Fara í efni

Framkvæmdaráð

6. fundur
26. ágúst 2026 kl. 13:30 - 14:30
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Katrín Sif Ingvarsdóttir formaður
Sigurlaug Dóra Ingimundardóttir varaformaður
Emil Júlíus Einarsson aðalmaður
Birta Dís Jónsdóttir varamaður
Elín Björk Unnarsdóttir varamaður
Starfsmenn
Helga Íris Ingólfsdóttir deildarstjóri
Fundargerð ritaði:
Helga Íris Ingólfsdóttir Deildarstjóri Eigna- og framkvæmdadeildar
Dagskrá
1.
Gjaldskrár 2027
Málsnúmer 202608079
Tekin fyrir drög að gjaldskrám skipulags- og byggingarmála, gatnagerðargjalda, gjalda vegna gæludýrahalds og ýmissa annarra gjalda á Framkvæmdasviði fyrir árið 2027. Samkvæmt ákvörðun Sveitarstjórnar er lagt upp með 2,5% almenna hækkun á gjaldskrám milli ára.
Framkvæmdaráð samþykkir 2,5% hækkun á gjaldskrám vegna hunda- og kattahalds og ýmissa annarra gjalda á Framkvæmdasviði. Afgreiðslu á gjaldskrám fyrir gatnagerðargjöld og skipulags- og byggingarmál er frestað til næsta fundar.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
2.
Hamar lóð 13 - umsókn um lóð
Málsnúmer 202505002
Erindi dagsett 30.apríl 2025 þar sem Ragnar Þór Georgsson sækir um frístundalóð nr. 13 í landi Hamars.Málið var áður á dagskrá skipulagsráðs þann 12.ágúst 2025 og var afgreiðslu frestað.
Framkvæmdaráð samþykkir erindið. Deiliskipulagsskilmálar ásamt almennum byggingarskilmálum gilda.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
3.
Garðatröð 1D - umsókn um lóð
Málsnúmer 202507037
Erindi dagsett 15.júlí 2025 þar sem Arngrímur Jónsson sækir um frístundalóð nr. 7 við Garðatröð (áður Garðatröð 1d).Málið var áður á dagskrá skipulagsráðs þann 12.ágúst 2025 og var afgreiðslu frestað.
Framkvæmdaráð samþykkir erindið. Deiliskipulagsskilmálar ásamt almennum byggingarskilmálum gilda.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
4.
Ránarbraut 5 - umsókn um viðbyggingu
Málsnúmer 202608045
Erindi dagsett 14.ágúst 2026 þar sem Kári Magnússon f.h. Samherja Ísland ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir hreinsiturni innan lóðar að Ránarbraut 5-7 á Dalvík. Turninn er 8,5 metrar á hæð og 16 fermetrar að grunnfleti og mun standa við norðurhlið Ránarbrautar 5, á milli húsanna.
Framkvæmdaráð samþykkir að gera breytingu á deiliskipulagi Dalvíkurhafnar til samræmis við erindið. Er breytingin óveruleg skv. 43.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og skal hún grenndarkynnt skv. 44.gr. laganna.
Grenndarkynnt skal fyrir lóðarhöfum Gunnarsbrautar 4, 6, 8 og 10 og lóðarhöfum Ránarbrautar 1, 2, 4, 7, 8, og 10.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
5.
Svarfaðarbraut 34 - umsókn um byggingarleyfi
Málsnúmer 202608013
Erindi dagsett 7.ágúst 2026 þar sem Bjarki Guðmundsson f.h. Íslandsturna Sendastaða hf. sækir um byggingarleyfi til að koma upp fjarskiptasendi utan á Íþróttamiðstöð Dalvíkurbyggðar við Svarfaðarbraut 34. Ekki er í gildi deiliskipulag á svæðinu.
Framkvæmdaráð setur sig ekki upp á móti uppsetningu á fjarskiptasendi á suðurhlið Íþróttamiðstöðvarinnar á Dalvík og felur byggingarfulltrúa afgreiðslu málsins.
Samþykkt samhljóða með fimm akvæðum.
6.
Sjávargata 6 - umsókn um fjölgun fasteigna
Málsnúmer 202608057
Erindi dagsett 14.ágúst 2026 þar sem Hermann Herbertsson f.h. Hótels Kalda ehf. sækir um fjölgun fasteigna á lóð nr. 6 við Sjávargötu á Árskógssandi. Fyrirhugað er að fjölga fasteignum úr tveimur í þrjár en engar breytingar verða á notkun, umfangi eða aðkomu að núverandi byggingu. Ekki er í gildi deiliskipulag á svæðinu.
Framkvæmdaráð samþykkir erindið og vísar því til afgreiðslu byggingarfulltrúa.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.

7.
Fundargerðir byggingarfulltrúa 2026
Málsnúmer 202602035
Lögð fram til kynningar fundargerð 14.fundar dags. 4. júní 2026, með fullnaðarafgreiðslum erinda.
Lagt fram til kynningar.