Fara í efni

Fræðsluráð

272. fundur
10. ágúst 2022 kl. 08:15 - 10:50
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Jolanta Krystyna Brandt formaður
Benedikt Snær Magnússon varaformaður
Þórhalla Karlsdóttir aðalmaður
Júlía Ósk Júlíusdóttir varamaður
Gunnar Kristinn Guðmundsson varamaður
Starfsmenn
Gísli Bjarnason sviðsstjóri
Fundargerð ritaði:
Gísli Bjarnason Sviðsstjóri Fræðslu- og menningarsviðs
Dagskrá
1.
Ályktun bæjarráðs Árborgar um leikskólamál
Málsnúmer 202111008
Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs, lagði fram til kynningar ályktun bæjarráðs Árborgar um leikskólamál til Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Lagt fram til kynningar. Fræðsluráð Dalvíkurbyggðar skorar á Samband íslenskra sveitarfélaga að standa fyrir málþingi samkvæmt ályktun Árborgar.
2.
Innra mat skóla
Málsnúmer 201806041
Friðrik Arnarsson, skólastjóri Dalvíkurskóla og fór yfir innramatsskýrslu skólans.
Lagt fram til kynningar.
3.
Skólanámsskrár skólanna 2022 - 2023
Málsnúmer 202208007
Friðrik Arnarsson, skólastjóri Árskógar - og Dalvíkurskóla og Guðrún Halldóra Jóhannsdóttir, leikskólastjóri á Krílakoti fóru yfir helstu áherslur í skólanámskrá skólanna.
Fræðsluráð samþykkir skólanámsskrár skólanna með fimm atkvæðum og vísar þeim til staðfestingar í sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar.
4.
Íslenska æskulýðsrannsóknin
Málsnúmer 202208008
Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs, lagði fram til kynningar niðurstöður úr Íslensku æskulýðsrannsókninni fyrir Dalvíkurbyggð.
Lagt fram til kynningar. Málið tekið fyrir aftur á næsta fundi.
5.
Starfsmannamál í leik - og grunnskóla
Málsnúmer 201912084
Friðrik Arnarsson, skólastjóri Árskógar - og Dalvíkurskóla og Guðrún Halldóra Jóhannsdóttir, leikskólastjóri á Krílakoti fóru yfir helstu breytingar í starfsmannamálum hjá skólunum fyrir næsta skólaár.
Lagt fram til kynningar.
6.
Samningur við Háskólann á Akureyri um skólaþjónustu við leik - grunnskóla í Dalvíkurbyggð
Málsnúmer 202003115
Tekin fyrir bókun Byggðaráðs dags. 14. júlí. Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að fela fræðsluráði og sviðsstjóra fræðslu- og menningarsviðs að fara yfir fyrirkomulag skólaþjónustu og hvort að núverandi samningur uppfylli fyrirliggjandi þarfir og þær væntingar sem gerðar voru.Einnig tekið fyrir minnisblað frá sviðsstjóra fræðslu - og menningarsviðs dags. 07. júlí 2022.
Fræðsluráð leggur til að tillaga frá sviðsstjóra verði samþykkt. Um að framlengja samning um eitt ár. Sviðsstjóra er falið að ræða við Háskólann á Akureyri um endurskoðun á uppsagnarákvæði í samningi og miða við upphaf nýs skólaárs.
7.
Siðareglur kjörinna fulltrúa. Endurskoðun í upphafi kjörtímabils 2022-2026
Málsnúmer 202205191
Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs, fór yfir siðareglur kjörinna fulltrúa.
Lagt fram til kynningar.