Fræðsluráð
305. fundur
14. maí 2025
kl.
08:15
-
11:00
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Sigríður Jódís Gunnarsdóttir
formaður
Benedikt Snær Magnússon
aðalmaður
Jolanta Krystyna Brandt
varaformaður
Þórhalla Karlsdóttir
varamaður
Starfsmenn
Gísli Bjarnason
sviðsstjóri
Fundargerð ritaði:
Gísli Bjarnason
Sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs
Dagskrá
1.
Skóladagatal skólanna 2025 - 2026
Tekið fyrir skóladagatal leikskólans á Krílakoti fyrir skólaárið 2025 - 2026.
Fræðsluráð samþykkir með fjórum atkvæðum skóladagatal Krílakots, með þeirri breytingu að Þorláksmessudagur verði ekki skráningadagur þar sem að hann er reiknaður sem venjulegur leikskóladagur.
2.
Skráningadagar í leikskóla
Tekið fyrir minnisblað frá stjórnendum leikskólans á Krílakoti er varða skráningadaga í leikskóla.
Fræðsluráð leggur til að skráningagjald verði reiknað sem hlutfall af vistunartíma barna. Stjórnendum falið að upplýsa foreldra.
3.
Hollar skólamáltíðir fyrir loftslagið og líðan barna
Tekið fyrir erindi frá Háskóla Íslands er varðar Málþing um hollar skólamáltíðir fyrir loftslagið og líðan barna.
Lagt fram til kynningar
4.
Samfelldur náms- og tómstundadagur barna
Upplýst um stöðu mála varðandi verkefnið.
Lagt fram til kynningar
5.
Frávikagreiningar fyrir fjárhagsárið 2024. Málaflokkur 04. Fræðslumál
Stjórnendur stofnanna á fræðslusviði, málaflokki 04 (fræðslumál) fara yfir helstu frávik í fjárhagsáætlun fyrir fjárhagsárið 2024.
Fræðsluráð þakkar stjórnendum fyrir yfirferð á frávikum fyrir fjárhagsárið 2024.
6.
Endurmenntunarsjóður grunnskóla 2025
Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs fer yfir niðurstöðu á umsóknum í Endurmenntunarsjóð grunnskóla fyrir skólaárið 2025 - 2026.
Lagt fram til kynningar.
7.
Bréf frá starfsmönnum Kötlukots
Tekið fyrir bréf frá starfsmönnum Kötlukots dags. 28.04.2025, er varðar lokunar - og skráningadaga á leikskólanum Kötlukoti.
Fræðsluráð felur skólastjórnendum að upplýsa starfsfólk um niðurstöðu.
8.
Trúnaðarmál
Bókað í trúnaðarmálabók.
Bókað í trúnaðarmálabók.
9.
Heimsóknir fræðsluráðs í leik- og grunnskóla
Fræðsluráð fer í heimsókn á Krílakot.
Fræðsluráð þakkar stjórnendum fyrir móttökuna.