Fræðsluráð
298. fundur
9. október 2024
kl.
08:15
-
11:00
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Jolanta Krystyna Brandt
formaður
Sigríður Jódís Gunnarsdóttir
aðalmaður
Snæþór Arnþórsson
aðalmaður
Benedikt Snær Magnússon
varaformaður
Monika Margrét Stefánsdóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Gísli Bjarnason
sviðsstjóri
Fundargerð ritaði:
Gísli Bjarnason
Sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs
Dagskrá
1.
Krílakot Lóð - E2203
Fulltrúar vinnuhóps fóru yfir stöðu mála varðandi framkvæmdir á skólalóð.
Framkvæmdir við skólalóð eru samkvæmt áætlun.
2.
Svefnstefna Krílakots
Tekin fyrir umsögn frá óháðum aðila um svefnstefnu leikskólans á Krílakoti
Fræðsluráð samþykkir með fimm atkvæðum svefnstefnu leikskóla Dalvíkurbyggðar með þeim breytingum að hún nái yfir báða leikskólanna og bætt verði inn í inngang stefnunar um hver vann svefnstefnuna.
3.
Reglur varðandi virtan vistunartíma barna í leikskóla
Tekið fyrir erindi frá leikskólastjóra á Krílakoti dags. 04.10.2024.
Leikskólastjórar koma með tillögu um nánari útfærslu á næsta fund hjá ráðinu.
4.
Forgangur á leikskólaplássi fyrir kennaramenntaða starfsmenn eftir fæðingarorlof
Tekið fyrir erindi frá leikskólastjóra á Krílakoti dags. 04.10.2024.
Fræðsluráð fagnar umræðunni um leiðir til að auka fagmenntun í leikskólum en getur ekki samþykkt erindið vegna mismununnar.
5.
Gjaldfrjáls leikskóli
Síðasta fundagerð vinnuhóps lögð fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar. Mikilvægt að leikskólastjórar haldi utan um gögn og upplýsingar um gjaldfrjálsan leikskóla þar sem að þetta er tilraunaverkefni í eitt ár og verður endurskoðað á vorönn.
6.
Geðheilsuvísar frá Geðhjálp
Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs fer yfir glærur frá Grími í Geðhjálp - Geðheilsuvísir.
Lagt fram til kynningar
7.
Nægjusamur nóvember
Tekið fyrir erindi frá Landvernd dags. 26.09.2024 sem vekur athygli á hvatningarátaki Landverndar og Grænfánaverkefnisins undirheitingu Nægjusamur nóvember. Þar sem lagt er til að nægjusemi sé viðhöfð sem jákvætt skref fyrir okkur semeinstaklinga og samfélag til þess að stuðla að góðu og heilbrigðu lífi og minnka um leið vistsporið okkar. Nóvemberer einn neysluríkasti mánuður ársins og áherslur á nægjusemi er mótsvar við neysluhyggju og hugmyndinni um aðokkur vanti stöðugt eitthvað.Þetta er hvatning til sveitarfélaga til þess að taka þátt í átakinu og hvetja til nægjuseminnar hvort sem það er meðviðburðarhaldi, greinaskrifum eða bara með því að fylgjast með og njóta átaksins
Lagt fram til kynningar.
8.
Jákvæð samskipti í Dalvíkurbyggð
Tekið til umræðu
Fræðsluráð vekur athygli á geðrækt og góðum samkiptum og tekur undir bókun félagsmálaráðs um jákvæðnisviku í Dalvíkurbyggð.
9.
Reglur varðandi skólasókn í leik - og grunnskólum fyrir utan lögheimilissveitarfélags
Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs, fór yfir drög að reglum varðandi skólasókn fyrir utan lögheimilissveitarfélags.
Fræðsluráð samþykkir með fimm atkvæðum reglur varðandi námsvist fyrir utan lögheimilissveitarfélög.
10.
Starfsáætlun fræðsluráðs
Starfsáætlun fræðsluráðs m tekin til umfjöllunar
Unnið áfram í málinu milli funda.
11.
Starfs - og fjárhagsáætlun 2025 og þriggja ára áætlun 2026 - 2028
Starfsáætlun skólaskrifstofu Dalvíkurbyggðar lögð fram.
Fræðsluráð samþykkir með fimm atkvæðum starfsáætlun skólaskrifstofu.