Fara í efni

Fræðsluráð

281. fundur
12. apríl 2023 kl. 08:15 - 11:25
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Sigríður Jódís Gunnarsdóttir aðalmaður
Snæþór Arnþórsson aðalmaður
Benedikt Snær Magnússon varaformaður
Monika Margrét Stefánsdóttir aðalmaður
Gunnar Kristinn Guðmundsson varamaður
Starfsmenn
Gísli Bjarnason sviðsstjóri
Fundargerð ritaði:
Gísli Bjarnason Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
Jolanta Krystyna Brandt, boðaði forföll og í hennar stað kemur Gunnar Kristinn Guðmundsson. Aðrir sem sátu fund: Friðrik Arnarson skólastjóri Dalvíkurskóla og Árskógarskóla, Guðrún Halldóra Jóhannsdóttir leikskólastjóri á Krílakoti, Ágústa Kristín Bjarnadóttir aðstoðarleikskólastjóri á Krílakoti, Kristín Magdalena Dagmannsdóttir fulltrúi starfsmanna á Krílakoti, Hugrún Felixdóttir fulltrúi kennara í Dalvíkurskóla.
Dagskrá
1.
Krílakot - Endurnýjun á leikskólalóð
Málsnúmer 202202100
Helga Íris Ingólfsdóttir, Deildarstjóri eigna- og framkvæmdadeildar, fór yfir stöðu mála varðandi vinnu við endurnýjun á leikskólalóð á Krílakoti.
Fræðsluráð þakkar Helgu Írisi Ingólfsdóttur, fyrir góða kynningu á stöðu mála varðandi vinnu við endurnýjun á leikskólalóð á Krílakoti og næstu skref.
Snæþór Arnþórsson, kom inn á fund kl. 08:33
Helga Íris Ingólfsdóttir, fór af fundi kl. 08:40
2.
Ósk um breytingu á innritunarreglum í leikskóla í Dalvíkurbyggð
Málsnúmer 202303041
Guðrún Halldóra Jóhannsdóttir, leikskólastjóri fór yfir þær breytingar sem óskað er eftir við innritun í leikskóla.
Friðrik Arnarson, skólastjóri Árskógar - og Dalvíkurskóla, Hugrún Felixdóttir, fulltrúi starfsmanna í Dalvíkurskóla, komu inn á fund kl. 08:40
Fræðsluráð samþykkir með fimm atkvæðum að innritun í leikskóla verði að jafnaði við 12 mánaða aldur. Fræðsluráð óskar jafnframt að heildar reglur verði samræmdar við leikskólann í Árskógarskóla.
3.
Mánaðarlegar skýrslur 2023
Málsnúmer 202303028
Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs, fór yfir fjárhagslega stöðu á málaflokki 04.
Fræðsluráð þakkar Gísla fyrir góða kynningu á fjárhagsstöðu á málaflokki 04.
4.
Skóladagatöl skólanna 2023 - 2024
Málsnúmer 202301163
Friðrik Arnarson, skólastjóri Árskógar- og Dalvíkurskóla, og Guðrún Halldóra Jóhannsdóttir, leikskólastjóri á Krílakoti, fóru yfir skóladagatöl skólanna fyrir skólaárið 2023 - 2024.
Fræðsluráð samþykkir með fimm greiddum atkvæðum skóladagatal Dalvíkurskóla. Fræðsluráð samþykkir með fimm greiddum atkvæðum skóladagatal Krílakots fyrir skólaárið 2023 - 2024, með þeim breytingum að leikskólinn verði opin í vetrarfríi á vorönn og þeir dagar verði valfrjálsir fyrir foreldra.
5.
Starfsmannamál í leik - og grunnskóla
Málsnúmer 201912084
Friðrik Arnarson, skólastjóri Árskógar- og Dalvíkurskóla, og Guðrún Halldóra Jóhannsdóttir, leikskólastjóri á Krílakoti, fóru yfir stöðuna á starfsmannahaldi fyrir skólaárið 2023 - 2024.
Fræðsluráð þakkar Friðriki og Guðrúnu Halldóru fyrir góða yfirferð á starfsmannamálum fyrir næsta skólaár.
6.
Samningur við Háskólann á Akureyri um skólaþjónustu við leik - grunnskóla í Dalvíkurbyggð
Málsnúmer 202003115
Tekið fyrir minnisblað frá Gísla Bjarnasyni, Sviðsstjóra fræðslu- og menningarsviðs dags. 10.04.2023.
Fræðsluráð samþykkir með fimm atkvæðum að framlengja samning við HA, með þeim fyrirvara að geta sagt honum upp með litlum fyrirvara, ef breyting verði á löggjöf um skólaþjónustu. Fræðsluráð felur sviðsstjóra að ganga frá samningi við HA.
Leikskólafólk fór af fundi kl. 09:57
7.
Niðurstöður úr foreldrakönnun 2023
Málsnúmer 202304016
Friðrik Arnarson, skólastjóri Árskógar- og Dalvíkurskóla, fór yfir niðurstöður úr foreldrakönnun fyrir grunnskólanna skólaárið 2023.
Fræðsuráð þakkar Friðriki fyrir góða kynningu á niðurstöðum á foreldrakönnun í Árskógar- og Dalvíkurskóla.
8.
Skólalóð Dalvíkurskóla
Málsnúmer 202005032
Umræða um skólalóð Dalvíkurskóla. Tekið fyrir minnisblað frá Gísla Bjarnasyni, sviðsstjóra fræðslu- og menningarsviðs, dags. 10.04.2023.
Fræðsluráð samþykkir með fimm greiddum atkvæðum að vísa málinu til skipulagsráð Dalvíkurbyggðar og leggur til að svæðið í kringum Dalvíkurskóla fari í deiliskipulag og að skólalóð Dalvíkurskóla verði kláruð eins og gert var ráð fyrir samkvæmt teikningu.
Grunnskólafólk, fór af fundi kl. 10:45
9.
Skýrsla um bættar starfsaðstæður kjörinna fulltrúa
Málsnúmer 202303219
Tekið fyrir bréf frá Innviðaráðuneyti, dags. 15. mars 2023.
Gunnar Kristinn Guðmundsson,fór af fundi kl. 10:48
Lagt fram til kynningar.
10.
Eldhugarnir
Málsnúmer 202304045
Tekið fyrir bréf frá Þorgrími Þráinssyni, dags. 5. febrúar 2023. Eldhugarnir.
Fræðsluráð finnst margar góðar hugmyndir í þessu bréfi og er sviðsstjóra falið að kynna fyrir stjórnendum á fræðslu- og menningarsviði.