Fara í efni

Fræðsluráð

248. fundur
8. apríl 2020 kl. 08:00 - 09:00
í fjarfundi
Nefndarmenn
Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson formaður
Felix Rafn Felixson varaformaður
Þórhalla Karlsdóttir aðalmaður
Sigríður Jódís Gunnarsdóttir aðalmaður
Dagbjört Sigurpálsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
Gísli Bjarnason sviðsstjóri
Fundargerð ritaði:
Gísli Bjarnason sviðsstjóri Fræðslu- og menningarsviðs
Dagskrá
1.
Samningur við Háskólann á Akureyri um skólaþjónustu við leik - grunnskóla í Dalvíkurbyggð
Málsnúmer 202003115
Með fundarboði fylgdi til kynningar samningur Dalvíkurbyggðar við Miðstöð skólaþróunar við Háskólann á Akureyri um skólaþjónustu við leik- og grunnskóla, rannsóknir og úttektir. Samningurinn er til þriggja ára, til 31.12.2022.
Lagt fram til kynningar
2.
Barnvæn sveitarfélög - Innleiðing Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna
Málsnúmer 202003065
Á 938. fundi byggðaráðs var tekinn fyrir rafpóstur frá Unicef á Íslandi, dagsettur 25. febrúar 2020, tilboð um þátttöku í verkefninu barnvæn sveitarfélög. Um er að ræða verkefni sem styður sveitarfélög í innleiðingu Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, sem var lögfestur hér á landi árið 2013.Byggðaráð vísaði erindinu til umsagnar í fræðsluráði, ungmennaráði og félagsmálaráði.
Fræðsluráð leggur til að Dalvíkurbyggð taki þátt í verkefninu Barnvæn sveitarfélög enda fellur það að og styður við starfsemi skólanna.
3.
Fjárhagslegt stöðumat 04
Málsnúmer 201901017
Gísli Bjarnason sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs fór yfir fjárhagslegt stöðumat á málaflokki 04.
Lagt fram til kynningar
4.
Breytt skipulag skólahalds vegna COVID - 19
Málsnúmer 202004005
Friðrik Arnarson skólastjóri Dalvíkurskóla og Árskógarskóla og Ágústa Kristín Bjarnadóttir staðgengill skólastjóra á Krílakoti fóru yfir helstu breytingar á skólahaldi í leik - og grunnskóla vegna COVID - 19
Fræðsluráð vill hrósa stjórnendum og starfsfólki skólanna og þakka þeim fyrir frábært starf á þessum erfiðu tímum.
5.
Starfsmannamál í leik - og grunnskóla
Málsnúmer 201912084
Friðrik Arnarson skólastjóri Dalvíkurskóla og Árskógarskóla og Ágústa Kristín Bjarnadóttir staðgengill leikskólastjóra á Krílakoti fóru yfir starfsmannamál fyrir næsta skólaár.
Lagt fram til kynningar
6.
Umsókn í endurmenntunarsjóð grunnskóla
Málsnúmer 201903032
Gísli Bjarnason sviðsstjóri fræðslu og menningarsviðs og Friðrik Arnarson skólastjóri Dalvíkurskóla og Árskógarskóla kynntu umsókn í Endurmenntunarsjóð grunnskóla
Lagt fram til kynningar
7.
Þróun nemendafjölda í leik - og grunnskólum Dalvíkurbyggðar
Málsnúmer 202004010
Gísli Bjarnason sviðsstjóri kynnti fræðsluráði þróun nemendafjölda í leik - og grunnskólum til ársins 2025.
Lagt fram til kynningar
8.
Endurskoðun á skólastefnu Dalvíkurbyggðar
Málsnúmer 201908050
Gísli Bjarnason sviðsstjóri fræðslu og menningarsviðs kynnti nefndarmönnum áframhaldandi vinnu við endurskoðun á skólastefnu Dalvíkurbyggðar.
Fræðsluráð er sammála því að vinna við endurskoðun á skólastefnu verði haldið áfram í fjarfundi og verður það gert í samstarfi við Háskólann á Akureyri.