Fara í efni

Fræðsluráð

295. fundur
21. ágúst 2024 kl. 08:15 - 10:50
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Jolanta Krystyna Brandt formaður
Sigríður Jódís Gunnarsdóttir aðalmaður
Snæþór Arnþórsson aðalmaður
Benedikt Snær Magnússon varaformaður
Monika Margrét Stefánsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
Gísli Bjarnason sviðsstjóri
Fundargerð ritaði:
Gísli Bjarnason Sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs
Dagskrá
1.
Krílakot Lóð - E2203
Málsnúmer 202202100
Fundagerðir vinnuhóps um skólalóð lagðar fram til kynningar.
Vinnuhópur um skólalóð upplýsti fræðsluráð um þær breytingar sem hafa verið gerðar á hönnun leikskólalóðar vegna vankanta á hönnunargögnum.
3.
Gjaldfrjáls leikskóli
Málsnúmer 202311016
Guðrún Halldóra Jóhannsdóttir, leikskólastjóri á Krílakoti,Ágústa Kristín Bjarnadóttir, aðstoðarleikskólastjóri og Helga Lind Sigmundsdóttir, deildarstjóri í Árskógarskóla fara yfir fjölda skráninga í leikskólanna nú í haust.
Fræðsluráð fagna því hversu vel foreldrar hafa tekið þeim breytingum sem samþykktar voru í vor, og farið var að vinna eftir nú eftir sumarfrí. 50,4% nemenda leikskóla Dalvíkurbyggðar eru nú skráð í gjaldfrjálsan leikskóla, og telja stjórnendur það hlutfall eiga eftir að aukast. Fyrir utan þá kjarauppbót sem gjaldfrjáls leikskóli þýðir fyrir forelda barna skráða í gjaldfrjálsa vistun, er gjaldfrjáls leikskóli liður í að létta álag á leikskólunum og gera þá að spennandi vinnustöðum fyrir fagmenntaða einstaklinga til þess að starfa við. Þó er ljóst að hlutur Dalvíkurbyggðar í kostnaði við rekstur leikskólanna muni aukast. Rekstur Krílakots undanfarin ár hefur verið um og yfir 300 milljónir á ári, og hefur hlutfall foreldra í kostnaði verið um 30 milljónir, eða 10%. Ljóst er að það hlutfall mun lækka um 4-5% og hlutdeild Dalvíkurbyggðar í rekstri leikskólanna hækka á móti. Fræðsluráð leggur áherslu á að vinnuhópur fylgist með framgangi og upplýsi fræðsluráð sem þurfa þykir í vetur.
4.
Svæðisbundið farsældarráð - tillaga frá MNR
Málsnúmer 202405188
Tekið fyrir bréf frá SSNE - Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra dags. 23.05.2024.
Lagt fram til kynningar
5.
Starfsmannamál í leik - og grunnskóla
Málsnúmer 201912084
Guðrún Halldóra Jóhannsdóttir, leikskólastjóri á Krílakoti, Ágústa Kristín Bjarnadóttir, aðstoðarleikskólastjóri og Friðrik Arnarson, skólastjóri Árskógar - og Dalvíkurskóla fóru yfir helstu breytingar á starfsmannamálum nú í haust.
Lagt fram til kynningar
6.
Skólanámsskrár leik - og grunnskóla 2024 - 2025
Málsnúmer 202408035
Stjórnendur fara yfir skólanámskrár skólanna fyrir skólaárið 2024 - 2025.
Fræðsluráð gerir ekki athugasemdir við skólanámskrár skólanna og óskar eftir að þær verði birtar sem fyrst á heimsíðum skólanna.
7.
Fjárhagslegt stöðumat fyrir (04) fræðslumál. 2024
Málsnúmer 202403058
Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs og stjórnendur skólanna fara yfir fjárhagslegt stöðumat hjá sínum stofnunum.
Lagt fram til kynningar
8.
Innra mat skóla
Málsnúmer 201806041
Guðrún Halldóra Jóhannsdóttir, leikskólastjóri á Krílakoti, Ágústa kristín Bjarnadóttir, aðstoðarleikskólastjóri og Friðrik Arnarson, skólastjóri Dalvíkurskóla, fara yfir innra mat skólanna og umbótaáætlanir.
Fræðsluráð fagnar því að unnið sé markvisst að innra mati skólanna á komandi skólaári.
9.
Gjaldskrár 2024
Málsnúmer 202307014
Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs, fer yfir uppfærða gjaldskrá fyrir fræðslusvið.
Fræðsluráð samþykkir gjaldskrá fræðslusviðs með fimm samhljóða atkvæðum. Sviðsstjóra falið að fara yfir orðalag er varðar afsláttarkjör og leggja fyrir ráðið á næsta fundi.
10.
Minnisblað til sveitarfélaga um gjaldfrjálsar skólamáltíðir
Málsnúmer 202407032
Tekið fyrir minnisblað frá Samandi Íslenskra sveitarfélaga dags. 04.07. er varðar gjaldfrjálsar skólamáltíðir í grunnskólum.
Lagt fram til kynningar.