Fara í efni

Fræðsluráð

255. fundur
13. janúar 2021 kl. 08:00 - 09:20
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson formaður
Felix Rafn Felixson varaformaður
Þórhalla Karlsdóttir aðalmaður
Sigríður Jódís Gunnarsdóttir aðalmaður
Dagbjört Sigurpálsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
Gísli Bjarnason sviðsstjóri
Fundargerð ritaði:
Gísli Bjarnason Sviðsstjóri Fræðslu- og menningarsviðs
Dagskrá
1.
Áskorun varðandi framboð grænkerafæðis í skólum
Málsnúmer 202012105
Tekin fyrir rafpóstur frá samtökum Grænkera dags. 29.12.2020. Áskorun til sveitarfélaga um skýr markmið varðandi framboð grænkerafæðis í skólum.
Lagt fram til kynningar
2.
Endurskoðun á skólastefnu Dalvíkurbyggðar
Málsnúmer 201908050
Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs, fór yfir stöðu á vinnu við endurskoðun á skólastefnu Dalvíkurbyggðar.
Lagt fram ti kynningar. Vinnan gengur vel og áætlað er að þeirri vinnu ljúki í vor.
3.
Öryggismál í skólum
Málsnúmer 202101023
Tekinn fyrir rafpóstur frá Vinnueftirlitinu dags. 15.12.2020.
Lagt fram til kynningar
4.
Fjárhagslegt stöðumat 04
Málsnúmer 201901017
Gísli Bjarnason fór yfir fjárhagslegt stöðumat fyrir málaflokk 04.
Lagt fram til kynningar
5.
Stytting vinnuviku
Málsnúmer 202010063
Friðrik Arnarson, skólastjóri Árskógarskóla/Dalvíkurskóla, Guðrún Halldóra Jóhannsdóttir, leikskólastjóri á Krílakoti og Ágústa Kristín Bjarnadóttir, aðstoðarleikskólastjóri, fóru yfir stöðu mála varðandi styttingu vinnuviku hjá starfsfólki skólanna.
Lagt fram til kynningar og góðar umræður á fundinum.
6.
Grunnskóli - sérkennslustefna
Málsnúmer 201802035
Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs, lagði fram endurskoðaða sérkennslustefnu grunnskóla.
Lagt fram til kynningar.