Fræðsluráð
263. fundur
15. september 2021
kl.
08:00
-
11:00
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson
formaður
Felix Rafn Felixson
varaformaður
Þórhalla Karlsdóttir
aðalmaður
Sigríður Jódís Gunnarsdóttir
aðalmaður
Dagbjört Sigurpálsdóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Gísli Bjarnason
sviðsstjóri
Fundargerð ritaði:
Gísli Bjarnason
sviðsstjóri Fræðslu- og menningarsviðs
Dagskrá
1.
Aðalskoðun Leiksvæða BSI Krílakot
Guðrún Halldóra Jóhannsdóttir, leikskólastjóri á Krílakoti, fór yfir skýrslu frá BSI sem snýr að eftirliti á leiksvæði á Krílakoti.
Búið er að fara í úrbætur sem hægt er að bregðast við strax. Liggur fyrir að endurnýja þurfi leiktæki á skólalóð Krílakots í samræmi við kröfur reglugerða. Máli vísað til starfs - og fjárhagsáætlunar.
2.
Innleiðingaráætlun fyrir nýja Menntastefnu Dalvíkurbyggðar
Gunnar Gíslason, forstöðumaður skólaþróunarsvið Háskólans á Akureyri, fór yfir innleiðingaráætlun á nýrri Menntastefnu Dalvíkurbyggðar.
Lagt fram til kynningar. Fyrir næsta fund ætlar Gunnar að vera búinn að tengja markmið menntastefnu nánar við innleiðingaráætlun.
3.
Starfs - og fjárhagsáætlun fræðslusviðs 2022
Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs, Katrín Fjóla Guðmundsdóttir, deildarstjóri í Dalvíkurskóla og Guðrún Halldóra Jóhannsdóttir, leikskólastjóri á Krílakoti, fóru yfir drög að starfsáætlun fyrir sínar stofnanir.
Lagt fram til kynningar.
4.
Skólanámsskrár fyrir leik - og grunnskóla 2021 - 2022
Katrín Fjóla Guðmundsdóttir, deildarstjóri í Dalvíkurskóla, Hjördís Jóna Bóasdóttir, deildastjóri í Árskógarskóla og Guðrún Halldóra Jóhannsdóttir, leikskólastjóri á Krílakoti, fóru yfir skólanámskrár skólanna fyrir skólaárið 2021 - 2022.
Fræðsluráð þakkar stjórnendum fyrir yfirferð á starfsáætlun/skólanámskrám. Fræðsluráð samþykkir samhljóða með 5 atkvæðum starfsáætlun/skólanámskrá Dalvíkurskóla, Árskógarskóla og leikskólans á Krílakoti.
5.
Gjaldskrá fræðslu - og menningarsviðs fyrir 2022
Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs, lagði fyrir drög að gjaldskrá fræðslu - og menningarsviðs fyrir fjárhagsárið 2022.
Lagt fram til kynningar og umræðu.