Fara í efni

Fræðsluráð

267. fundur
9. febrúar 2022 kl. 08:00 - 10:30
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson formaður
Felix Rafn Felixson varaformaður
Þórhalla Karlsdóttir aðalmaður
Sigríður Jódís Gunnarsdóttir aðalmaður
Dagbjört Sigurpálsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
Gísli Bjarnason sviðsstjóri
Fundargerð ritaði:
Gísli Bjarnason sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
Aðrir sem sátu fund á Teams: Friðrik Arnarson, skólastjóri Dalvíkurskóla og Árskógarskóla, Magni Þór óskarsson, fulltrúi kennara í Dalvíkurskóla, Dagbjört Sigurpálsdóttir, kjörinn fulltrúi, Margrét Eiríksdóttir, áheyrnafulltrúi foreldra í Dalvíkurskóla. Aðrir sem sátu fund í Upsa: Ágústa Kristín Bjarnadóttir, aðstoðarleikskólastjóri á Krílakoti, María Jónsdóttir, fulltrúi starfsmanna á Krílakoti, Ragnheiður Ýr Guðjónsdóttir, áheyrnarfulltrúi foreldra í Árskógarskóla, Erla Hrönn Sigurðardóttir, fulltrúi foreldra á leikskólanum Krílakoti. Hjördís Jóna Bóasdóttir, deildarstjóri í Árskógarskóla og fulltrúi starfsfólks í Árskógarskóla boðaði forföll.
Dagskrá
1.
Ósk um breytingu á skóladagatali 2021-2022
Málsnúmer 202202022
Guðrún Halldóra Jóhannsdóttir, leikskólastjóri á Krílakoti og Ágústa Kristín Bjarnadóttir, aðstoðarleikskólastjóri á Krílakoti, leggja fram ósk um breytingu á skóladagatali fyrir skólaárið 2021 - 2022.
Fræðsuráð samþykkir samhljóða með fimm atkvæðum breytingu á skóladagatali Krílakots fyrir skólaárið 2021 - 2022.
2.
Inntökureglur í leikskóla
Málsnúmer 202110068
Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs, fór yfir endurskoðaðar inntökureglur í leikskólum Dalvíkurbyggðar.
Fræðsluráð felur sviðsstjóra að klára innritunarreglur leikskóla og endurskoðaðar reglur verða lagðar fyrir fræðsluráð á næsta fundi.
3.
Bólusetningar barna 5 - 11 ára í Dalvíkurbyggð
Málsnúmer 202201017
Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs, fór yfir upplýsingar frá Heilsugæslu Dalvíkur, um það hvað margir nemendur höfðu skilað sér í bólusetningu.
Lagt fram til kynningar.
4.
Skóladagatöl skólanna 2022 - 2023
Málsnúmer 202202009
Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs, fór yfir fyrstu drög að skóladagatali skólanna fyrir skólaárið 2022 - 2023.
Lagt fram til kynningar og umræðu. Skóladagatöl skólanna verða lögð fyrir næsta fund fræðsluráðs.
5.
Innleiðingaráætlun fyrir nýja Menntastefnu Dalvíkurbyggðar
Málsnúmer 202108026
Gísli Bjarnason, sviðsstjóri, fór yfir stöðuna á Innleiðingaráætlun á Menntastefnu Dalvíkurbyggðar.
Lagt fram til kynningar. Fræðsluráð leggur áherslu á að skólarnir haldi Menntastefnu Dalvíkurbyggðar á lofti og innleiði hana með áherslu á skapandi skólastarf.
6.
Opnun umsókna í Endurmenntunarsjóð grunnskóla 2022
Málsnúmer 202202010
Tekið fyrir bréf frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga dags. 31.01.2022.
Lagt fram til kynningar.
7.
Mat á áhrifum ákvarðana sveitarfélaga á börn
Málsnúmer 202201128
Tekið fyrir bréf frá umboðsmanni barna dags. 28.01.2022.
Lagt fram til kynningar.