Fara í efni

Fræðsluráð

312. fundur
10. desember 2025 kl. 08:15 - 10:30
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Sigríður Jódís Gunnarsdóttir formaður
Emil Júlíus Einarsson varaformaður
Snævar Örn Ólafsson aðalmaður
Benedikt Snær Magnússon aðalmaður
Þórhalla Karlsdóttir varamaður
Starfsmenn
Gísli Bjarnason sviðsstjóri
Fundargerð ritaði:
Gísli Bjarnason Sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs
Dagskrá
1.
Samræmdar dagsetningar umsókna í grunnskóla
Málsnúmer 202511114
Tekið fyrir bréf frá Miðstöð menntunar og skólaþjónustu dags. 17. 11. 2025.
Lagt fram til kynningar.
2.
Trúnaðarmál
Málsnúmer 202505046
Bókað í trúnaðarmálabók.
Bókað í trúnaðarmálabók
3.
ÍSAT - kennsla í Dalvíkurskóla
Málsnúmer 202512024
Friðrik Arnarson, skólastjóri Árskógar - og Dalvíkurskóla, fer yfir upplýsingar er varða ÍSAT - kennslu í Dalvíkurskóla.
Fræðsluráð þakkar Friðriki fyrir góða kynningu á ÍSAT kennslu í Dalvíkurskóla. Fræðsluráð vill hrósa því fólki sem er að vinna að þessum málum og mikilvægt að vinna samkvæmt viðmiðum aðalnámskrár grunnskóla. Mikilvægt að fá mat á stöðunni með aðstoð Háskólans á Akureyri.
4.
Fjárhagslegt stöðumat fyrir (04) fræðslumál. 2025
Málsnúmer 202403058
Sviðsstjóri og stjórnendur skóla fara yfir fjárhagslegt stöðumat 2025 fyrir málaflokk 04. Fræðslumál.
Lagt fram til kynningar
5.
Framtíðarsýn skólahúsnæðis í Dalvíkurbyggð
Málsnúmer 202508043
Fundagerðir vinnuhóps lagðar fram til kynningar
Lagt fram til kynningar
6.
Starfs- og fjárhagsáætlun 2026-2029
Málsnúmer 202505063
Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs, fer yfir helstu tölur í fjárhagsáætlun fræðslumála fyrir fjárhagsárið 2026.
Lagt fram til kynningar
7.
Vinnuhópur um skólalóðir Dalvíkurskóla og Árskógarskóla
Málsnúmer 202502144
Fundagerðir vinnuhóps lagðar fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar
8.
Umsókn um styrk fyrir starfstengdu íslenskunámskeiði fyrir starfsfólk af erlendum uppruna.
Málsnúmer 202511161
Sviðsstjóri lagði fram til kynningar umsókn um styrk til Sveitamenntar vegna námskeiðs fyrir starfsfólk af erlendum uppruna á leikskólanum Krílakoti.
Lagt fram til kynningar
9.
Umsókn um styrk frá ADHD samtökunum
Málsnúmer 202511154
Tekið fyrir erindi frá ADHD samtökunum dags. 26. nóvember 2025
Fræðsluráð samþykkir með fimm atkvæðum að fá fræðslu um ADHD fyrir íbúa og starfsmenn leik - og grunnskóla. Sviðsstjóra er falið að vinna skipulag með ADHD samtökunum.
10.
Heimsóknir fræðsluráðs í leik- og grunnskóla
Málsnúmer 201810023
Fræðsluráð fer í heimsókn í Tónlistarskólann.