Fara í efni

Framkvæmdaráð

3. fundur
13. maí 2026 kl. 14:00 - 16:20
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Katrín Sif Ingvarsdóttir formaður
Gunnþór Eyfjörð Sveinbjörnsson varaformaður
Emil Júlíus Einarsson aðalmaður
Júlíus Magnússon aðalmaður
Starfsmenn
María Markúsdóttir skipulagsfulltrúi
Helga Íris Ingólfsdóttir deildarstjóri
Ólafur Elvar Júlíusson Verkefnastjóri byggingarmála
Fundargerð ritaði:
María Markúsdóttir Skipulagsfulltrúi
Dagskrá
1.
Selárland - breyting á aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar
Málsnúmer 202503039
Auglýsingu tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020 vegna áforma um uppbyggingu ferðamanna- og afþreyingarsvæðis við Sandvík á Hauganesi lauk þann 30.apríl sl.Tvær athugasemdir bárust.Umsagnir bárust frá Minjastofnun Íslands, Heilbrigðiseftirliti Norðurlands eystra, Hörgársveit, Vegagerðinni og Landsneti.
Framkvæmdaráð leggur til við sveitarstjórn að hún samþykki framlagða tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020 skv. 1.mgr. 32.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsfulltrúa er falið að vinna drög að svörum við innkomnum athugasemdum til samræmis við umræður á fundinum og leggja fyrir fund sveitarstjórnar til samþykktar.
Samþykkt samhljóða með fjórum atkvæðum.
2.
Selárland - nýtt deiliskipulag fyrir ferðaþjónustu og frístundabyggð
Málsnúmer 202503040
Auglýsingu tillögu að deiliskipulagi fyrir ferðaþjónustu og frístundabyggð við Sandvík á Hauganesi lauk þann 30.apríl sl.Fjórar athugaemdir bárust. Umsagnir bárust frá Heilbrigðiseftirliti Norðurlands eystra, Minjastofnun Íslands, Vegagerðinni, Rarik, veitum Dalvíkurbyggðar og Náttúruverndarstofnun.
Framkvæmdaráð leggur til við sveitarstjórn að hún samþykki framlagða tillögu deiliskipulagi fyrir ferðaþjónustu og frístundabyggð við Sandvík á Hauganesi skv. 3.mgr. 41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsfulltrúa er falið að vinna drög að svörum við innkomnum athugasemdum til samræmis við umræður á fundinum og leggja fyrir fund sveitarstjórnar til samþykktar.
Samþykkt samhljóða með fjórum atkvæðum.
3.
Lækjarbakki, Árskógssandi - umsókn um frístundabyggð
Málsnúmer 202604245
Erindi dagsett 21.apríl 2026 þar sem landeigendur Lækjarbakka 1, 3 og 4 á Árskógssandi óska eftir því að landnotkun verði breytt úr landbúnaðarlandi L1 í frístundabyggð.Áformin kalla á breytingu á Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2008-2020.
Afgreiðslu frestað og skipulagsfulltrúa falið að óska eftir frekari gögnum.
Samþykkt samhljóða með fjórum atkvæðum.
4.
Athafnasvæði í landi Ytri Haga - nýtt deiliskipulag
Málsnúmer 202511032
Auglýsingu tillögu að deiliskipulagi fyrir iðnaðarsvæði í landi Ytri Haga lauk þann 11.maí sl. Engar athugasemdir bárust. Umsagnir bárust frá Náttúruverndarstofnun, Rarik, Minjastofnun Íslands og Vegagerðinni.
Framkvæmdaráð leggur til við sveitarstjórn að hún samþykki framlagða tillögu að deiliskipulagi fyrir iðnaðarsvæði í landi Ytri Haga skv. 3.mgr. 41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Samþykkt samhljóða með fjórum atkvæðum.
5.
Athafnasvæði við Sandskeið - nýtt deiliskipulag
Málsnúmer 202409138
Anna Kristín Guðmundsdóttir og Ómar Ívarsson hjá teiknistofunni Landslagi ehf. kynntu drög að tillögu að nýju deiliskipulagi athafnasvæðis við Sandskeið.Anna Kristín sat fundinn undir þessum dagskrárlið.Ómar sat fundinn í fjarfundabúnaði undir þessum dagskrárlið.
Skipulagsfulltrúa er falið að vinna áfram að tillögu að deiliskipulagi í samvinnu við skipulagshönnuði.
Samþykkt samhljóða með fjórum atkvæðum.
7.
Ósk um upplýsingar varðandi fjallgirðingasjóð
Málsnúmer 202601117
Samþykkt var á fundi umhverfis- og dreifbýlisráðs þann 6.febrúar 2026 að koma á formlegu samkomulagi við landeigendur á Árskógsströnd um Fjallgirðingarsjóð. Nú liggja fyrir drög starfsmanna framkvæmdasviðs að samkomulagi vegna fjallgirðingasjóðs.
Framkvæmdaráð samþykkir framlögð drög að samkomulagi vegna Fjallgirðingasjóðs með þeirri breytingu að Árskógsrétt verði hluti af samkomulaginu.
Samþykkt samhljóða með fjórum atkvæðum.
8.
Grenndarstöðvar sorphirðu - staðsetningar og útfærslur
Málsnúmer 202605036
Árið 2025 var samþykkt að koma upp grenndarstöðvum sorphirðu á Hauganesi og á Árskógssandi. Grenndargámar voru settir upp og hafa staðið á gömlu bílaþvottaplönunum á báðum stöðum í vetur. Nú þarf að taka afstöðu til þess hvar á að koma grenndarstöðvunum endanlega fyrir á báðum stöðum því það á að koma upp skjólveggjum og skiltum og bæta ásýnd stöðvanna.
Framkvæmdaráð samþykkir núverandi staðsetningu grenndarstöðva á Hauganesi og Árskógssandi en leggur jafnframt áherslu á snyrtilegan frágang og ásýnd stöðvanna.
Samþykkt samhljóða með þremur atkvæðum.

