Fræðsluráð
311. fundur
19. nóvember 2025
kl.
08:15
-
10:05
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Emil Júlíus Einarsson
varaformaður
Benedikt Snær Magnússon
aðalmaður
Þórhalla Karlsdóttir
varamaður
Starfsmenn
Gísli Bjarnason
sviðsstjóri
Fundargerð ritaði:
Gísli Bjarnason
Sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs
Dagskrá
1.
Niðurstöður TALIS - stærstu alþjóðlegu rannsóknar á kennurum,skólastjórnendum og kennsluháttum
Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs fór yfir helstu niðurstöður úr Talis - stærstu alþjóðlegu rannsókn á kennurum, skólastjórnendum og kennsluhátum.
Fræðsluráð þakkar sviðsstjóra fyrir kynningu á niðurstöðum á Tallis könnun.
2.
Aðalskipulag Dalvíkurbyggðar 2025-2045
Óskað er umsagnar um tillögu á vinnslustigi að nýju aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar sem er í kynningu til 11.nóvember nk. Gögn málsins má nálgast hér:https://skipulagsgatt.is/issues/2024/1264
Lagt fram til kynningar.
3.
Árskógarskóli
Friðrik Arnarson, skólastjóri Árskógar - og Dalvíkurskóla og Ágústa Kristín Bjarnadóttir, leikskólastjóri, fara yfir hvernig samstarf skólanna fari fram til vors 2026.
Fræðsluráð þakkar stjórnendum skólanna fyrir góða vinnu og líst vel á breytt skipulag.
4.
Íslennsku Menntaverðlaunin 2025
Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs, fer yfir hvernig vinna við Íslensku menntaverðlaunin fara fram og niðurstöður fyrir 2025.
Lagt fram til kynningar
5.
Fjárhagslegt stöðumat fyrir (04) fræðslumál. 2025
Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs, Friðrik Arnarson, skólastjóri Árskógar - og Dalvíkurskóla, Ágústa Kristín Bjarnadóttir, leikskólastjóri Krílakots, fara yfir fjárhagslegt stöðumat fyrir fjárhagsárið 2025.
Lagt fram til kynningar
6.
Framtíðarsýn skólahúsnæðis í Dalvíkurbyggð
Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs, fór yfir fundagerðir vinnuhóps um framtíðarsýn vinnuhóps um skólahúsnæði í Dalvíkurbyggð.
Fræðsluráð þakkar fyrir kynning og þá umræðu sem fór fram á fundinum.
7.
Skólapúlsinn - niðurstöður úr Dalvíkurskóla
Friðrik Arnarson, skólastjóri Árskógar - og Dalvíkurskóla, fer yfir niðurstöður úr skólapúlsinum sem er nemendakönnun úr grunnskóla.
Fræðsluráð þakkar Friðriki fyrir góða kynningu á niðurstöðum.
8.
Endurskoðun og innleiðing á hæfniviðmiðum í námskrá grunnskóla
Friðrik Arnarson, skólastjóri Árskógar - og Dalvíkurskóla, fer yfir innleiðingu á endurskoðuðum hæfniviðmiðum í grunnskóla.
Fræðsluráð þakkar Friðriki fyrir góða kynningu á innleiðingaráætlun um hæfniviðmið í grunnskólum.
9.
Styrkbeiðni Fjölskylduþjónustu Norðurlands eystra
Tekin fyrir beiðni um styrk frá SSNE dags. 10.10.2025 til að setja á fót Fjölskylduþjónustu fyrir Norðurland eystra.
Fræðsluráð samþykkir styrkveitingu með þremur greiddum atkvæðum og hlutur Dalvíkurbyggðar verði greiddur af 02-80-9145.
10.
Heimsóknir fræðsluráðs í leik- og grunnskóla
Fræðsluráð fer í heimsókn í Dalvíkurskóla.
Fræðsluráð samþykkir með þremur atkvæðum að fresta heimsókn í Dalvíkurskóla.