Fræðsluráð
313. fundur
11. febrúar 2026
kl.
08:15
-
10:36
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Sigríður Jódís Gunnarsdóttir
formaður
Emil Júlíus Einarsson
varaformaður
Snævar Örn Ólafsson
aðalmaður
Benedikt Snær Magnússon
aðalmaður
Monika Margrét Stefánsdóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir
sveitarstjóri
Fundargerð ritaði:
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir
sveitarstjóri
Dagskrá
1.
Beiðni um aukið starfshlutfall vegna ÍSAT kennslu í Krílakoti
Á leikskólanum Krílakoti eru það 44,7% nemenda sem þörf er á að veita einhverskonar stuðning í námi. Til þess að skólinn geti komið til móts við þarfir nemenda óskar leikskólastjóri eftir heimild til þess að ráða sérkennara í 75% starfshlutfall, svo hægt sé að þjónusta betur þennan hóp nemenda, upp á framhaldið þegar þau fara í grunnskólann.
Valgerður Inga Júlíusdóttir fór yfir skipulag og aukna þörf fyrir sérkennslu á Krílakoti.
Fræðsluráð samþykkir samhljóða 5 atkvæðum að leggja til við byggðaráð að samþykkja 75% stöðugildi sérkennara með áherslu á ÍSAT kennslu í Krílakoti.
Valgerður fór af fundi kl. 8:30
Una kom til fundar kl. 8:39
Fræðsluráð samþykkir samhljóða 5 atkvæðum að leggja til við byggðaráð að samþykkja 75% stöðugildi sérkennara með áherslu á ÍSAT kennslu í Krílakoti.
Valgerður fór af fundi kl. 8:30
Una kom til fundar kl. 8:39
2.
Færa skipulagsdag í Kötlukoti
Fyrir fundinum liggur beiðni frá Ágústu Kristínu Bjarnadóttur, leikskólastjóra þess efnis að starfsfólk Kötlukots taki þátt í starfsdegi Krílakots sem haldinn verður 6.mars nk. og á móti fellur niður skipulagsdagur Kötlukots sem er áætlaður þann 4.júni skv. skóladagatali Árskógarskóla - Kötlukot.
Fræðsluráð samþykkir samhljóða með 5 atkvæðum ofangreinda beiðni leikskólastjóra.
3.
Skóladagatöl skólanna frá Sambandi Íslenskra sveitarfélaga.
Farið var yfir helstu áherslur varðandi skóladagatöl skólanna fyrir skólaárið 2026 - 2027. Skóladagatöl leik- og grunnskóla þurfa að liggja fyrir á næsta fundi fræðsluráðs í mars.
Lagt fram til kynningar.
4.
Árskógarskóli
Farið yfir hvernig verkefnið gengur að sameina leik - og grunnskóla á svæðinu sem kemur að fullu til framkvæmda í haust.Sveitarstjóri upplýsti að Ásgarður hefur verið fenginn til ráðgjafar í þeirri vinnu og er sú vinna hafin. Markmiðið er að henni verði lokið fyrir næsta fund fræðsluráðs.
Málið var rætt og ljóst er að margar spurningar vakna og mikilvægt að vinna vel að þessu máli.
Lagt fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
5.
Fjárhagslegt stöðumat fyrir (04) fræðslumál. 2025
Sveitarstjóri og stjórnendur fara yfir rekstur leik- og grunnskóla fyrir fjárhagsárið 2025.
Lagt fram til kynningar.
Friðrik og Matthildur fóru af fundi kl. 09:19
Friðrik og Matthildur fóru af fundi kl. 09:19
6.
Leiksýning frá Sögustund - beiðni um styrk frá Foreldrafélagi Krílakots
Tekið fyrir erindi frá Foreldrafélagi Krílakots, þar sem að þau óska eftir styrk til að kaupa leiksýningu fyrir leikskólabörn í Dalvíkurbyggð.
Fræðsluráð samþykkir samhljóða með 5 atkvæðum að hafna ofangreindu erindi, þar sem ekki er gert ráð fyrir þessu á fjárhagsáætlun.
7.
Boð um þátttöku í verkefninu Snemmtæk íhlutun í leikskóla með áherslu á málþroska og læsi
Tekið fyrir erindi frá Miðstöð menntunar- og skólaþjónustu - Boð um þátttöku í verkefninu "Snemmtæk íhlutun í leikskóla með áherslu á málþroska og læsi"
Lagt fram til kynningar.
8.
Rannsakendur við Kennaradeild Háskólans á Akureyri, rannsókn á því hvernig barnabækur eru notaðar í leikskólastarfi
Tekið fyrir bréf frá Rannveigu Oddsdóttur, ósk um að gera rannsókn við leikskólann á Krílakoti.
Fræðsluráð samþykkir samhljóða með 5 atkvæðum að leikskólar Dalvíkurbyggðar taki þátt ofangreindri rannsókn.
Ágústa, Elvý, Una, Gitta og Ingigerður fóru af fundi kl. 9:58.
Ágústa, Elvý, Una, Gitta og Ingigerður fóru af fundi kl. 9:58.
9.
Skólahreysti í 20 ár - ósk um styrk
Tekið fyrir erindi frá Hreysti Smiðjunni ehf. dags. í desember 2025, þar sem óskað er eftir styrk að fjárhæð kr. 250.000.Erindið var tekið fyrir á 181.fundi íþrótta- og æskulýðsráðs þann 15.janúar sl. og var eftirfarandi bókað: Íþróttafulltrúa er falið að afla frekari upplýsingar um styrkbeiðnina hjá forsvarsmönnum Hreystismiðjunnar.
Afgreiðslu er frestað þar sem málið er í vinnslu hjá íþrótta- og æskulýðsráði.
Samþykkt með 4 atkvæðum.
Benedikt Snær Magnússon greiðir atkvæði á móti þar sem hann hefði viljað afgreiða málið á þessum fundi.
Samþykkt með 4 atkvæðum.
Benedikt Snær Magnússon greiðir atkvæði á móti þar sem hann hefði viljað afgreiða málið á þessum fundi.
10.
Heimsóknir fræðsluráðs í leik- og grunnskóla
Fræðsluráð fer í heimsókn í Árskógarskóla.
Heimsókn er frestað, ástæðan er 112 dagurinn, þar sem nemendur og starfsfólk Árskógarskóla eru staddir á Dalvík vegna hans.