Fara í efni

Fræðsluráð

264. fundur
13. október 2021 kl. 08:00 - 10:45
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson formaður
Felix Rafn Felixson varaformaður
Þórhalla Karlsdóttir aðalmaður
Dagbjört Sigurpálsdóttir aðalmaður
Eva Björg Guðmundsdóttir varamaður
Starfsmenn
Gísli Bjarnason sviðsstjóri
Fundargerð ritaði:
Gísli Bjarnason sviðsstjóri Fræðslu- og menningarsviðs
Dagskrá
1.
Innleiðingaráætlun fyrir nýja Menntastefnu Dalvíkurbyggðar
Málsnúmer 202108026
Gunnar Gíslason, forstöðumaður skólaþróunarsviðs Háskólans á Akureyri, fór yfir innleiðingaráætlun að nýrri menntastefnu Dalvíkurbyggðar.
Lagt fram til kynningar.
2.
Starfs - og fjárhagsáætlun 2022 og 3ja ára áætlun 2023 - 2025
Málsnúmer 202109100
Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs og Guðrún Halldóra Jóhannsdóttir, leikskólastjóri, fóru yfir starfs - og fjárhagsáætlun fyrir fjárhagsárið 2022.
Fræðsluráð samþykkir starfsáætlun fræðslusviðs fyrir fjárhagsárið 2022 samhljóða með 5 atkvæðum.

Fræðsluráð gerir ekki athugasemd við fjárhagsáætlun 2022 og leggur áherslu á endurnýjun á búnaði í skólunum.
3.
Gjaldskrá fræðslu - og menningarsviðs fyrir 2022
Málsnúmer 202109071
Gjaldskrá fræðslu - og menningarsviðs fyrir fjárhagsárið 2022 tekin til umræðu.
Fræðsluráð leggur til að gjaldskrá leikskóla í Dalvíkurbyggð hækki um 4% fjárhagsárið 2022 og aðrir gjaldaliðir í gjaldskrá um 2,4%. Fræðsluráð samþykkir gjaldskrá fræðslusviðs samhljóða með fimm atkvæðum
4.
Fjárhagslegt stöðumat 04
Málsnúmer 201901017
Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs, fór yfir fjárhagsstöðu á málaflokki 04.
Lagt fram til kynningar.