Fara í efni

Fræðsluráð

299. fundur
13. nóvember 2024 kl. 08:15 - 10:45
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Jolanta Krystyna Brandt formaður
Sigríður Jódís Gunnarsdóttir aðalmaður
Benedikt Snær Magnússon varaformaður
Monika Margrét Stefánsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
Gísli Bjarnason sviðsstjóri
Fundargerð ritaði:
Gísli Bjarnason Sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs
Snæþór Arnþórsson boðaði forföll og engin kom í hans stað. Aðrir sem sitja fund:Friðrik Arnarson skólastjóri Dalvíkurskóla og Árskógarskóla, Ágústa Kristín Bjarnadóttir leikskólastjóri á Krílakoti,Elvý Guðríður Hreinsdóttir, aðstoðarleikskólastjóri á Krílakoti, Helga Lind Sigmundsdóttir, deildarstjóri í Árskógarskóla, Una Dan Pálmadóttir fulltrúi starfsmanna í leikskóla á Krílakoti, Matthildur Matthíasdóttir, grunnskólakennari, fulltrúi starfsfólks í Dalvíkurskóla. Dominique Sigrúnardóttir, fulltrúi foreldra á Krílakoti.
Dagskrá
1.
Krílakot Lóð - E2203
Málsnúmer 202202100
Tekin fyrir síðasta fundagerð hjá vinnuhópi um skólalóð á leikskólanum Krílakoti.
Fræðsluráð leggur til að þar sem að lóð er nánast tilbúin að vinnuhópur verði lagður niður.
2.
Skólaþjónusta
Málsnúmer 202002020
Tekið fyrir Minnisblað frá sviðstjóra fræðslu - og menningarsviðs og stjórnendum skólanna.
Fræðslráð felur sviðsstjóra að koma með drög að samningum við HA og Ásgarð á næsta fund hjá ráðinu.
3.
Fjárhagslegt stöðumat fyrir (04) fræðslumál. 2024
Málsnúmer 202403058
Stjórnendur fóru yfir fjárhagslegt stöðumat hjá sínum stofnunum.
Lagt fram til kynningar
Leikskólafólk fór af fundi kl. 08:50.
4.
Skólapúlsinn - niðurstöður úr Dalvíkurskóla
Málsnúmer 201901018
Friðrik Arnarson, skólastjóri Árskógar - og Dalvíkurskóla, fer yfir niðurstöður úr skólapúlsinum sem lagt er fyrir nemendur í Dalvíkurskóla.
Gunnhildur Birnisdóttir, verkefnastjóri sérkennslu í Dalvíkurskóla kom inn á fund kl. 08:50
Fræðsluráð þakkar Friðriki fyrir góða kynningu á Skólapúlsinum.
5.
Skimanir í grunnskóla
Málsnúmer 202411047
Gunnhildur Birnisdóttir, verkefnastjóri í sér - og stuðningskennslu, fer yfir skimanir í grunnskólum og hvernig er unnið úr þeim.
Fræðsluráð þakkar Gunnhildi Birnisdóttir, verkefnastjóra í sérkennslu, fyrir góða kynningu á úrvinnslu skimana í grunnskólum í Dalvíkurbyggð.
Gunnhildur fór af fundi kl. 09:30
6.
Samskipta - og eineltisteymi
Málsnúmer 202411048
Friðrik Arnarson, skólastjóri Árskógar - og Dalvíkurskóla, fer yfir hvernig unnið er í eineltismálum í Dalvíkurskóla.
Fræðsluráð þakkar Friðriki Arnarsyni fyrir góða kynningu á samskipta - og eineltisteymi Dalvíkurskóla.
7.
Niðurstöður lesferils nemenda í Dalvíkurskóla
Málsnúmer 202411049
Friðrik Arnarson, skólastjóri Árskógar - og Dalvíkurskóla, fer yfir niðurstöður á lesferli nemenda sem lagt var fyrir í september.
Fræðsluráð þakkar Friðriki Arnarsyni, skólastjóra fyrir góða kynningu á lesferli nemenda í Dalvíkurskóla.
8.
Árskógarskóli
Málsnúmer 202405081
Tekin fyrir fundagerð frá opnum fundi skólaráðs Árskógarskóla sem haldin var 30. október í Árskógarskóla.
Fræðsluráð leggur til við Byggðaráð að gerð verði könnun hjá foreldrum og íbúum á Árskógarströnd um framtíðarsýn varðandi grunnskóla á Árskógsströnd. Sviðsstjóra falið að koma þessu sem fyrst inn í Byggðaráð.