunnan við íþróttamiðstöð eða á gamla fótboltavellinum.
Framkvæmdaráð samþykkir að staðsetja afgirt hundasvæði í móunum sunnan við íþróttamiðstöð og vísar erindinu til vinnu við fjárhagsáætlun fyrir árið 2027.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
9.
Fjárhagsáætlun 2027 - erindi frá íbúaráði Árskógssands
Á fundi byggðaráðs þann 20.ágúst sl. var tekið fyrir erindi frá íbúaráði Árskógssands varðandi ýmis málefni á svæðinu og var erindinu vísað áfram til viðeigandi fagráða.
Framkvæmdir við gangstétt og lýsingu meðfram Aðalbraut munu fylgja uppbyggingu á nýdeiliskipulagöðu íbúðarhverfi.
Merkingu á gangstéttarbrún meðfram Ægisgötu er vísað til meðferðar á Eigna- og framkvæmdadeild.
Gangstétt og lýsing meðfram Árskógssandsvegi er á forræði Vegagerðarinnar og verður ábendingu þar um komið þangað.
Gler í biðskýli skólarútu er í pöntun og verður skipt um það á næstunni.
Hraðamerkingum verður fjölgað í öllum þéttbýliskjörnum Dalvíkurbyggðar árið 2027.
Framkvæmdum við bakka vestan við hafnarsvæði er vísað til meðferðar á Eigna- og framkvæmdadeild.
Beiðni um drenun á túni ofan við Öldugötu er hafnað en því er beint til Eigna- og framkvæmdadeildar að fylgjast með vatnssöfnun á svæðinu.
Verið er að vinna áætlun um útrýmingu ágengra plantna eins og lúpínu, kerfils og njóla.
Beiðni um flotbryggju og dæluskúr er vísað til veitu-og hafnaráðs.

10.
Fjárhagsáætlun 2027 - erindi frá Miðgarði akstursíþróttafélagi
Á fundi byggðaráðs þann 20.ágúst sl. var tekið fyrir erindi frá Miðgarði akstursíþróttafélagi varðandi uppbyggingu fjallahjólastíga og akstursíþróttasvæðis og var erindinu vísað áfram til viðeigandi fagráða.
Framkvæmdaráð samþykkir að vísa erindi um akstursíþróttasvæði til þriggja ára áætlunar. Framkvæmdaráð leggur til við sveitarstjórn að deiliskipulag fólkvangs í Böggvisstaðafjalli verði endurskoðað m.t.t. stígagerðar.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
11.
Fjárhagsáætlun 2027 - erindi frá sjósundhópi
Á fundi byggðaráðs þann 20.ágúst sl. var tekið fyrir erindi frá sjósundhópi á Dalvík varðandi búningsaðstöðu á Böggvisstaðasandi og var erindinu vísað áfram til viðeigandi fagráða.
Framkvæmdaráð samþykkir að vísa erindinu til vinnu við hönnun á strandlengju Dalvíkur.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
12.
Breytingar á sorphirðu
Tekið fyrir minnisblað deildarstjóra Eigna- og framkvæmdadeildar þar sem lagt er til að tekið verði upp þriggja tunnu sorphirðukerfi við hvert heimili í sveitarfélaginu. Þriðja tunnan myndi þá verða til að aðskilja algjörlega flokkun á plasti og pappa/pappír til samræmis við lög og reglur. Áætlaður kostnaður við fjölgun á tunnum í sveitarfélaginu er kr. 6.224.400.-
Framkvæmdaráð samþykkir erindið fyrir sitt leyti og vísar því til afgreiðslu í sveitarstjórn.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
13.
Gjaldskrár 2027
Tekin fyrir tillaga að gjaldskrá sorphirðu árið 2027. Lagt er til að gjaldskrá sorphirðu hækki um 5% milli áranna 2026 og 2027 til að koma til móts við vísitölutengdar hækkanir á þjónustusamningi vegna úrgangsþjónustu.
Framkvæmdaráð samþykkir að gjaldskrá fyrir sorphirðu hækki um 5% og vísar málinu til afgreiðslu sveitarstjórnar.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
14.
Starfs- og fjárhagsáætlun framkvæmdasviðs 2027
Lögð fram drög að starfs- og fjárhagsáætlun framkvæmdasviðs fyrir árið 2027.
Lagt fram til kynningar.
15.
Fundargerðir byggingarfulltrúa 2026
Lögð fram til kynningar fundargerð 15.fundar dags. 11.september 2026, með fullnaðarafgreiðslum erinda.
Lagt fram til kynningar.