Fara í efni

Fræðsluráð

247. fundur
11. mars 2020 kl. 08:00 - 10:15
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Gunnþór Eyfjörð Gunnþórsson formaður
Felix Rafn Felixson varaformaður
Sigríður Jódís Gunnarsdóttir aðalmaður
Dagbjört Sigurpálsdóttir aðalmaður
Kristján Guðmundsson varamaður
Starfsmenn
Gísli Bjarnason sviðsstjóri
Fundargerð ritaði:
Gísli Bjarnason Sviðsstjóri Fræðslu- og menningarsviðs
Dagskrá
1.
Skóladagatöl fyrir 2020 - 2021
Málsnúmer 202002018
Ágústa Kristín Bjarnadóttir staðgengill leikskólastjóra á Krílakoti og Katrín Fjóla Guðmundsdóttir deildarstjóri í Dalvíkurskóla fóru yfir skóladagatöl skólanna fyrir skólaárið 2020 - 2021
Fræðsluráð samþykkir skóladagatal Dalvíkurskóla og vísar því til samþykktar í sveitastjórn.

Fræðsluráð vísar skóladagatali Árskógarskóla og Krílakots ásamt fylgiskjali inn í Byggðarráð Dalvíkurbyggðar til umræðu. Sviðsstjóra er falið að kostnaðargreina tillögur um breytingar á starfsumhverfi leikskóla.
2.
Viðbrögð skóla við kórónuveiru COVID - 19
Málsnúmer 202003021
Stjórnendur skólanna fóru yfir þau viðbrögð sem skólarnir viðhöfðu í að forðast smit við kórónuveiru COVID - 19
Lagt fram til kynningar
3.
Viðbrögð skóla við verkföllum starfsmanna
Málsnúmer 202003022
Stjórnendur í leik - og grunnskóla fóru yfir hvernig skólaskipulag verður í yfirstandandi verkfallsaðgerðum
Lagt fram til kynningar
4.
Endurskoðun á skólastefnu Dalvíkurbyggðar
Málsnúmer 201908050
Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu - og menningarsviðs fór yfir framkvæmdaráætlun á vinnu við endurskoðun á skólastefnu Dalvíkurbyggðar
Lagt fram til kynningar
5.
Menntun til framtíðar
Málsnúmer 202002019
Frá Mennta - og menningarmálaráðuneytinu 28. feb. 2020Drög að þingsályktunartillögu um menntastefnu til ársins 2030 hafa verið birt í samráðsgátt Stjórnarráðsins. Þar gefst tækifæri til að senda inn umsögn til og með 13. mars 2020.
Lagt fram til kynningar
6.
Fjárhagslegt stöðumat 04
Málsnúmer 201901017
Gísli Bjarnason, sviðsstjóri fræðslu og menningarsviðs fór yfir fjárhagslegt stöðumat fyrir málaflokk 04
Lagt fram til kynningar
7.
Handbók um velferð og öryggi barna í leik - og grunnskóla
Málsnúmer 202003029
Bréf frá Menntamálastofnun dags. 21. janúar 2020. Breytingar vegna endurútgáfu á handbók um velferð og öryggi barna í leik - og grunnskólum
Lagt fram til kynningar
8.
Niðurstöður foreldrakönnunar
Málsnúmer 201903013
Katrín Fjóla Guðmundsdóttir deildarstjóri Dalvíkurskóla og Gísli Bjarnason sviðsstjóri fóru yfir niðurstöður úr foreldrakönnun í Árskógarskóla og Dalvíkurskóla.
Lagt fram til kynningar. Könnun kemur vel út í báðum skólunum. Það er almenn ánægja með störf skólanna. Þeir þættir sem þarfnast umbóta verða settir í umbótaáætlun.
9.
Heimsóknir fræðsluráðs í leik- og grunnskóla
Málsnúmer 201810023
Fræðsluráð fór í heimsókn í Árskógarskóla
Frestast vegna ófærðar