Fræðsluráð
266. fundur
12. janúar 2022
kl.
08:00
-
09:50
í fjarfundi
Nefndarmenn
Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson
formaður
Felix Rafn Felixson
varaformaður
Þórhalla Karlsdóttir
aðalmaður
Sigríður Jódís Gunnarsdóttir
aðalmaður
Dagbjört Sigurpálsdóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Gísli Bjarnason
sviðsstjóri
Fundargerð ritaði:
Gísli Bjarnason
Sviðsstjóri Fræðslu- og menningarsviðs
Dagskrá
1.
Starfs - og fjárhagsáætlun 2022 og 3ja ára áætlun 2023 - 2025
Gísli Bjarnason,sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs, Friðrik Arnarson, skólastjóri Árskógarskóla og Dalvíkurskóla og Guðrún Halldóra Jóhannsdóttir, leikskólastjóri á Krílakoti fóru yfir helstu áherslur hjá sínum deildum fyrir fjárhagsárið 2022.
Lagt fram til kynningar.
2.
Inntökureglur í leikskóla
Guðrún Halldóra Jóhannsdóttir leikskólastjóri kom með tillögu að texta inn í inntökureglur Dalvíkurbyggðar í leikskóla.
Endurskoðaðar inntökureglur verða lagðar fyrir næsta fund fræðsluráðs til samþykktar.
3.
Fjárhagslegt stöðumat 04
Gísli Bjarnason sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs fór yfir fjárhagslegt stöðumat fyrir málaflokk 04.
Lagt fram til kynningar.
4.
Bólusetningar barna 5 - 11 ára í Dalvíkurbyggð
Gísli Bjarnason sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs fór yfir skipulag á bólusetningu barna 5 - 11 ára í Dalvíkurbyggð.
Lagt fram til kynningar.
5.
Útboð á skólamat 2022 - 2025
Gísli Bjarnason sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs lagði fyrir drög að útboðsgögnum fyrir skólamat til þriggja ára fyrir leik - og grunnskóla í Árskógi og Dalvíkurskóla.
Lagt fram til kynningar.
6.
Útboð á skólaakstri 2022 - 2025
Gísli Bjarnason sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs lagði fyrir drög að útboðsgögnum fyrir skólaakstur til þriggja ára fyrir leik - og grunnskóla í Árskógi og Dalvíkurskóla.
Lagt fram til kynningar
7.
Ósk um breytingu á skóladagatali 2021 - 2022
Friðrik Arnarson lagði fram minnisblað dags.? Þar sem hann óskar eftir breytingu á skóladagatali Dalvíkurskóla fyrir skólaárið 2021 - 2022.
Fræðsluráð samþykkir samhljóða með fimm atkvæðum breytingu á skóladagatali Dalvíkurskóla fyrir skólaárið 2021 - 2022. Að færa skipulagsdag sem er 2. júní og hafa hann 27. maí vegna fyrirhugaðrar námsferðar til Vestmannaeyja.
8.
Forvarnarteymi grunnskólanna vegna forvarna gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreitni
Tekið fyrir erindi frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga dag.04.11.2021 þar sem að allir grunnskólar á landinu þurfa að mynda forvarnarteymi gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreytni.Friðrik Arnarson skólastjóri Árskógar - og Dalvíkurskóla fór yfir hverjir munu sitja í teymi fyrir grunnskólanna í Dalvíkurbyggð.
Lagt fram til kynningar.