Fara í efni

Fræðsluráð

294. fundur
12. júní 2024 kl. 08:15 - 10:10
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Sigríður Jódís Gunnarsdóttir aðalmaður
Snæþór Arnþórsson aðalmaður
Benedikt Snær Magnússon varaformaður
Helgi Einarsson varamaður
Þórhalla Karlsdóttir varamaður
Starfsmenn
Gísli Bjarnason sviðsstjóri
Fundargerð ritaði:
Gísli Bjarnason Sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs
Dagskrá
1.
Krílakot Lóð - E2203
Málsnúmer 202202100
Stutt kynning á útboðsgögnum vegna endurbætur á skólalóð Krílakots.
Fræðsluráð þakkar Helgu Írisi, deildastjora Eigna - og framkvæmdadeildar, fyrir góða kynningu á útboðsgögnum á endurbótum á leikskólalóð á Krílakoti.
2.
Gjaldfrjáls leikskóli
Málsnúmer 202311016
Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs, fór yfir stöðuna á verkefninu.
Lagt fram til kynningar
3.
Ósk um breytingu á innritunarreglum í leikskóla í Dalvíkurbyggð
Málsnúmer 202303041
Teknar fyrir innritunarreglur í leikskóla og settar inn breytingar vegna gjaldfrjáls leikskóla.
Fræðsluráð samþykkir með fimm atkvæðum innritunarreglur leikskóla í Dalvíkurbyggð.
4.
Styrkur úr Sprotajóði
Málsnúmer 202406018
Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs, upplýsti Fræðsluráð um styrk sem sótt var um hjá Sprotasjóði.
Dalvíkurskóli sótti um styrk í Sprotasjóð og var úthlutað 3.500.000 kr. til tveggja ára til að styrkja teymiskennslu í skólanum.
5.
Starfs - og fjárhagsáætlun 2025 og þriggja ára áætlun 2026 - 2028
Málsnúmer 202406019
Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs, fór yfir tímaramma fyrir fjárhagsáætlunarferli fyrir fjárhagsárið 2025. Einnig að óska eftir ábendingum frá kjörnum fulltrúum ef þeir vilja sjá eitthvað ákveðið í næstu fjárhagsáætlun sem tengist fræðslumálum í sveitarfélaginu.
Lagt fram til kynningar
6.
Innra mat skóla
Málsnúmer 201806041
Lagt fyrir drög að innramatsskýrslu og umbótaáætlun fyrir Dalvíkurskóla. Guðrún Halldóra Jóhannsdóttir, leikskólastjóri fer yfir stöðuna á vinnu við innra mat hjá leikskólanum Krílakoti. Helga Lind Sigmundsdóttir, deildarstjóri í Árskógarskóla fór yfir stöðuna á innra mati Árskógarskóla.
Ánægjulegt að vinna við markvisst innra mat er farið af stað í skólunum. Fræðsluráð óskar eftir að lokaskýrslur um innra mat og umbótaáætlanir koma inn á fund í ágúst.
7.
Fjárhagslegt stöðumat fyrir (04) fræðslumál. 2024
Málsnúmer 202403058
Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs, fór yfir fjárhagslegt stöðumat á málaflokki 04. fræðslumál.
Lagt fram til kynningar.
8.
Skóladagatal skólanna 2024 - 2025
Málsnúmer 202402040
Tekið fyrir skóladagatal Árskógarskóla fyrir skólaárið 2024 - 2025.
Fræðsluráð samþykkir með fimm atkvæðum skóladagatal Árskógarskóla með þeim breytingum sem ræddar voru á fundinum.