Fara í efni

Fræðsluráð

259. fundur
14. apríl 2021 kl. 08:00 - 09:40
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson formaður
Felix Rafn Felixson varaformaður
Þórhalla Karlsdóttir aðalmaður
Sigríður Jódís Gunnarsdóttir aðalmaður
Dagbjört Sigurpálsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
Gísli Bjarnason sviðsstjóri
Fundargerð ritaði:
Gísli Bjarnason sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
Aðrir sem sátu fjarfundinn: Friðrik Arnarson, skólastjóri Dalvíkurskóla og Árskógarskóla, Guðrún Halldóra Jóhannsdóttir, leikskólastjóri á Krílakoti, Ágústa Kristín Bjarnadóttir, aðstoðarleikskólastjóri á Krílakoti, María Jónsdóttir, fulltrúi starfsmanna á Krílakoti, Linda Geirdal, áheyrnarfulltrúi foreldra í Árskógarskóla, Margrét Eiríksdóttir, áheyrnafulltrúi foreldra í Dalvíkurskóla og Erla Hrönn Sigurðardóttir, fulltrúi foreldra á leikskólanum Krílakoti, Hjördís Jóna Bóasdóttir, deildarstjóri í Árskógarskóla og fulltrúi starfsfólks í Árskógarskóla og Gréta Arngrímsdóttir, fulltrúi kennara í Dalvíkurskóla. Dagbjört Sigurpálsdóttir, Felix Rafn Felixson og Sigríður Jódís Gunnarsdóttir sátu einnig í fjarfundi.
Dagskrá
1.
Áskorun til sveitarfélaga um að nota innlend matvæli í skólamáltíðir.
Málsnúmer 202103110
Tekið fyrir bréf frá Bændasamtökum Íslands dags. 16. mars 2021
Lagt fram til kynningar
2.
Skóladagatöl skólanna 2021 - 2022
Málsnúmer 202102023
Friðrik Arnarson, skólastjóri Árskógar - og Dalvíkurskóla og Guðrún Halldóra Jóhannsdóttir, skólastjóri leikskólans á Krílakoti, lögðu fram skóladagatöl skólanna fyrir skólaárið 2021 - 2022
Fræðsluráð samþykkir með fimm atkvæðum skóladagatal Árskógarskóla
Fræðsluráð samþykkir með fimm atkvæðum skóladagatal Dalvíkurskóla
Fræðsluráð samþykkir með fimm atkvæðum skóladagatal Krílakots

Fræðsluráð vísar málinu til umfjöllunar í Byggðaráði og til samþykktar í sveitastjórn Dalvíkurbyggðar
3.
Endurskoðun á skólastefnu Dalvíkurbyggðar
Málsnúmer 201908050
Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs, fór yfir stöðu á vinnu við endurskoðun á Skólastefnu/Menntastefnu Dalvíkurbyggðar
Lagt fram til kynningar
4.
Fjárhagslegt stöðumat 04
Málsnúmer 201901017
Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs, fór yfir fjárhagslegt stöðumat fyrir málaflokk 04
Lagt fram til kynningar
5.
Umsókn í Sprotasjóð
Málsnúmer 202102031
Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs, kynnti fyrir fræðsluráði verkefni sem sótt var um í Sprotasjóð og upplýsti einnig um styrk sem fékkst upp í verkefnið
Lagt fram til kynningar
6.
Starfsmannamál í leik - og grunnskóla
Málsnúmer 201912084
Stjórnendur leik - og grunnskóla fóru yfir stöðu á starfsmannahaldi fyrir skólaárið 2021 - 2022
Lagt fram til kynningar
7.
Ytra mat í Árskógarskóla
Málsnúmer 201905165
Friðrik Arnarson, skólastjóri Árskógar - og Dalvíkurskóla, upplýsti fræðsluráð um stöðu mála á ytra mati á grunnskólahluta Árskógarskóla
Lagt fram til kynningar
8.
Niðurstöður úr Olweusarkönnun - eineltiskönnun
Málsnúmer 202005030
Friðrik Arnarson, skólastjóri Árskógar - og Dalvíkurskóla, fór yfir niðurstöðu á eineltiskönnun sem er lögð fyrir 5. - 10. bekk í Dalvíkurskóla
Lagt fram til kynningar