Fara í efni

Fræðsluráð

275. fundur
12. október 2022 kl. 08:15 - 09:40
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Sigríður Jódís Gunnarsdóttir aðalmaður
Jolanta Krystyna Brandt formaður
Benedikt Snær Magnússon varaformaður
Þórhalla Karlsdóttir aðalmaður
Júlía Ósk Júlíusdóttir varamaður
Starfsmenn
Gísli Bjarnason sviðsstjóri
Fundargerð ritaði:
Gísli Bjarnason Sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs.
Dagskrá
1.
Krílakot - Endurnýjun á leikskólalóð
Málsnúmer 202202100
Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs, fór yfir stöðu mála varðandi endurnýjun á leikskólalóð á Krílakoti.
Lagt fram til kynningar.
2.
Umsókn um ytra mat hjá leikskóla
Málsnúmer 202210007
Tekin fyrir rafpóstur frá Menntamálastofnun dags. 05.10.2022. Umsókn um ytra mat á leikskóla.
Lagt fram til kynningar.
3.
Samningur við Háskólann á Akureyri um skólaþjónustu við leik- og grunnskóla í Dalvíkurbyggð
Málsnúmer 202003115
Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs, lagði fyrir fræðsluráð nýjan samning frá Háskólanum á Akureyri um skólaþjónustu við leik - og grunnskóla í Dalvíkurbyggð.
Lagt fram til kynningar.
4.
Gjaldskrár fræðslu- og menningarsviðs 2023
Málsnúmer 202209094
Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs, lagði fyrir gjaldskrá fræðslusviðs fyrir fjárhagsárið 2023.
Fræðsluráð leggur til að gerð verði endurskoðun á útleigu á sölum í Dalvíkurbyggð. Fræðsluráð leggur til að leikskólagjöld hækki samkvæmt verðbólguspá 4,9 % að lágmarki. Fræðsluráð vísar gjaldskrá fræðslusviðs til umfjöllunar og afgreiðslu í Byggðaráði.

Fræðsluráð leggur til að skoðuð verði niðurgreiðsla á skólamat með gagnrýndum augum.
5.
Starfsáætlun fræðsluráðs
Málsnúmer 201901009
Gísli Bjarnason, Sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs, lagði fyrir ráðið drög að starfsáætlun Fræðsluráðs.
Fræðsluráð gerir ekki athugasemdir við starfsáætlun fræðsluráðs.
6.
Niðurstöður lesferils í Dalvíkurskóla og Árskógarskóla
Málsnúmer 201910028
Friðrik Arnarson, skólastjóri Árskógar- og Dalvíkurskóla, fer yfir niðurstöður lesferils í Dalvíkurskóla og Árskógarskóla.
Lagt fram til kynningar.
7.
Grunnskóli - sérkennslustefna
Málsnúmer 201802035
Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs og Friðrik Arnarsson, skólastjóri Árskógar- og Dalvíkurskóla fóru yfir sérkennslustefnu í grunnskólum.
Lagt fram til kynningar.