Fræðsluráð
303. fundur
12. mars 2025
kl.
08:15
-
11:15
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Sigríður Jódís Gunnarsdóttir
formaður
Benedikt Snær Magnússon
varaformaður
Jolanta Krystyna Brandt
aðalmaður
Monika Margrét Stefánsdóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Gísli Bjarnason
sviðsstjóri
Fundargerð ritaði:
Gísli Bjarnason
Sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs
Dagskrá
1.
Trúnaðarmál
Bókað í Trúnaðarmálabók
Bókað í trúnaðarmálabók
2.
Skóladagatal skólanna 2025 - 2026
Skólastjórnendur skólanna fara yfir fyrstu drög að skóladagatölum skólanna fyrir skólaárið 2025 - 2026.
Fræðsluráð þakkar stjórnendum fyrir góða yfirferð á drögum að skóladagatali. Skóladagatöl skólanna verða lögð fyrir fræðsluráð til samþykktar í apríl.
3.
Mánaðarlegar skýrslur 2025
Sviðsstjóri og stjórnendur skóla fara yfir fjárhagslegt stöðumat fyrir fjárhagsárið 2025.
Lagt fram til kynningar
4.
Eineltisamfélagsgerð
Formaður félagsmálaráðs hóf máls á vandamálum tengdu einelti og ofbeldi.Félagsmálaráð fagnar umræðunni og telur mikla þörf á jákvæðum samskiptum allra íbúa Dalvíkurbyggðar. Vinnuhóp farsældar barna falið að halda kynningu í farsæld barna í Dalvíkurbyggð þar sem forsendur eru að grípa á utan um börn og foreldra þeirra. Kynning á farsæld barna er á heimasíðu Dalvíkurbyggðar. Félagsmálaráð vekur athygli á að gulum september sem tileinkaður er geðheilbrigði og sjálfsvígforvörnum. Félagsmálaráð skorar á önnur ráð að taka umræðuna um jákvæð og uppbyggileg samskipti. Félagsmálaráð stefnir á jákvæðnis viku í Dalvíkurbyggð.
Fræðsluráð tekur jákvætt í það að hafa jákvæðnisviku í Dalvíkurbyggð.
5.
Árskógarskóli
Friðrik Arnarson, skólastjóri Árskógar - og Dalvíkurskóla, fer yfir samantekt á niðurstöðum um foreldrakönnun í Árskógarskóla.
Fræðsluráð leggur til með fjórum atkvæðum að Árskógarskóli verði fyrir nemendur frá leikskólaaldri og upp í 6. bekk næsta haust samkvæmt tillögum stjórnenda eftir að hafa unnið úr foreldrakönnun sem gerð var í Árskógarskóla. Hugað verði að því að 5. og 6. bekkur fari í Dalvíkurskóla haustið 2026. Fræðsluráð leggur áherslu á aukna samkennslu fræðslustofnanna Dalvíkurbyggðar og óskar eftir tillögum þess efnis frá stjórnendum. Óskað er eftir að hugmyndir koma inn á fund í maí hjá Fræðsluráði.
6.
Framlenging á samningi um skólaakstur 2025 - 2026
Tekið fyrir minnisblað frá Sviðsstjóra fræðslu - og menningarsviðs dags. 20. febrúar 2025.
Fræðsluráð samþykkir með fjórum atkvæðum að leggja til við sveitastjórn að endurnýja samning við Ævar og Bóas ehf. fyrir skólaárið 2025 - 2026.
7.
Vinnuhópur um skólalóð Dalvíkurskóla
Óskað er eftir að Fræðsluráð tilnefni fulltrúa í vinnuhóp um skólalóð Dalvíkurskóla.
Fræðsluráð samþykkir með fjórum atkvæðum að Benedikt Snær Magnússon verði fulltrúi fræðsluráðs í vinnuhópnum.
8.
Endurmenntunarsjóður grunnskóla 2025
Sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs, fór yfir þær umsóknir sem skólaskrifstofa sótti um í tengslum við Menntastefnu Dalvíkurbyggðar.
Lagt fram til kynningar
9.
Heimsóknir fræðsluráðs í leik- og grunnskóla
Fræðsluráð fer í heimsókn í Árskógarskóla
Fræðsluráð þakkar fyrir móttökunar í Árskógarskóla