Fara í efni

Framkvæmdaráð

12. fundur
11. nóvember 2026 kl. 13:30 - 15:00
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Katrín Sif Ingvarsdóttir formaður
Sigurlaug Dóra Ingimundardóttir varaformaður
Emil Júlíus Einarsson aðalmaður
Sindri Ólafsson aðalmaður
Elín Björk Unnarsdóttir varamaður
Starfsmenn
María Markúsdóttir skipulagsfulltrúi
Fundargerð ritaði:
María Markúsdóttir Skipulagsfulltrúi
Dagskrá
1.
Aðalskipulag Dalvíkurbyggðar 2025-2045
Málsnúmer 202302116
Lögð fram tillaga að Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2025-2045 með breytingum sem gerðar voru eftir auglýsingu.
Gunnar Ágústsson hjá Yrki arkitektum sat fundinn í fjarfundabúnaði undir þessum fundarlið.
Framkvæmdaráð leggur til við sveitarstjórn að hún samþykki framlagða tillögu að Aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar 2025-2045 með breytingum að lokinni auglýsingu skv. 1.mgr. 32.gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Að mati framkvæmdaráðs hafa umræddar breytingar ekki áhrif á auglýsta stefnu aðalskipulagsins og telur ráðið því ekki þörf á endurauglýsingu tillögunnar.
Þá leggur framkvæmdaráð til við sveitarstjórn að hún samþykki svör og viðbrögð við athugasemdum sem fram koma í minnisblöðum skipulagsfulltrúa og skipulagsráðgjafa.
Samþykkt með fjórum atkvæðum.

Elín Björk Unnarsdóttir greiðir atkvæði gegn tillögunni og leggur fram eftirfarandi bókun:
Ég legg til að framtíðartjaldsvæðið verði sunnan við íþróttasvæðið, eða áfram á sama stað eða við Ólafsfjarðarveg.
2.
Athafnasvæði við Melbrún - nýtt deiliskipulag
Málsnúmer 202609120
Lögð fram skipulagslýsing fyrir nýtt deiliskipulag athafnasvæðis við Melbrún, unnin af teiknistofunni Landslagi ehf.
Framkvæmdaráð leggur til við sveitarstjórn að hún samþykki framlagða skipulagslýsingu og að lýsingin verði kynnt skv. 3.mgr. 40.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
3.
Deiliskipulag fyrir slökkvistöð og viðbragðsaðila
Málsnúmer 202503050
Lögð fram skipulagslýsing fyrir nýtt deiliskipulag fyrir slökkvistöð og viðbragðsaðila, unnin af teiknistofunni Landslagi ehf.
Framkvæmdaráð leggur til við sveitarstjórn að hún samþykki framlagða skipulagslýsingu og að lýsingin verði kynnt skv. 3.mgr. 40.gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Samþykkt með fjórum atkvæðum.

Elín Björk Unnarsdóttir greiðir atkvæði gegn tillögunni og leggur fram eftirfarandi bókun:
Ég bendi á þann möguleika að ef Dalvíkurbyggð stefnir á að fjárfesta í nýrri slökkvistöð þá sé það kostur að fjárfesta í Gunnarsbraut 10B, bil 104 - 109. Þar má innrétta nýja
slökkvistöð. Flatarmál er 306 fermetrar. Ásett verð er samtals 117.800.000 kr. Húsnæðið gerir ráð fyrir sex útkeyrsluhurðum. Hægt að fækka þeim. Möguleikar eru á að kaupa færri eða
fleiri bil. Núverandi slökkvistöðin á Dalvík er 170 m2 og með þrjár útkeyrsluhurðir. Kostur er að staðsetning slökkvistöðvar sé við eða nálægt björgunarsveit. Annar kostur í stöðunni er að bjóða eigendum á lögrelgustöðinni í samtal um að kaupa þeirra húsnæði sem liggur við slökkvistöðina þannig að hægt sé að stækka hana. Má nefna að gamla pósthúsið við Skíðabraut gæti orðið framtíðar lögreglustöð eins og hún var í þáttunum The True detective. Í Dalvíkurbyggð eru innviðir sem þarfnast viðhalds og fjármagns. Má þar m.a. nefna Ráðhúsið og Sundskála Svarfdæla svo eitthvað sé nefnt. Dalvíkurbyggð á að sýna gott fordæmi og forðast að hafa þensluhvetjandi áhrif í samfélaginu eins og bygging slökkvistöðvar sunnan íþróttasvæðis Dalvíkur myndi hafa í för með sér.
4.
Karlsrauðatorg 17 - umsókn um breytingu á deiliskipulagi
Málsnúmer 202611029
Lagt fram erindi f.h. uppbyggingaraðila á lóð Karlsrauðatorgs 17 þar sem sótt er um breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar.
Eftirfarandi breytingar eru fyrirhugaðar:
- Fjölgun íbúða úr 6 í 10. Byggingarmagn eykst ekki umfram heimildir í gildandi skipulagi.
- Stækkun byggingarreits um 1,5 m til norðurs.
- Gert verður ráð fyrir 11 bílastæðum innan lóðar, þar af tveimur fyrir hreyfihamlaða.
Framkvæmdaráð samþykkir að gerð verði breyting á deiliskipulagi til samræmis við erindið. Er breytingin óveruleg skv. 2.mgr. 43.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og skal hún grenndarkynnt skv. 44.gr. laganna. Grenndarkynnt skal fyrir lóðarhöfum nærliggjandi lóða.
Samþykkt með fjórum atkvæðum.

