Fræðsluráð
309. fundur
26. september 2025
kl.
08:15
-
11:15
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Sigríður Jódís Gunnarsdóttir
formaður
Emil Júlíus Einarsson
varaformaður
Snævar Örn Ólafsson
aðalmaður
Benedikt Snær Magnússon
aðalmaður
Monika Margrét Stefánsdóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Gísli Bjarnason
sviðsstjóri
Fundargerð ritaði:
Gísli Bjarnason
Sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs.
Dagskrá
1.
Starfs- og fjárhagsáætlun 2026-2029
Sviðsstjóri og stjórnendur skólanna fara yfir helstu áherslur í fjárhagsáætlun fyrir fjárhagsárið 2026.Sviðsstjóri og stjórnendur skólanna fara yfir þau búnaðarkaup sem áætluð eru á fjárhagsáætlun fyrir fjárhagsárið 2026.Sviðsstjóri og stjórnendur skólanna fara yfir það viðhald sem lagt er hjá hverri stofnun fyrir fjárhagsárið 2026.Jóna Guðbjörg Ágústsdóttir, frístundafulltrúi, fór yfir starfsáætlun Frístundar.
Fræðsluráð samþykkir með fimm atkvæðum starfsáætlun Frístundar. Aðrir þættir lagðir fram til kynningar þ.a.s. búnaðarkaup og viðhald.
2.
Framtíðarsýn skólahúsnæðis í Dalvíkurbyggð
Forseti sveitarstjórnar, sem leggur til að ofangreind tillaga fræðsluráðs um stofnun vinnuhóps verði samþykkt og skipan vinnuhópsins verði eftirfarandi:Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs.Benedikt Snær MagnússonKatrín Sif IngvarsdóttirMonika Margrét Stefánsdóttir.Sviðsstjóri leggur til drög að erindisbréfi fyrir vinnuhóp um framtíðarsýn skólahúsnæðis í Dalvíkurbyggð.
Fræðsluráð samþykkir með fimm atkvæðum að drög að erindisbréfi fari til frekari vinnslu inn í vinnuhópnum áður en það fer inn til umfjöllunar í Byggðaráði.
3.
Árskógarskóli
Tekin umræða um Árskógarskóla
Gott starf hefur verið unnið í Árskógarskóla, bæði á leikskóla og grunnskólastigi undanfarin ár. Í ljósi fækkunar barna á grunnskólastigi í Árskógarskóla og með hagsmuni barna að leiðarljósi, bæði félagslega og námslega leggur fræðsluráð til að frá og með haustinu 2026 verði grunnskólastig Árskógarskóla fært til Dalvíkurskóla. Með þessum breytingum telur fræðsluráð að verið sé að koma betur til móts við þarfir barnanna. Fræðsluráð leggur ríka áherslu á að leikskóli verði áfram starfræktur í Árskógarskóla en fastráðnu starfsfólki á grunnskólastigi verði boðin tilfærsla á störfum innan fræðslustofnanna Dalvíkurbyggðar. Í ljósi þessara breytinga leggur fræðsluráð til að ekki verði ráðið í stöðu deildastjóra Árskógarskóla og er sviðstjóra og stjórnendum skólanna falið að koma með tillögu að útfærslu á deildastjórastöðu skólaárið 2025-2026.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
4.
Starfsmannamál í leik - og grunnskóla
Stjórnendur skólanna fara yfir þær breytingar sem hafa verið í upphafi skólaárs.
Lagt fram til kynningar.