Fara í efni

Fræðsluráð

250. fundur
12. ágúst 2020 kl. 08:00 - 09:45
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson formaður
Þórhalla Karlsdóttir aðalmaður
Dagbjört Sigurpálsdóttir aðalmaður
Steinunn Jóhannsdóttir varamaður
Starfsmenn
Gísli Bjarnason sviðsstjóri
Fundargerð ritaði:
Gísli Bjarnason Sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
Dagskrá
1.
Innra mat skóla
Málsnúmer 201806041
Friðrik Arnarson skólastjóri Dalvíkurskóla og Árskógarskóla og Ágústa Kristín Bjarnadóttir staðgengill leikskólastjóra á Krílakoti kynntu innramatsskýrslu skólanna fyrir skólaárið 2019 - 2020.Einnig kynntu þau innramatsáætlun fyrir skólaárið 2020 - 2021.
Lagt fram til kynningar og umræðu. Skólastjórum falið að sjá til þess að skýrslurnar fari á heimasíður skólanna.
2.
Endurskoðun á skólastefnu Dalvíkurbyggðar
Málsnúmer 201908050
Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs, fór yfir stöðu mála á vinnu við endurskoðun á skólastefnu (menntastefnu) Dalvíkurbyggðar.
Lagt fram til kynningar
3.
Könnun á viðbrögðum skóla vegna eineltis
Málsnúmer 202006069
Bréf frá Umboðsmanni Alþingis dags. 9. júní 2020.
Lagt fram til kynningar.
4.
Staða náms - og starfsráðgjafar í grunnskólum
Málsnúmer 202007003
Skýrsla frá Menntamálaráðuneytinu júní 2019.
Lagt fram til kynningar
5.
Ráðning á skólaskrifstofu
Málsnúmer 202008003
Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs, upplýsti fræðsluráð um breytingu á starfsmannahaldi á fræðslusviði.
Fræðsluráð býður Elsu Hlín Einarsdóttur velkomna til starfa.
6.
Starfsmannamál í leik - og grunnskóla
Málsnúmer 201912084
Friðrik Arnarson, skólastjóri Dalvíkurskóla og Árskógarskóla og Ágústa Kristín Bjarnadóttir, staðgengill leikskólastjóra, fóru yfir hvernig staðan er á starfsmannamálum fyrir skólaárið 2020 - 2021.Samhliða þessu var tekin umræða um það hvernig væri hægt að fá fleiri fagmenntaða leikskólakennara til starfa hjá leikskólum Dalvíkurbyggðar.
Lagt fram til kynningar.
7.
Kjarasamningar leik - og grunnskóla
Málsnúmer 202008006
Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs, fór yfir helstu breytingar og áherslur í kjarasamningum leikskólakennara.
Lagt fram til kynningar.
8.
Ytra mat Menntamálastofnunar- Leikskólinn Krílakoti
Málsnúmer 201612025
Bréf frá Mennta- og menningarmálaráðuneyti dags. 4. maí 2020.
Lagt fram til kynningar og umræðu.
9.
Skólavogin
Málsnúmer 201211007
Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs, fór yfir helstu niðurstöður úr Skólavoginni.Einnig lagði sviðsstjóri fram hugmyndir um að kaupa fleiri kannanir frá Skólavoginni sem myndu nýtast í innra - og ytra mati á skólastarfi.
Lagt fram til kynningar.
Fræðsluráð felur sviðsstjóra að vinna minnisblað með nánari upplýsingum fyrir næsta fund ráðsins.
10.
Ytra mat í Árskógarskóla
Málsnúmer 201905165
Friðrik Arnarson, skólastjóri Dalvíkurskóla og Árskógarskóla, fór yfir helstu niðurstöður sem komu út úr ytra mati í Árskógarskóla (grunnskólahluta).
Lagt fram til kynningar.
11.
Starfsáætlun fræðsluráðs
Málsnúmer 201901009
Fræðsluráð endurskoðaði starfsáætlun sína fyrir næsta skólaár.
Fræðsluráð fór yfir starfsáætlun fræðsluráðs fyrir skólaárið 2020 - 2021.