Fara í efni

Fræðsluráð

253. fundur
11. nóvember 2020 kl. 08:00 - 10:25
í fjarfundi
Nefndarmenn
Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson formaður
Felix Rafn Felixson varaformaður
Þórhalla Karlsdóttir aðalmaður
Sigríður Jódís Gunnarsdóttir aðalmaður
Dagbjört Sigurpálsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
Gísli Bjarnason sviðsstjóri
Fundargerð ritaði:
Gísli Bjarnason sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
Dagskrá
1.
Skólanámskrár fyrir leik - og grunnskóla 2020 - 2021
Málsnúmer 202009012
Guðrún Halldóra Jóhannsdóttir, leikskólastjóri Krílakots og Ágústa Kristín Bjarnadóttir, aðstoðarleikskólastjóri, fóru yfir skólanámskrá og starfsáætlun fyrir leikskólann á Krílakoti.
Fræðsluráð samþykkir samhljóða skólanámskrá og starfsáætlun Krílakots með fimm greiddum atkvæðum og þakkar Guðrúnu Halldóru og Ágústu fyrir yfirferðina.
2.
Fjárhagslegt stöðumat 04
Málsnúmer 201901017
Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs, fór yfir fjárhagslegt stöðumat fyrir málaflokk 04.
Lagt fram til kynningar.
3.
Endurskoðun á skólastefnu Dalvíkurbyggðar
Málsnúmer 201908050
Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs, fór yfir stöðu á vinnu við endurskoðun á skólastefnu Dalvíkurbyggðar.
Lagt fram til kynningar.
4.
Smitrakning í skólum
Málsnúmer 202009116
Tekið fyrir bréf frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga dags. 26.10.2020. Leiðbeiningar um smitrakningu í skólum.
Lagt fram til kynningar.
5.
Viðbrögð skóla við kórónuveiru COVID - 19
Málsnúmer 202003021
Friðrik Arnarson, skólastjóri Árskógarskóla og Dalvíkurskóla og Guðrún Halldóra Jóhannsdóttir, leikskólastjóri Krílakots upplýstu fræðsluráð hvernig skólarnir skipulögðu sitt starf í skertu samkomubanni og auknum sóttvörnum.
Fræðsluráð þakkar starfsfólki skólanna fyrir vel unnin störf, þrautseigju, útsjónarsemi og gott upplýsingaflæði við erfiðar aðstæður.
6.
Umsókn um ytra mat á leikskólum
Málsnúmer 202010121
Tekin fyrir rafpóstur frá Menntamálastofnun dags. 27.10.2020. Umsókn um ytra mat á leikskóla 2021.
Lagt fram til kynningar. Fræðsluráð telur ekki tímabært að sækja um ytra mat í leikskólum fyrir árið 2021.
7.
Umferðarfræðsla í Grunnskóla
Málsnúmer 201906018
Friðrik Arnarson skólastjóri Árskógarskóla og Dalvíkurskóla og Hjördís Jóna Bóasdóttir deildastjóri fóru yfir hvernig umferðarfræðslu er háttað í Árskógarskóla og Dalvíkurskóla.
Fræðsluráð þakkar Friðriki og Hjördísi fyrir upplýsingarnar og ráðið telur afar mikilvægt að lögregla komi að þessari fræðslu í samstarfi við skólana.
8.
Skólapúlsinn - niðurstöður úr Dalvíkurskóla
Málsnúmer 201901018
Friðrik Arnarson, skólastjóri Árskógarskóla og Dalvíkurskóla fór yfir niðurstöður úr Skólapúlsinum sem er nemendakönnun í 6. - 10. bekk Dalvíkurskóla.
Lagt fram til kynningar og fræðsluráð þakkar Friðriki fyrir yfirferðina.
9.
Niðurstöður samræmdra prófa
Málsnúmer 201905008
Friðrik Arnarson skólastjóri Árskógarskóla og Dalvíkurskóla fór yfir niðurstöður samræmdra prófa í grunnskólum Dalvíkurbyggðar.
Lagt fram til kynningar og fræðsluráð þakkar Friðriki fyrir yfirferðina.
10.
Fundagerð aðalfundar Foreldrafélags Dalvíkurskóla
Málsnúmer 202011026
Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs fór yfir fundargerð aðalfundar Foreldrafélags Dalvíkurskóla.
Lagt fram til kynningar. Fræðsluráð leggur til við skólastjóra Dalvíkurskóla að lögð verði fyrir könnun til að kanna hug foreldra um fyrirkomulag nestismála/morgunverðar í skólanum. Einnig mætti gera könnun meðal nemenda á unglingastigi í Dalvíkurskóla.