Fræðsluráð
308. fundur
10. september 2025
kl.
08:15
-
11:05
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Sigríður Jódís Gunnarsdóttir
formaður
Monika Margrét Stefánsdóttir
aðalmaður
Emil Júlíus Einarsson
varamaður
Starfsmenn
Gísli Bjarnason
sviðsstjóri
Fundargerð ritaði:
Gísli Bjarnason
Sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs
Dagskrá
1.
Gjaldskrár 2026
Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs, lagði fram drög að nýrri gjaldskrá fyrir skólaárið 2025 - 2026.
Fræðsluráð samþykkir með þremur atkvæðum gjaldskrá fræðslusviðs.
2.
Starfs- og fjárhagsáætlun 2026-2029
Sviðsstjóri og stjórnendur skólanna lögðu fram starfsáætlanir stofnanna fræðslusviðs tengda fjárhasáætlunum fjárhagsárið 2026.
Fræðsluráð samþykkir með þremur atkvæðum starfsáætlun Árskógarskóla fyrir fjárhagsárið 2026
Fræðsluráð samþykkir með þremur atkvæðum starfsáætlun Dalvíkurskóla fyrir fjárhagsárið 2026
Fræðsluráð samþykkir með þremur atkvæðum starfsáætlun Krílakots fyrir fjárhagsárið 2026
Fræðsluráð samþykkir með þremur atkvæðum starfsáætlun Skólaskrifstofu Dalvíkurbyggðar fyrir fjárhagsárið 2026
Sviðsstjóra falið að yfirfara starfsáætlanir.
Fræðsluráð samþykkir með þremur atkvæðum starfsáætlun Dalvíkurskóla fyrir fjárhagsárið 2026
Fræðsluráð samþykkir með þremur atkvæðum starfsáætlun Krílakots fyrir fjárhagsárið 2026
Fræðsluráð samþykkir með þremur atkvæðum starfsáætlun Skólaskrifstofu Dalvíkurbyggðar fyrir fjárhagsárið 2026
Sviðsstjóra falið að yfirfara starfsáætlanir.
3.
Framtíðarsýn skólahúsnæðis í Dalvíkurbyggð
Málið tekið áfram til umræðu í Fræðsluráði.Á 307. fundi fræðsluráðs þann 20. ágúst sl. var eftirfarandi bókað:"Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs, fer yfir framtíðarhorfur er varðar skóla - og frístundarmál í Dalvíkurbyggð.Niðurstaða : Sviðsstjóra falið að fylgja málinu eftir inn í Byggðaráð Dalvíkurbyggð"Með fundarboði byggðaráðs fylgdi minnisblað sviðsstjóra frá 19. ágúst sl., þar sem fram kemur að huga það húsnæðismálum vegna fjölgunar barna/nemenda í Dalvíkurbyggð á leikskólaaldri sem og huga þarf að húsnæðismálum Frístundar. Í minnisblaðinu eru nokkrum hugmyndum velt upp til að mæta þessari áætlaðri þörf. Jafnframt fylgja með fundarboði upplýsingar um fjölda barna á leikskólaaldri eftir árgöngum skipt niður á skólahverfi.Byggðaráð samþykkir samhljóða að vísa erindinu til gerðar fjárhagáætlunar.
Fræðsluráð leggur áherslu á að gott samráð verði við alla hagsmunaaðila þegar farið verður í áframhaldandi vinnu. Fræðsluráð leggur til að stofnaður verði vinnuhópur samhliða skipulagsáformum.
4.
Mælaborð hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga
Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs, kynnir mælaborð Samband íslenskra sveitarfélaga sem snýr að rekstrarkostnaði leik - og grunnskóla.
Lagt fram til kynningar
5.
MEMM - Menntun,móttaka,menning
Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs, fer yfir MEMM verkefnið og hvaða þjónustu þau ætla að bjóða út á land.
Fræðsluráð fagnar því að verið sé að veita stuðning í þessum málum á landsbyggðinni.
6.
Viðhald skólahúsnæðis
Stjórnendur skólanna fara yfir þær framkvæmdir sem hafa verið á skólahúsnæði í sumar.
Lagt fram til kynningar
7.
Námsmat í grunnskóla
Friðrik Arnarson, skólastjóri Árskógar - og Dalvíkurskóla fer yfir Námsmatsáætlun grunnskólanna og kynnir ný leiðrétt lög um námsmat.
Fræðsluráð þakkar Friðriki fyrir góða kynningu á námsmati í grunnskóla.
8.
Fjárhagsáætlunargerð 2026
Tekið fyrir erindi frá Önnu Kristínu Guðmundsdóttur dags. 18.08.2025, tengt fjárhagsáætlunargerð fyrir fjárhagsárið 2026
Fræðsluráð vísar málinu inn í vinnuhóp um skólalóðir grunnskóla í Dalvíkurbyggð.