Framkvæmdaráð
7. fundur
9. september 2026
kl.
13:30
-
15:14
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Guðrún Anna Óskarsdóttir
varamaður
Sigurlaug Dóra Ingimundardóttir
varaformaður
Emil Júlíus Einarsson
aðalmaður
Sindri Ólafsson
aðalmaður
Garðar Hrafn Sigurjónsson
aðalmaður
Starfsmenn
María Markúsdóttir
skipulagsfulltrúi
Helga Íris Ingólfsdóttir
deildarstjóri
Steinmar Heiðar Rögnvaldsson
byggingarfulltrúi
Fundargerð ritaði:
María Markúsdóttir
Skipulagsfulltrúi
Dagskrá
1.
Aðalskipulag Dalvíkurbyggðar 2025-2045
Auglýsingu tillögu að Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2025-2045 lauk þann 16.ágúst sl.Sex athugasemdir bárust. Umsagnir bárust frá Landsneti, veitum Dalvíkurbyggðar, Rarik, Heilbrigðiseftirliti Norðurlands eystra, sveitarfélaginu Skagafirði, Isavia, Minjastofnun Íslands, Vegagerðinni, Náttúruverndarstofnun, Norðurorku, Sundfélaginu Rán, Landi og skógi, sveitarfélaginu Hörgársveit og Fiskistofu.Umsagnir og athugasemdir eru lagðar fram til kynningar á þessu stigi ásamt tillögu skipulagsráðgjafa að viðbrögðum.
Framkvæmdaráð felur skipulagsfulltrúa að vinna áfram að málinu í samvinnu við skipulagshönnuð.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
2.
Hafnarsvæði Árskógssandi - nýtt deiliskipulag
Kynningu skipulagslýsingar fyrir deiliskipulag hafnarsvæðis á Árskógssandi lauk þann 31.ágúst sl. Engar athugasemdir bárust. Umsagnir bárust frá Vegagerðinni, HMS, veitum Dalvíkurbyggðar og Minjastofnun Íslands.
Framkvæmdaráð felur skipulagsfulltrúa að vinna áfram að skipulagstillögu á vinnslustigi í samvinnu við skipulagshönnuði.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
3.
Fjöruböðin - umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir kennileiti úr grjóti
Grenndarkynningu á framkvæmd neðan Fjörubaðanna á Hauganesi lauk þann 23.ágúst sl.Þrjár athugasemdir bárust.
Framkvæmdaráð samþykkir að gefa út framkvæmdaleyfi fyrir niðursetningu grjóts í fjöru neðan Fjörubaðanna á Hauganesi. Framkvæmdaráð felur skipulagsfulltrúa að gefa út umbeðið leyfi og senda út svör við innkomnnum athugasemdum.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
4.
Fjöruböðin - umsókn um stöðuleyfi fyrir bát
Erindi dagsett 13.ágúst 2026 þar sem Jóhann Guðni Reynisson f.h. Fjörubaðanna ehf. sækir um stöðuleyfi fyrir bát á grasbakka við Fjöruböðin á Hauganesi.
Framkvæmdaráð samþykkir að grenndarkynna áformin skv. 44.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Grenndarkynnt skal fyrir íbúum Dalvíkurbyggðar.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
5.
Bessastaðir - umsókn um byggingarleyfi
Erindi dagsett 1.september 2026 þar sem Haraldur S. Árnason sækir um byggingarleyfi fyrir stækkun íbúðarhúss á Bessastöðum í landi Miðkots.Ekki er í gildi deiliskipulag fyrir svæðið.
Framkvæmdaráð telur ekki þörf á grenndarkynningu skv. 3.mgr. 44.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem sýnt þykir að umrædd áform hafi ekki áhrif á hagsmuni annarra en umsækjanda og sveitarfélags.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
6.
Karlsrauðatorg 11 - umsókn um byggingu geymsluskúrs
Erindi dagsett 25.ágúst 2026 þar sem Bjarni Gunnarsson f.h. Gísla, Eiríks, Helga ehf. sækir um leyfi fyrir byggingu geymsluskúrs á lóð nr. 11 við Karlsrauðatorg. Ekki er í gildi deiliskipulag fyrir svæðið.
Emil Júlíus Einarsson bar upp vanhæfi við afgreiðslu málsins og var það samþykkt. Vék hann af fundi undir umræðum og við afgreiðslu máls.
Framkvæmdaráð telur ekki þörf á grenndarkynningu skv. 3.mgr. 44.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem sýnt þykir að umrædd áform hafi ekki áhrif á hagsmuni annarra en umsækjanda og sveitarfélags.
Samþykkt samhljóða með fjórum atkvæðum.
Málinu er vísað til afgreiðslu byggingarfulltrúa.
Framkvæmdaráð telur ekki þörf á grenndarkynningu skv. 3.mgr. 44.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem sýnt þykir að umrædd áform hafi ekki áhrif á hagsmuni annarra en umsækjanda og sveitarfélags.
Samþykkt samhljóða með fjórum atkvæðum.
Málinu er vísað til afgreiðslu byggingarfulltrúa.
7.
Endurskoðun á snjómokstursreglum Dalvíkurbyggðar 2026
Samkvæmt viðmiðunarreglum um snjómokstur í Dalvíkurbyggð ber að fara yfir og endurskoða reglurnar árlega. Fyrir fundinum lágu gildandi reglur um snjómokstur, tillaga deildarstjóra Eigna- og framkvæmdadeildar að breytingum og kort af þéttbýliskjörnunum þremur sem sýna forganginn.
Framkvæmdaráð samþykkir tillögu deildarstjóra eigna- og framkvæmdadeildar að breytingum á reglum um vetrarþjónustu í Dalvíkurbyggð.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
8.
Gjaldskrár 2027
Lögð fram drög að gjaldskrám fyrir skipulags- og byggingarmál í Dalvíkurbyggð og gatnagerðargjald í þéttbýli sveitarfélagsins Dalvíkurbyggðar fyrir árið 2027. Samkvæmt ákvörðun sveitarstjórnar er lagt upp með 2,5% almenna hækkun á gjaldskrám milli ára.
Framkvæmdaráð samþykkir að gjaldskrá fyrir skipulags- og byggingarmál í Dalvíkurbyggð og samþykkt um gatnagerðargjald í þéttbýli Dalvíkurbyggðar verði óbreyttar á milli áranna 2026 - 2027.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
9.
Fjárfestingar og framkvæmdir 2026
Farið yfir stöðu á helstu fjárfestingum og framkvæmdum ársins.
Lagt fram til kynningar.
10.
Mánaðarlegar skýrslur 2026
Lagðar fram skýrslur fyrir þá málaflokka sem heyra undir framkvæmdaráð varðandi stöðu bókhalds í samanburði við heimildir.
Lagt fram til kynningar.
11.
Hríshöfði - umsókn um byggingarleyfi fyrir tengivirki
Erindi dagsett 4.september 2026 þar sem Náttúruverndarstofnun óskar eftir umsögn náttúruverndarnefndar Dalvíkurbyggðar vegna undanþágu frá friðlýsingarskilmálum friðlands í Svarfaðardal vegna viðbyggingar við tengivirki Landsnets í Hríshöfða. Framkvæmdaráð fer með hlutverk náttúruverndarnefndar. Umsagnarfrestur er veittur til 14.september nk.
Náttúruverndarnefnd Dalvíkurbyggðar veitir jákvæða umsögn um áformin.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.