Gunnþór E. Sveinbjörnsson sat hjá við afgreiðslu málsins.
9.
E2606 og E2607 - Göngu- og hjólastígar niður á Árskógssand og Hauganes
Málsnúmer 202605038
Á fjarhagsáætlun ársins 2026 er að byggja upp hjóla- og göngustíga frá þjóðvegi og niður á Árskógssand og niður á Hauganes. Fyrir fundinum lá tillaga að legu stíganna.
Framkvæmdaráð samþykkir að stígur niður á Árskógssand muni liggja um Brúarhvammsreit eftir núverandi stíg en að lega stígs niður á Hauganes fari í frekara samráðsferli með íbúum á svæðinu.
Samþykkt samhljóða með fjórum atkvæðum.
10.
Samstarfssamningur vegna textíls
Málsnúmer 202505074
Fyrir fundinum lágu drög að samstarfssamningi milli Dalvíkurbyggðar og Akureyrarbæjar um flutning á umframtextíl frá starfsstöð Rauða krossins á Akureyri til meðhöndlunar hjá móttökuaðila. Með samningnum skuldbindur Dalvíkurbyggð sig til að greiða Akureyrarbæ hlutdeild af kostnaði vegna meðhöndlunar og flutnings textíls.
Framkvæmdaráð samþykkir framlögð drög að samstarfssamningi milli Dalvíkurbyggðar og Akureyrarbæjar um flutning og meðhöndlun á umframtextíl.
Framkvæmdaráð leggur til að íbúar verði upplýstir um magn og kostnað við förgun á textíl í sveitarfélaginu.
Samþykkt samhljóða með fjórum atkvæðum.
11.
Fjárfestingar og framkvæmdir 2026
Málsnúmer 202602011
Farið yfir stöðu á helstu framkvæmdum ársins.
Lagt fram til kynningar.
12.
Mánaðarlegar skýrslur 2026
Málsnúmer 202602002
Lagðar fram skýrslur fyrir þá málaflokka sem heyra undir framkvæmdaráð varðandi stöðu bókhalds í samanburði við heimildir.
Lagt fram til kynningar.