Elín Björk Unnarsdóttir greiðir atkvæði á móti tillögunni og leggur fram eftirfarandi bókun:
Elín leggur til að gert verði ráð fyrir tveimur bílastæðum fyrir hverja íbúð.
5.
Sveinsstaðir - umsókn um breytta skráningu fasteignar
Málsnúmer 202611023
Erindi dagsett 2.nóvember 2026 þar sem Sigurður Heimisson og Signý Dröfn Arnardóttir sækja um breytta skráningu lóðarinnar Sveinsstaða í Svarfaðardal, úr frístundalóð í íbúðarlóð.
Ekki er í gildi deiliskipulag á svæðinu.
Framkvæmdaráð samþykkir erindið með vísan í ákvæði Aðalskipulags Dalvíkurbyggðar 2008-2020 þar sem segir að heimilt sé að reisa allt að þrjú íbúðarhús á lögbýlum.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
6.
Stærri-Árskógur - umsókn um stofnun lóðar
Málsnúmer 202610127
Erindi dagsett 28.október 2026 þar sem Freydís inga Bóasdóttir og Guðmundur Geir Jónsson sækja um stofnun lóðar fyrir 50 m2 starfsmannahús í landi Stærri-Árskógs.
Meðfylgjandi er afstöðumynd.
Emil Júlíus Einarsson bar upp vanhæfi við afgreiðslu málsins og var það samþykkt. Vék hann af fundi undir umræðum og við afgreiðslu máls.

Framkvæmdaráð samþykkir erindið.
Samþykkt samhljóða með fjórum atkvæðum.
7.
Lagning ljósleiðara - umsókn um framkvæmdaleyfi
Málsnúmer 202611024
Lagt fram til kynningar framkvæmdaleyfi fyrir lagningu ljósleiðara meðfram þjóðvegi 808 frá gatnamótum við Ólafsfjarðarveg að gatnamótum við Öldugötu á Árskógssandi.
Framkvæmdaraðili er Tengir ehf.
Lagt fram til kynningar.
8.
Dýrholt - umsagnarbeiðni um geymslustað ökutækja
Málsnúmer 202611041
Erindi dagsett 30. október 2026 þar sem Samgöngustofa óskar eftir umsögn Dalvíkurbyggðar um fyrirhugaðan geymslustað ökutækja við Dýrholt í Svarfaðardal.
Meðfylgjandi er staðfesting og samþykki lóðarhafa.
Framkvæmdaráð gerir ekki athugasemd við áformin.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
9.
Grundargata 3 - Stjórnsýslukæra nr. UUA2609011
Málsnúmer 202609106
Lagður fram til kynningar úrskurður Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. 27.október 2026, þar sem tekin var fyrir kæra á afgreiðslu byggingarfulltrúa Dalvíkurbyggðar á erindum vegna framkvæmda á lóð nr. 3 við Grundargötu á Dalvík.
Kærunni var vísað frá þar sem ekki var um kæranlega stjórnsýsluákvörðun að ræða.
Lagt fram til kynningar.
10.
Brunavarnaráætlun 2026-2031
Málsnúmer 202610130
Lögð fram til kynningar Brunavarnaráætlun Slökkviliðs Dalvíkur 2026-2031.
Lagt fram til kynningar.
11.
Fundargerðir HNE 2026
Málsnúmer 202611039
Lögð fram til kynningar fundargerð frá 252.fundi Heilbrigðisnefndar Norðurlands eystra dags. 30.október 2026 ásamt fjárhagsáætlun Heilbrigðiseftirlitsins fyrir árið 2027 og áætluðu framlagi Dalvíkurbyggðar til rekstrarins.
Lagt fram til kynningar.